Engin fjárveiting fengist 15. júní 2004 00:01
Garðar Garðarsson, formaður samninganefndar heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, segir að engin fjárveiting hafi fengist til að framfylgja vilja Alþingis um að semja við sálfræðinga og aðrar sjálfstætt starfandi heilbrigðisstéttir. Framkvæmdastjóri Geðhjálpar sagði í gær að fólki í miklum vanda væri oft vísað frá bráðamóttöku geðdeildar Landspítalans. Þetta fólk þyrfti svo að bíða í jafnvel þrjá til fimm mánuði eftir viðtali við geðlækni. Enn væri ósamið við sálfræðinga sem gætu þó annað þessari eftirspurn þrátt fyrir skýran vilja Alþingis. Hann tók dæmi af ungri stúlku sem hefði í tvígang verið vísað frá bráðamótttöku Landspítalans þrátt fyrir ítrekaðar sjálfsvígshugsanir. Tveir hlauparar hefðu komið að henni í Laugardalnum þar sem hún var að reyna að fyrirfara sér. „Við þurfum að fá fjárveitingar til að geta gert samninga við sálfræðinga og aðra sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmenn en þær fjárveitingar hafa ekki fengist, þrátt fyrir að heimild sé fyrir því í lögum,“ sagði formaður samninganefndar heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins í samtali við fréttamann Stöðvar 2 í dag. Heilbrigðisráðherra hefur farið þá leið að efla heilsugæsluna og bjóða upp á sálfræðiþjónustu á heilsugæslustöðvum. Garðar Garðarsson segir þetta spurningu um forgangsröðun. Þarna sé verið að reyna að ná til yngstu kynslóðarinnar . Aðspurður hvort semja ætti við sálfræðinga í ljósi lagaheimildarinnar segist Garðar hafa verið talsmaður þess í gegnum tíðina að bætt yrði við fé í þennan málaflokk. Hvort það sé gert með því að semja beint við sálfræðinga um þjónustu, sé aftur á móti álitamál.
Fréttir Innlent Mest lesið Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Sundlaugargestur handtekinn Innlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Innlent Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Innlent Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Innlent Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Innlent Fleiri fréttir RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Hundrað þúsund ferðamenn heimsóttu Jökulsárlón í júlí Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Loka Miðfjarðará með grjóti og segja stjórnvöld hafa dregið lappirnar Fundað um Múlaborg og eldislöxum varist Braust inn á flugvallarsvæðið Ekkert bendi til að brotið hafi verið á fleiri börnum Hnullungur þveraði veginn þar sem banaslys varð „Það gengur ekki að við séum með starfsemi sem sniðgengur lögin hér á Íslandi“ „Það bjó enginn í húsinu“ Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Vísað ölvuðum frá borði á leið frá Keflavík Heilunarguðþjónustur í Lágafellskirkju njóta mikilla vinsælda „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Segir dómsmálaráðherra hafa talað inn í óttann Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Evrópa verði að hætta að stóla á Bandaríkin og ólögleg bílastæðagjöld Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Deilt um fund Trump og Pútín og leigubílamarkaðurinn Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Sundlaugargestur handtekinn Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Sjá meira