Innlent

Lokar fyrir flugumferð

Reynt verður að ná Dornier flugvél Íslandsflugs, sem magalenti á Siglufjarðarflugvelli í fyrrakvöld, af flugbrautinni í dag, en hún lokar fyrir flugumferð um völlinn. Í ljós er komið að vélin er mun meira skemmd en talið var í fyrstu og er tryggingafélag vélarinnar að meta hvort það borgi sig að gera við hana, eða dæma hana ónýta. Vélin verður væntanlega flutt sjóleiðina til Reykjavíkur. Ekki liggur enn fyrir hvað olli því að vélin lenti með hjólin uppi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×