Sport

21 mark í 29 leikjum hjá Baros

Tékkar komust í undanúrslit Evrópumótsins í knattspyrnu í gær með því að sigra Dani með þremur mörkum gegn engu. Hetja Tékka var hinn 22 ára Milan Baros en hann skoraði tvívegis og lagði upp þriðja markið sem Jan Köller skoraði. Baros segist nú staðráðinn í því að berjast fyrir sæti sínu í Liverpool-liðinu á næstu leiktíð en Baros skoraði aðeins eitt mark í úrvalsdeildinni á nýafstaðinni leiktíð. Hann hefur hins vegar skorað 5 mörk á Evrópumótinu, fleiri en nokkur annar. Milan Baros er búinn að skora 21 mark með landsliði Tékka í 29 leikjum en mörkin hans með Banik Ostrava í Tékklandi og Liverpool á fimm árum eru aðeins 33. Daninn Ebbe Sand tilkynnti í morgun að leikurinn við Tékka hefði verið síðasti landsleikur hans. Ebbe Sand skoraði 22 mörk í 66 leikjum með danska landsliðinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×