Vilja geta frestað kosningum 12. júlí 2004 00:01
Bandaríska heimavarnaráðuneytið hefur farið þess á leit við dómsmálaráðuneytið að það athugi hvernig megi seinka forsetakosningunum í haust ef hryðjuverk verða framin um það leiti sem kosningarnar eiga að fara fram. Óttast menn að hryðjuverkamenn láti til skarar skríða til að hafa áhrif á úrslit kosninganna. Engar heimildir er að finna í lögum fyrir því að fresta kosningum. Nú bregður svo við, í kjölfar viðvarana um hugsanlegar árásir, að Tom Ridge, heimavarnaráðherra Bandaríkjanna, hefur farið þess á leit við dómsmálaráðuneytið að það úrskurði hvaða lagalegu skilyrði þurfi að uppfylla til að fresta megi kosningum ef til árása kemur. Frá þessu er greint í nýjasta tölublaði vikuritsins Newsweek. Þar segir jafnframt að DeForest B. Soaries yngri, yfirmaður nefndar sem sér um aðstoð við framkvæmd kosninga, hafi farið þess á leit við Ridge að hann fari fram á það við þingið að það samþykki lög sem veiti heimild til að fresta kosningum við ákveðnar aðstæður. Þrátt fyrir mörg stríð hefur það aldrei gerst að forsetakosningum hafi verið frestað í Bandaríkjunum. Forsetakosningar fóru fram meðan á stríði Breta og Bandaríkjamanna stóð árið 1812 en það sama ár kveiktu Bretar í höfuðborginni Washington. 1864 var forseti kjörinn þrátt fyrir að mannskætt borgarastríð stæði yfir. Forkosningum sem halda átti í New York 11. september 2001 var frestað vegna hryðjuverkaárásanna sama dag. Hugmyndir um að fresta kosningum ef til árása kemur hafa vakið blendin viðbrögð þingmanna. "Ég held ekki að það sé hægt að færa rök fyrir því að fresta kosningum í fyrsta sinn í sögunni," sagði demókratinn Dianna Feinstein í viðtali við CNN. Í viðtali við sama fjölmiðil sagði repúblikaninn Christopher Cox hins vegar rétt að vera við öllu búinn.
Erlent Fréttir Mest lesið Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Leita í rústum íbúðahúsa Erlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Fleiri fréttir Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Sjá meira