Sport

Sigurður ánægður með Belgaleikina

Sigurður Ingimundarson, landsliðsþjálfari í körfubolta, var ánægður með útkomuna úr landsleikjunum þremur gegn Belgum um helgina. "Ég er nokkuð sáttur með niðurstöðuna úr þessum þremur leikjum og gott fyrir okkur að vinna þetta lið, því þeir eru í A-riðli Evrópu en við í B-riðli. Það má alveg segja að við höfum fengið að vita það sem við þurftum að vita eftir þessa leiki og með mikilli vinnu tekst okkur að komast þangað sem við ætlum okkur." Sigurður segir stefnuna vera setta á að komast upp í A-riðil Evrópu en þar eru 25 bestu landslið álfunnar: "Það yrði auðvitað frábær árangur og við vitum vel að það hefst ekki nema með mikilli vinnu allra sem að liðinu koma en það er alveg mögulegt," sagði Sigurður og bætti við. "Ég er einna ánægðastur með hvað líkamlegt atgervi leikmanna okkar er alltaf að batna og því er auðveldara að spila góðan varnarleik en skortur á hæð og styrk hefur oft háð íslenska landsliðinu." Sigurður hefur breytt nokkuð leikstíl liðsins og það spilar hraðari bolta en áður. "Ég vil láta liðið spila hratt og finnst það að mörgu leyti henta því vel og þetta er eitthvað sem ég er að vinna í á fullu. Margir leikmenn voru að koma vel út í leikjunum gegn Belgum, menn voru að vísu flestir að spila misvel eins og gengur en það var gaman að sjá til Hlyns Bæringssonar og fleiri og ég sé enga ástæðu til annars en að vera bjartsýnn," sagði Sigurður Ingimundarson en næstu leikir íslenska landsliðsins eru þegar Pólverjar koma í heimsókn í ágústbyrjun. Hlynur Bæringsson fór mikinn í liði Íslands í leikjunum eins og sjá má vel á töflunum yfir efstu menn liðsins í tölfræðinni. Hlynur skoraði mest, hitti best, tók flest fráköst og gaf flestar stoðsendingar en þetta voru fyrstu landsleikir hans þar sem hann fær eitthvað hlutverk með liðinu. Auk Hlyns voru þeir Helgi Már Magnússon og Magnús Þór Gunnarsson að sýna góða takta og Friðrik Stefánsson og Fannar Ólafsson voru traustir í baráttunni undir körfunum. Mikið var búist af þeim Páli Axeli Vilbergssyni og Jakobi Erni Sigurðarsyni en þeir náðu ekki að sýna sitt rétta andlit fyrr en í síðasta leiknum þar sem þeir áttu stóran þátt í að landa sigrinum. Leikirnir við Belga.1. leikur Ísland-Belgía 78-88 Arnar Freyr Jónsson 13 stig Hlynur Bæringsson 12 stig  2. leikur Ísland-Belgía 74-78 Helgi Már Magnússon 16 stig Fannar Ólafsson 13 stig 3. leikur Ísland-Belgía 77-76 Hlynur Bæringsson 23 stig Páll Axel Vilbergsson 16 stig Topplistar hjá íslenska landsliðinu gegn Belgum:  Flest stig Hlynur  Bæringsson       43 Páll Axel Vilbergsson     32 Helgi Már Magnússon     27 Friðrik E. Stefánsson       24 Fannar Ólafsson            24 Flest fráköst:  Hlynur Bæringsson        29 Helgi Már Magnússon     13 Friðrik E. Stefánsson       11 Fannar Ólafsson            10 Arnar Freyr Jónsson       9 Flestar stoðsendingar: Hlynur Bæringsson        11 Jakob Örn Sigurðarson   7  Páll Axel Vilbergsson     6 Helgi Már Magnússon     6 Friðrik Stefánsson          5 Fannar Ólafsson            5 Arnar Freyr Jónsson       5 Flestir stolnir boltar: Páll Axel Vilbergsson     7 Hlynur Bæringsson        6 Helgi Már Magnússon     6 Magnús Þór Gunnarsson            5 Mínútur spilaðar: Hlynur Bæringsson        90 Friðrik Stefánsson          76 Páll Axel Vilbergsson     71 Helgi Már Magnússon     66 Jakob Örn Sigurðarson   61 Magnús Þór Gunnarsson            53 Fannar Ólafsson            53 Arnar Freyr Jónsson       42 Sigurður Þorvaldsson      28 Páll Kristinsson 27 Eiríkur Önundarson        14 Jón Nordal Hafsteinsson 13 Lárus Jónsson   6 Flestar villur: Arnar Freyr Jónsson       11 Jakob Örn Sigurðarson   10 Friðrik Stefánsson          10 Hlynur Bæringsson        9 Fannar Ólafsson            9 Flestar þriggja stiga körfur: Páll A. Vilbergsson         6 Hlynur Bæringsson     6 Helgi M. Magnússon       5 Magnús Þ. Gunnarsson   4 Flest sóknarfráköst: Hlynur Bæringsson        9 Friðrik Stefánsson          4 Páll Kristinsson 3 Páll Axel Vilbergsson     3 Helgi Már Magnússon     3 Fannar Ólafsson            3



Fleiri fréttir

Sjá meira


×