Fjölgun árangurslausra fjárnáma 26. október 2004 00:01
Milli áranna 2003 og 2004 hefur aukningin verið um 52 prósent. Mest er hún hjá aldurshópnum 26 til 30 ára eða um 35 prósent. Á hæla honum kemur fólk á aldrinum 31til 45 ára, þar sem aukningin nemur 28 prósentum. Aftur á móti hefur árangurslausum fjárnámum heldur fækkað hjá aldurshópnum 18 til 20 ára milli ára 2003 til 2004. "Vissulega eru þetta sláandi tölur," sagði Björk Ólafsdóttir fjármálastjóri Lánstrausts hf. "Við gerðum athugun á því hvort það væri einhlít skýring fyrir þessari miklu aukningu, en svo virðist ekki vera. Þó leiddi sú athugun í ljós að einkaneysla og aukin skuldsetning eigi einhverja orsök á þessarri aukningu árangurlausra fjárnáma. Fjöldi einstaklinga á vanskilaskrá er um tuttugu þúsund og hefur sú tala staðið nokkuð í stað síðasta árið en aftur á móti sjáum við að fleiri árangurslaus fjárnám eru á hvern einstakling heldur en verið hefur síðustu ár. Aukningin liggur einnig í því. Hún er nokkuð jöfn í öllum aldurshópum, þó að 26 til 30 ára hópurinn standi greinilega upp úr. Neyslulánin virðast hafa aukist." "Það getur verið allnokkuð átak að snúa þróuninni við þegar svona er komið í fjármálum fólks", sagði Björk ennfremur. "Sumu fólki finnst ef til vill erfitt að setja sig í samband við kröfuhafa og bíður of lengi með það. Á meðan rúllar boltinn og vefur utan á sig uns fólki finnst sem því séu allar bjargir bannaðar." Björk sagði að aukning árangurslausra fjárnáma væri einnig til staðar hjá fyrirtækjum. Þar hefðu þau aukist um fjörutíu prósent á fyrstu níu mánuðum 2004 miðað við sama tímabil 2003. Síðastliðinn vetur fóru starfsmenn frá Lánstrausti hf. með stuðningi banka og fjármálafyrirtækja í tíunda bekk grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu og héldu stutt námskeið um forvarnir í fjármálum. Lánstraust hf og stuðningsaðilar ætla sér að halda þessum námskeiðum áfram. Veruleg aukning hefur orðið í árangurslausum fjárnámum á einstaklinga á árunum 1998 til 2004, miðað við fyrstu níu mánuði hvers árs. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Lánstrausts hf.
Fréttir Innlent Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Innlent Fleiri fréttir Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Um 36 prósent getur ekki horft á mynd án þess að fara í símann Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Sjá meira