Innlent

Víglundur úr stjórn Íslandsbanka

Víglundur Þorsteinsson gengur úr stjórn Íslandsbanka á hluthafafundi sem haldinn verður næsta miðvikudag. Framboðsfrestur rann út í dag og eru allir núverandi stjórnarmenn í kjöri nema Víglundur og Orri Vigfússon. Orri er hins vegar í framboði sem varamaður. Þeir Einar Sveinsson formaður, Jón Snorrason varaformaður, Guðmundur B. Ólafsson, Helgi Magnússon og Karl Wernersson gefa allir kost á sér áfram. Aðrir í framboði sem aðalmenn í stjórnarkjörinu eru Ólafur B. Thors, Róbert Melax, Steinunn Jónsdóttir og Úlfar Steindórsson.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×