Spá því að stjórnin haldi 4. júlí 2004 00:01
Forystumenn stjórnarandstöðunnar telja að Framsóknarflokknum standi betri vist til boða í ríkisstjórn en með Sjálfstæðisflokknum. Þeir reikna þó ekki með því að framsóknarmenn slíti stjórnarsamstarfinu. Í þætti Arnþrúðar Karlsdóttur á Bylgjunni í dag taldi Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, að Framsóknarflokkurinn hefði hvað eftir annað gleypt við hverju vandræðamálinu á eftir öðru frá sjálfstæðismönnum og við slíkar aðstæður yrði tíð Halldórs Ásgrímssonar, sem forsætisráðherra með sjálfstæðismönnum, samfelld píslarganga. Hann benti á að Halldór ætti fleiri möguleika; til væri önnur vist í ríkisstjórn en með sjálfstæðisflokki. Össur telur framtíðina verða ríkisstjórninni mjög þungbæra því flokkarnir tveir eigi eftir að rífast um svo margt. Þeir eigi eftir að reyna að leiða þetta mál til lykta, takast á um skattamálin, heilbrigðismálin og menntamálin. Össur telur þó ekkert benda til að framsóknarmenn söðli um og biðli til stjórnarandstöðuflokkanna, og undir það tekur Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna. Hann segir Framsóknarflokkinn vera búinn að borga svo mikið inn á 15. septmeber að þeir muni „ekki afskrifa það allt saman bara út af þessu máli. Hins vegar kann vel að vera að þeir nái að slá nýtt met í undirlægjuhætti gagnvart Sjálfstæðisflokknum,“ segir Steingrímur. Hann spáir því að stjórnarsamstarfið hangi saman á löngun stjórnarliða til að sitja í valdastólum. Ekki náðist í Guðjón A. Kristjánsson, formann Frjálslynda flokksins, þar sem hann heldur nú upp á sextugsafmæli sitt á Vesturfjöðum.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Fréttir John Alford fannst látinn í fangelsinu Erlent „Skapaði mikla ringulreið hjá okkur og við erum hrædd“ Innlent Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Erlent Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Erlent Hellisheiði er lokuð Innlent Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Innlent Snjóflóð þveraði veginn þegar opið var fyrir umferð Innlent Vildu helst Asíubúa í flug til Grænlands Innlent Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent Fleiri fréttir Stakar styrkveitingar taldar með í upptökutölfræðinni Hellisheiði er lokuð „Skapaði mikla ringulreið hjá okkur og við erum hrædd“ „Við erum ekki hrædd“ Vilja rauðvín á föstudögum á Selfossi Ferðalangar í vandræðum víða um land vegna færðar Uppnám á flugvellinum og fyrsti kvenkyns keppandinn Handtekinn á sjöunda tímanum í gær grunaður um ölvunarakstur Stríð, þjóðaratkvæðagreiðsla og stafræn heilbrigðisþjónusta Snjóflóð þveraði veginn þegar opið var fyrir umferð Nemendur MR afhentu rektor undirskriftalista Reyndu að vísa manninum í burtu en það gekk ekki Vildu helst Asíubúa í flug til Grænlands Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Tollmiðlari í stafni S-listans í Hveragerði Kosningar hafnar um sameiningu hreppanna Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Pítsan sem kostaði 7.740 krónur „Þetta er ekkert grín“ Eyþór leiðir en vill ekki stólinn Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Gestir geti spókað sig í þjóðbúningi á samstöðufundi Ótrúlegt að ekki hafi orðið mannslát og óþolandi sóun raforku Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Stórt snjóflóð við Siglufjörð og veginum lokað Ákvörðunin stærri en núverandi ríkisstjórn Sjá meira