Grikkir fóru í úrslitaleikinn á EM 1. júlí 2004 00:01
Grikkir eru komnir í úrslitaleik Evrópumótsins í Portúgal eftir 1-0 sigur á Tékkum í framlengdum undanúrslitaleik liðanna. Grikkir skoruðu sigurmarkið á lokasekúndum fyrri hluta framlengingarinnar. Lokaleikur keppninnar er því sá sami og opnunarleikurinn og Portúgal og Grikklands mætast því öðru sinni í keppninni á sunnudaginn. „Ævintýrið okkar heldur áfram og það er ótrúlegt hvað mínir menn afrekuðu í þessum leik. Þetta er sannarlega kraftaverk,“ sagði Otto Rehagel, þjálfari Grikkja. „Tékkar hafa yfir meiri tækni að ráða en ástríðan og viljinn var okkar megin. Það er sama hvað gerist í framhaldinu, við erum sannir sigurvegarar þessarar keppni,“ bætti sigurglaður Otto við í leikslok. Grikkir gerðu að því er virtist hið ómögulega í annað sinn á sex dögum þegar þeir slógu út sigurstranglegasta liðið í Evrópukeppninni. Frakkar duttu út fyrir þeim í átta liða úrslitunum og í gær fóru Tékkar sömu leið. Aðeins tvö mörk voru skoruð í þessum tveimur leikjum og bæði tvö af Grikkjum. Grikkir spila því við heimamenn í Portúgal í úrslitaleik keppninnar. Sigurmarkið skoraði varnarmaðurinn Traiano Dellas með skalla eftir hornspyrnu á lokamínútu fyrri hálfleiks framlengingar eftir að bæði liðin höfðu verið lánlaus upp við markið í 115 mínútur. Seinheppnir Tékkar fengu síðan engan tíma til að svara þessu marki því um leið og þeir hófu leikinn eftir markið flautaði Pierluigi Collina til loka leiksins. Tékkar lágu sem hráviði út um allan völl. Fyrsta silfurmark sögunnar var því sögulegt því nú er ljóst að ný þjóð fær nafn sitt á bikarinn því Portúgalir eða Grikkir hafa aldrei unnið titil á stórmóti. Það var þó eins og um gullmark væri að ræða því Tékkar gátu ekki svarað – því leikurinn var búinn. „Það sem við gerðum í kvöld verður aldrei leikið eftir. Við eigum skilið að vera í úrslitaleiknum því við höfum skipulagt og gott lið. Guð gaf okkur sigurinn,“ sagði Traianos Dellas sem skoraði sigurmarkið. Tékkar byrjuðu vel og strax á þriðju mínútur skaut Tomas Rosicky í slána á marki Grikkja en Tékkar fundu ekki leiðina fram hjá skipulagðri vörn Grikkja. Tékkar urðu fyrir miklu áfalli í fyrri hálfleik þegar fyrirliðinn Pavel Nedved varð að yfirgefa völlinn vegna hnémeiðsla. En það var ekki bara brotthvarf fyrirliðans sem spillti fyrir Tékkum sem náðu sér aldrei á strik gegn varnarsinnuðu liði Grikkja. Færin féllu þónokkur fyrir þá í leiknum. Tékkum tókst ekki að nýta sér þau í þau örfáu skipti sem gríska vörnin gaf færi á sér.
Íslenski boltinn Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti „Mér fannst við ekki góðir“ Íslenski boltinn „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Fótbolti Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn Íslenski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Smáþjóðin úr leik á HM en Pépé sendi Fílabeinsströndina áfram Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn „Mér fannst við ekki góðir“ Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Veit ekki hvort Haaland var að grínast Anton Ingi ráðinn þjálfari dansks félags Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Guðrún eftirlét Thelmu og Fanneyju toppsætið fyrir sumarfríið Onana aftur að láni frá Man. Utd Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Tómas Bent kominn með nýjan stjóra Oliver til FH „Alltaf skemmtilegt að taka á móti Víkingum heima“ Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Portúgalar gætu farið tvær mjög ólíkar og miserfiðar leiðir á HM Yngstur til að byrja leik á HM í 24 ár Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Fékk fimm leikja bann fyrir að valda fótbroti Kone Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Krakkarnir fögnuðu eins og Ronaldo á Norðurálsmótinu Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Óþekkti markvörðurinn kominn með fleiri fylgjendur en Tom Brady Maður dagsins á HM: „Það var ekki ég sem uppgötvaði Vini Jr.“ Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Sjá meira