Evrópukeppnin er listahátíð 15. júní 2004 00:01
EM í Portúgal hefst á laugardaginn og af því tilefni bauð Sjónvarpið til blaðamannafundar í gær þar sem keppnin var kynnt með formlegum hætti. Opnunarleikur EM verður á milli Portúgala og Grikkja og hefst hann klukkan 16 en Sjónvarpið mun sýna 26, af þeim 31 leik sem fram munu fara í keppninni, í beinni útsendingu. Gerður hefur verið samningur við sjónvarpsstöðina Sýn um að sýna þá fimm leiki sem Sjónvarpið getur ekki boðið upp á í beinni útsendingu og verða þeir í opinni dagskrá. Leikur Sviss og Króatíu verður á dagskrá Sýnar 13. júní á sama tíma og formúlukappakstur er á dagskrá í Sjónvarpinu. Þá verða síðustu leikir riðlakeppninnar 20.–23. júní, þar sem tveir leikir fara fram samtímis, sýndir á dagskrá Sjónvarpsins og Sýnar. Sjónvarpið sýnir Spánn-Portúgal, Króatía-England, Danmörk-Svíþjóð og Þýskaland-Tékkland. Á dagskrá Sýnar verða hins vegar eftirtaldir leikir: Rússland-Grikkland, Sviss-Frakkland, Ítalía-Búlgaría og Holland-Lettland.Athyglisverð nýjung verður síðan á boðstólum í tengslum við keppnina en það er þátturinn Að leikslokum sem verður í umsjón hins afar fjölhæfa dagskrárgerðarmanns, Þorsteins J. Vilhjámssonar. Þar fær Þorsteinn sérfræðinga í heimsókn að kvöldi alla keppnisdagana, fer yfir leiki dagsins, skoðar vafaatriði og spáir í gang keppninnar. Þorsteinn hefur einnig umsjón með þáttum við upphaf og lok keppninnar. Fréttablaðið tók hann tali: „Það verður reynt að finna forvitnilega vinkla á þessari listgrein – dagskrárgerð er í eðli sínu skemmtileg og fótbolti er þannig leikur að það er gaman að fjalla um hann frá mörgum sjónarhornum. Í mínum huga er þessi keppni jafn mikil listahátíð og sú sem er nýliðin í Reykjavík – þetta er í sjálfu sér hin dýra list og svo getum við haft Bach, John Coltrane og annað leikhúsefni með," sagði Þorsteinn og bætti þessu við: „Við komum til með að nota grafíkina meira en áður hefur þekkst og skoðum vafaatriðin, sem gera leikinn svo skemmtilegan, út frá henni og auðvitað marga aðra þætti líka með skemmtilegum og fróðum gestum. „Þetta verður ekkert minna en frábær keppni," segir Þorsteinn fullur tilhlökkunar og á von á Frökkum mjög sterkum: „Ég verð illa svikinn ef Frakkarnir fara ekki mjög langt, þeir eru með besta liðið og það skemmtilegasta líka. Hins vegar er þetta þannig keppni að það eru engin slök lið þarna og allt getur gerst; kannski munu heimamenn loksins springa út en við munum án efa sjá marga harða og skemmtilega bardaga," sagði Þorsteinn J. Vilhjálmsson. Að lokum er vert að benda á að með hliðsjón af tölum um áhorf frá síðustu keppnum má áætla að nálægt helmingur Íslendinga muni fylgjast með keppninni að miklu eða öllu leyti.
Íslenski boltinn Mest lesið NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Körfubolti Ronaldinho og Usain Bolt reyna fyrir sér í þjálfun Sport Skoraði nánast alveg eins mark í fyrra en Del Piero gerði betur Fótbolti Hákon reyndist hetja Brentford Enski boltinn Magnaður viðsnúningur hjá Aserum Fótbolti Hættir að verja mark Frakklands til að verja tíma með fjölskyldunni Sport „Vissi ekki að við gætum þetta“ Fótbolti Tottenham slapp með sigur eftir furðulegt sjálfsmark Fótbolti Ótrúlegt átta marka jafntefli hjá Juventus og Dortmund Fótbolti Ódýr vítaspyrna tryggði tíu Madrídingum endurkomusigur Fótbolti Fleiri fréttir Ronaldinho og Usain Bolt reyna fyrir sér í þjálfun NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Skoraði nánast alveg eins mark í fyrra en Del Piero gerði betur Hákon reyndist hetja Brentford Magnaður viðsnúningur hjá Aserum Ótrúlegt átta marka jafntefli hjá Juventus og Dortmund Ódýr vítaspyrna tryggði tíu Madrídingum endurkomusigur Tottenham slapp með sigur eftir furðulegt sjálfsmark Hættir að verja mark Frakklands til að verja tíma með fjölskyldunni „Vissi ekki að við gætum þetta“ Varamennirnir lögðu upp hvor fyrir annan Kristall skaut Sønderjyske áfram Yamal meiddur og þjálfarinn gagnrýnir landsliðið Hefur bætt heimsmetið um þrettán sentímetra á fimm árum Emil leggur skóna á hilluna Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Magnús Ver í 55. sæti á lista yfir bestu íþróttamenn sögunnar Fyrirliðinn ekki með Arsenal í Baskalandi Barðist degi eftir að hafa orðið fyrir bíl „Finn að ég er að fara að toppa á réttum tíma“ Gæti spilað í kvöld en þarf að mæta í réttarsal í fyrramálið Fær 54 milljónir í vikulaun en æfir einn og yfirgefinn Mamma reddaði treyjunum frá Thuram bræðrunum Uppþot í Eyjum: „Í kvöld töpuðu íþróttirnar“ Líktu varnarleik KR við varnarleik fimmtugs old boys liðs Sjáðu hvernig ÍA lyfti sér af botninum og mörkin í Smáranum Ítalskur skíðakappi lést eftir árekstur á æfingu Bitvargurinn fékk tólf leikja bann Fagnaði heimsmetinu í karíókí herbergi Dagskráin í dag: Meistaradeildin hefst, Lokasóknin og VARsjáin Sjá meira