16 ára bið Hollendinga lengist enn 1. júlí 2004 00:01
Hollendingar er enn einu sinni dottnir úr leik á stórmóti í knattspyrnu áður en kemur að úrslitaleik keppninnar. Þetta seinheppna lið, sem hefur innan sinna raða marga af bestu knattspyrnumönnum heims, hefur ekki unnið titil síðan Hollendingar urðu Evrópumeistarar í Þýskalandi fyrir sextán árum síðan. Frá þeim tíma hefur liðið þó þrisvar komist í undanúrslit. Nú þykir komið að enn einum kynslóðaskiptunum og enn hefur leitin að hinum nýja Ruud Gullit og nýja Marco van Basten ekki borið árangur en það voru þeir tveir sem áttu mestan þátt í að gera Hollendinga að Evrópumeisturum 1988. Fimm leikmenn hættu strax eftir að liðið datt út úr EM í fyrrakvöld: vængmaðurinn Marc Overmars, varnarmennirnir Jaap Stam og Frank de Boer, markvörðurinn Edwin van der Sar og svo miðvallarleikmaðurinn Paul Bosvelt sem spilaði bara í 31 mínútur í keppninni. Það er líka búist við að fyrirliðinn Phillip Cocu hætti líka og því verður mun yngra hollenskt landslið á HM 2006 en var í Portúgal. Ruud van Nistelrooy og Patrick Kluivert eiga margt sameiginlegt, þeir spila sömu stöðu hjá hollenska landsliðinu og fengu báðir leiðinlega afmælisgjöf því þeir urðu báðir 28 ára gamlir í gær, daginn eftir 1-2 tap gegn Portúgölum í undanúrslitaleik EM í Portúgal. Dick Advocaat, þjálfari hollenska landsliðsins, taldi sig ekki geta notað þessa sóknarmenn saman og van Nistelrooy spilaði því alla leikina en Kluivert fékk ekki að koma inn á í eina mínútu. Kluivert hefur skorað 40 mörk fyrir landsliðið á móti 18 hjá van Nistelrooy og það er því ekki að ástæðulausu að hollenskir fjölmiðlar hafi verið fljótir til að gagnrýna liðið þegar illa gekk enda þrír af bestu framherjum Evrópu sitjandi á bekknum. Kluivert fékk ekkert að koma inn á, Pierre van Hooijdonk fékk að spila í 25 mínútur og Roy Makaay lék i 97 mínútur eftir að hafa komið þrisvar inn á sem varamaður. Makaay skoraði 23 sinnum í 32 leikjum með Bayern München í vetur, van Hooijdonk skoraði 24 mörk í 34 leikjum fyrir tyrknesku meistarana í Fenerbahce og Kluivert skoraði 8 mörk í 21 leik fyrir Barcelona en glímdi við erfið meiðsli á tímabilinu. Með alla þessa snjöllu sóknarmenn lengstum á bekknum skoraði hollenska liðið sjálft ekkert mark á síðustu 210 mínútum sínum í keppninni, eina mark liðsins í átta liða úrslitum og undanúrslitum var sjálfsmark Portúgalans Jorge Andrade og fyrir vikið er liðið á leiðinni heim frá Portúgal. Það er líka búist við að Dick Advocaat hætti með liðið í annað sinn á ferlinum en hann hætti einnig með liðið í desember 1994 eftir að hafa mistekist að fylgja eftir árangri Rinus Michels, sem gerði Holland einmitt að Evrópumeisturum 1988. Síðan þá hefur engum tekist að jafna árangur hans og nú vilja margir að knattspyrnusambandið horfi til útlanda eftir nýju blóði. Tvær fyrrum stórstjörnur hollenska liðsins eru þó heitar fyrir starfinu: Ronald Koeman, sem lék stórt hlutverki í Evrópumeistaraliðinu og þjálfar nú hollensku meistaranna í Ajax Amsterdam og svo Johan Neeskens, sem lék stórt hlutverk í hollenska landsliðinu sem tapaði úrslitaleik heimsmeistarakeppninnar bæði 1974 og 1978. Hollenska landsliðið er samt sem áður eitt mest spennandi verkefnið í fótboltaheiminum enda líklega hvergi annars staðar jafn mikið framboð af frábærum leikmönnum.
Íslenski boltinn Mest lesið Svakaleg slagsmál í æfingarleik á Spáni Fótbolti Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Enski boltinn „Ekki sáttir við að Íslendingur kæmi að kenna þeim“ Fótbolti Stúkan: Getur KR fallið úr deildinni? Íslenski boltinn Framari týndi boltanum í miðjum leik og Rikki G var alveg gáttaður Íslenski boltinn Blikarnir hoppuðu út í á Fótbolti Reyndu að ráða Solskjær áður en þeir réðu svo Heimi Hallgríms Fótbolti Trump réði sjálfan sig í stórt starf á Ólympíuleikunum Sport Markvörður íslenska liðsins með fimm mörk Handbolti Sjáðu Hákon leggja upp mark fyrir Giroud Fótbolti Fleiri fréttir Leðurblökur að trufla handboltafélag Fengið nokkur skilaboð eftir skipti frá Val til KR Markvörður íslenska liðsins með fimm mörk Scott McTominay og níu leikmenn PSG tilnefndir til Ballon d'Or Sjáðu Hákon leggja upp mark fyrir Giroud Öruggar með besta árangur Íslands á EM frá upphafi Maddison frá í að minnsta kosti hálft ár Reyndu að ráða Solskjær áður en þeir réðu svo Heimi Hallgríms Sjáðu mörkin úr Bestu: Nú er hinn Pedersen bróðirinn farinn að skora líka Sexfaldur Íslandsmeistari sló fyrsta höggið á Íslandsmótinu í golfi 2025 Þrjár þjóðir upp fyrir Ísland á FIFA listanum „Ég var í smá sjokki“ Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Framari týndi boltanum í miðjum leik og Rikki G var alveg gáttaður „Ekki sáttir við að Íslendingur kæmi að kenna þeim“ Stúkan: Getur KR fallið úr deildinni? Blikarnir hoppuðu út í á Trump réði sjálfan sig í stórt starf á Ólympíuleikunum Ákærður fyrir að hnupla treyju LeBron sem seldist seinna á nær hálfan milljarð Svakaleg slagsmál í æfingarleik á Spáni Dagskráin í dag: Evrópuævintýri Breiðabliks og Víkings ásamt Bestu kvenna Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Sara Björk áfram í Sádi-Arabíu „Ég hef aldrei séð Stjörnuna spila svona“ „Ég er mjög þreyttur“ Uppgjörið: Afturelding - Vestri 1-1 | Deila með sér stigunum Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu „Mæli með að dómarar nái þessum hraða með boltann“ Uppgjörið: Fram - Stjarnan 1-1 | Allir ósáttir eftir jafntefli Leiknir selur táning til Serbíu Sjá meira