Innlent

Endurbætur Reykjanesbrautar

Framkvæmdir eru að hefjast við endurbætur á Reykjanesbraut í gegnum Hafnarfjörð en Ístak átti lægsta tilboð: 533 milljónir króna. Lækjargötu í Hafnarfirði verður lokað frá og með næsta þriðjudegi en tvöfalda á Reykjanesbraut frá Lækjargötu að Kaplakrika og á verkinu að vera lokið fyrir 1. nóvember, innan fimm mánaða. Þá verða gerð tvö hringtorg, annað við Lækjargötu en hitt við Flatahraun. Hætt var við að gera mislæg gatnamót við Kaplakrika og verða þau áfram ljósastýrð en Vegagerðin telur að þannig geti þau þjónað umferðinni næstu tíu til fimmtán ár.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×