Forsendur kjarasamninga í hættu 12. júní 2004 00:01
Formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur telur forsendur kjarasamninga í hættu þar sem verðbólga sé langt umfram þau mörk sem sett hafi verið. Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 3,9 prósent síðastliðna tólf mánuði og jafngildir hækkunin undanfarna þrjá mánuði níu prósenta verðbólgu á ársgrundvelli. "Þetta er mikið áhyggjuefni, ekki síst vegna þess að menn voru nýbúnir að gera hér kjarasamninga þar sem þeir stilltu kröfum sínum í hóf til að tryggja svokallaðan stöðugleika," segir Aðalsteinn Baldursson, formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur. Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 3,9 prósent síðastliðna tólf mánuði, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,2 prósent, sem jafngildir níu prósenta verðbólgu á ársgrundvelli. "Ég lít þessa þróun alvarlegum augum og ef hún heldur svona áfram erum við í vondum málum," segir Aðalsteinn, sem telur forsendur kjarasamninga í hættu þar sem verðbólga sé langt umfram þau mörk sem sett hafi verið. Áhrifin verði þó metin yfir lengra tímabil. "Þetta er stóralvarlegt mál og kallar á aðhald í ríkisfjármálunum," segir Aðalsteinn. "Við höfum áhyggjur af verðlagsþróuninni, ekki síst vegna kjarasamninga," segir Ingunn Þorsteinsdóttir, hagfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands. "Grunnforsenda kjarasamninga er að verðlagsþróun verði í takt við verðbólgumarkmið Seðlabankans, sem er 2,5 prósent. Við höfum því áhyggjur af að forsendur kjarasamninga muni bresta ef verðlagsþróun verður áfram með sama hætti." Ingunn segir líklegt að Seðlabankinn muni halda áfram að hækka stýrivexti. "Þá er ekki síður mikilvægt að ríkisvaldið grípi til aðhaldssamra aðgerða í ríkisfjármálunum þannig að meginþungi aðgerðanna liggi ekki á Seðlabankanum." Að sögn Ingunnar mun ASÍ fylgjast náið með þróun verðlags á næstu mánuðum. "Verðlagsþróunin fer eftir því hvernig viðbrögðin verða í hagkerfinu og hvort verðlagsþróunin gengur að einhverju leyti til baka."
Innlent Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Fleiri fréttir Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira