Geta gert þeim grikk 24. júní 2004 00:01 "
Við höfum náð lengra en okkur dreymdi nokkurn tíma um fyrir mótið og við höfum engu að tapa gegn Frökkum. Nákvæmlega engu," segir Otto Rehhagel, þjálfari Grikklands, sem mæta Frökkum í öðrum leik 8-liða úrslita EM í kvöld. Ekki er búist við því að Grikkir nái að valda Frökkum miklu skráveifum, enda mikill getumunur á liðunum samkvæmt pappírunum. Rehhagel segir það hinsvegar telja lítið í stórmótum. "Við vitum að Frakkar hafa marga af allra besut leikmönnum Evrópu, en við munum gera okkar besta. Lykillinn er að við náum að stjórna leiknum á miðjunni til að ná niður hraðanum í leik Frakka," segir Reehagel. Kollegi hans hjá Frökkum, Jacques Santini, segir alla gagnrýnina sem franska liðið fékk fyrir frammistöðu sína í riðlakeppninni vera út í hött, og að væntingarnar sem gerðar séu til liðsins séu veruleikafirrtar. "Ég hlusta ekki á þá sem segja að ég hefði átt að gera þetta eða hitt. Við urðum í efsta sæti okkar riðils með sjö stig. Aðeins Tékkar gerðu betur. Allir sögðu að við hefðum verið heppnir á móti Sviss og að við hefðum eðlilega átt að vinna 5-0. Þetta er ekki bara rugl, heldur líka mógðun gagnvart Svisslendingum. Þeir eru með gott lið, en við unnum þá samt 3-1," segir Santini ósáttur. Rætt er um að Santini ætli sér að hvíla einhverja af lykilmönnum sínum gegn Grikkjum - svo sigurviss sé hann. Louis Saha er talinn líklegur til að leysa af David Trezeguet í framlínunni, en Santini er sagður vilja halda Thierry Henry í liðinu því hann þurfi á fleiri mörkum að halda fyrir sjálfstraustið. Saha, sem átti fína innkomu gegn Sviss og lagði meðal annars upp mark, segir Henry vera rétt að byrja í keppninni. "Honum mun líða mun betur inni á vellinum núna eftir að hann hefur brotið ísinn. Hann á eftir að skora þau nokkur í viðbót;" segir Saha. Santini er í nokkrum vandræðum með uppstillinguna fyrir leikinn, en í ljós hefur komið að bakvörðurinn Willy Sagnol er handleggsbrotinn og verður ekki meira með. Þá eru William Gallas og Patrick Viera einnig tæpir og er ekki víst að Santini vilja taka þá áættu á að láta þá spila gegn minni spámönnum á borð við Grikki. Þýðir það að Santini verður líklega knúinn til að setja Marcel Desailly í vörnina, en hann virðist vera kominn á síðasta snúning í boltanum og hefur ekki átt gott mót. Grikkir eru bettir settir hvað varðar leikmenn og fá aftur Giorgos Karagounis á miðjunna, en hann var í leikbanni gegn Rússum og var sárt saknað. Hann segir öll lið eiga möguleika á Evrópumeistaratitilinum, og að þar séu Grikkir engin undantekning. "Ef þú ferð inn í leik hugsandi það að þú eigir engan möguleika á sigri, þá muntu tapa. Fótbolti hefur breyst mikið síðustu ár og það er ekki svo mikil munur á milli liða. Pressan er á Frökkum, þeir þurfa að sanna að þeir eigi heima á meðal þeirra stóru á meðan það er engin skömm fyrir okkur að falla úr leik fyrir ríkjandi Evrópumeisturum," segir Karagounis
Íslenski boltinn Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn „Mér fannst við ekki góðir“ Íslenski boltinn Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Fótbolti Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn Íslenski boltinn „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Oliver til FH Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Smáþjóðin úr leik á HM en Pépé sendi Fílabeinsströndina áfram Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn „Mér fannst við ekki góðir“ Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Veit ekki hvort Haaland var að grínast Anton Ingi ráðinn þjálfari dansks félags Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Guðrún eftirlét Thelmu og Fanneyju toppsætið fyrir sumarfríið Onana aftur að láni frá Man. Utd Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Tómas Bent kominn með nýjan stjóra Oliver til FH „Alltaf skemmtilegt að taka á móti Víkingum heima“ Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Portúgalar gætu farið tvær mjög ólíkar og miserfiðar leiðir á HM Yngstur til að byrja leik á HM í 24 ár Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Fékk fimm leikja bann fyrir að valda fótbroti Kone Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Krakkarnir fögnuðu eins og Ronaldo á Norðurálsmótinu Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Óþekkti markvörðurinn kominn með fleiri fylgjendur en Tom Brady Maður dagsins á HM: „Það var ekki ég sem uppgötvaði Vini Jr.“ Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Sjá meira