Verð aldrei hækkað jafn hratt 19. desember 2004 00:01
Fasteignaverð hefur aldrei hækkað jafnhratt á höfuðborgarsvæðinu og undanfarna þrjá mánuði. Verðið hefði hins vegar lækkað eða staðið í stað ef íbúðalán bankanna hefðu ekki komið til, að mati greiningardeildar KB banka. Vísitala fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 3,8% í nóvember. Á undanförnum þrem mánuðum hefur fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkað um tæp níu prósent og hefur aldrei hækkað jafnmikið á svo skömmum tíma. Á árunum 1999 til 2000, þegar mikil uppsveifla var í fasteignaverði, hækkaði það mest um 7,2 prósent á þriggja mánaða tímabili. Ef ekki hefðu komið til íbúðalán bankanna hefði fasteignaverð hins vegar staðið í stað eða jafnvel lækkað á þessu þriggja mánaða tímabili nú. Tólf mánaða hækkun fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu á milli nóvembermánaða hefur þó ekki náð sömu hæðum og á fyrrgreindu tímabili á árunum 1999 til 2000, þegar fasteignaverð hækkaði um heil 24 prósent á tólf mánuðum. Athyglisvert er þó að árshækkun á sérbýli nú er rúm 22 prósent, sem er meiri hækkun en nokkru sinni áður. Þetta kemur, að mati greingardeildar KB banka, til vegna þess að greiðslugeta hefur aukist um nær þriðjung með tilkomu lægri vaxta og því auðveldara að fjárfesta í dýrari íbúð. Þannig eru afborganir af 19 milljón króna íbúð nú svipaðar og af 15 milljón króna íbúð áður en bankarnir hófu innreið sína á fasteignamarkaðinn. Þetta er í takt við þá þróun sem spáð hafði verið, enda leiðir lækkun vaxta og greiðari aðgangur að fjármagni til þess að stærri og betri eignir verði eftirsóttari, en að sama skapi sé allsendis óvíst að smærri íbúðir, kjallaraíbúðir og íbúðir á síður eftirsóttum svæðum haldi áfram að hækka mikið lengur.
Fréttir Innlent Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Sjá meira