Innlent

Mannabreytingar í Hæstarétti

Miklar breytingar eru fyrirsjáanlegar í Hæstarétti á næstu árum. Einn dómari á besta aldri hefur tilkynnt að hann ætli að láta af störfum og þrír aðrir eru að komast á aldur. Í Hæstarétti sitja níu dómarar. Pétur Kr. Hafstein hefur nú lýst því yfir að hann ætli að láta af störfum 1.október og verður staða hans væntanlega auglýst á næstunni. Hæstaréttardómarar geta setið í embætti þar til sjötugsaldri er náð. Þá geta þeir hætt sextíu og fimm ára og haldið fullum eftirlaunum og fyrir því eru mörg fordæmi. Sumir kjósa svo að hætta fyrr og halda hluta eftirlauna líkt og Pétur Kr. Hafstein. Af þeim átta sem eftir eru eru þrír að komast á aldur. Guðrún Erlendsdóttir er þeirra elst eða 68 ára, næstur kemur Hrafn Bragason sem er 66 ára og Garðar Gíslason sem er 62 ára. Ekkert þeirra hefur gefið út þá yfirlýsingu að þau hyggist láta af störfum. Staða Péturs Kr Hafstein verður væntanlega auglýst í sumar og Dómsmálaráðherra skipar svo í stöðuna eftir umsögn Hæstaréttar. Ólafur Börkur Þorvaldsson var síðast skipaður í embætti, en þar á undan í þessari röð Ingibjörg Benediktsdóttir, Árni Kolbeinsson, Gunnlaugur Claessen, Markús Sigurbjörnsson og Pétur Kr sem nú er að hætta. Sjö sóttu um stöðuna sem Ólafur Börkur Þorvaldsson fékk í fyrra: héraðsdómararnir Hjördís Hákonardóttir, Eggert Óskarsson og Allan Vagn Magnússon; hæstaréttarlögmennirnir Ragnar H. Hall, Jakob R. Möller og Sigrún Guðmundsdóttir, og Eiríkur Tómasson lagaprófessor. Eftir stöðuveitingunni urðu til kærumál og dómsmálaráðherra fékk bágt fyrir, bæði hjá Umboðsmanni alþingis og kærunefnd jafnréttismála. Það er því spennandi að sjá hvort þeir sem urðu svekktir frá að hverfa, sæki um aftur nú. Þá hafa fleiri verið orðaðir við Hæstarétt, meðal annars Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður en hann hefur aldrei sótt um slíka stöðu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×