Eru búnir að gefa skýrslu 21. október 2004 00:01
Mennirnir þrír, sem réðust á fréttastjóra DV í gær og gengu berserksgang á ritstjórn blaðsins, gáfu lögreglu skýrslu í dag. Fréttastjórinn kærði mennina í morgun. Á annan tug manna, sem urðu vitni að atburðunum, gefur skýrslu hjá lögreglu á morgun. Lögregla náði í gærkvöldi símasambandi við mennina þrjá sem laust eftir hádegi í gær birtust á ritstjórn DV í gær og tóku þar fréttastjórann kverkataki og frömdu eignaspjöll á innanstokksmunum. Þeir lofuðu þá að mæta til lögreglu til skýrslutöku í dag og voru mættir upp á stöð laust fyrir klukkan eitt. Yfirheyrslum lauk um klukkan tvö og fóru mennirnir þá leiðar sinnar. Eftir því sem Fréttastofan kemst næst, viðurkenna mennirnir allir að hafa verið á ritstjórn DV í gær. Þeir tengjast vélhjólaklúbbnum Fáfni, sem gert hefur hosur sínar grænar fyrir Vítisenglum sem er alþjóðlegur félagsskapur rokkara, sem víða um heim hefur verið spyrtur við ofbeldi og eiturlyfjaviðskipti. Reynir Traustason, fréttastjóri DV, sem ráðist var á í gær, lagði fram kæru á hendur mönnunum í morgun og gaf ítarlega skýrslu um atburðarásina. Á morgun fara hátt í 20 starfsmenn DV og Fréttablaðsins, sem urðu vitni að atburðunum til lögreglu og gefa skýrslu. Lögregla reiknar með að ljúka rannsóknarvinnu málsins fyrir klukkan 4 á morgun. Að því loknu verður gengið frá málsgögnum og þau send til ákæruvaldsins sem tekur ákvörðun um hvort ákæra verður gefin út á hendur mönnunum.
Fréttir Innlent Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Fleiri fréttir Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Sjá meira