Innlent

Sól og sumar

Höfuðborgarbúar nutu veðurblíðunnar á suðvesturhorni landsins í gær. Fjöldi fólks safnaðist saman á Austurvelli og í Nauthólsvík auk þess sem mikill erill var í sundlaugum borgarinnar. Bjart var í veðri og hitinn náði hæst tæpum þrettán gráðum klukkan þrjú að sögn Óla Þórs Árnasonar, veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Óli Þór býst við áframhaldandi veðurblíðu en í dag er búist við mjög svipuðu veðri á höfuðborgarsvæðinu og var í gær. "Það verður áfram sólskin en má búast við hafgolu yfir miðjan daginn," segir Óli Þór. Að sögn Óla Þórs er björtu veðri spáð fram á laugardag en þá er búist við að þykkni upp og fari að rigna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×