Kosið um lögin í byrjun ágúst 12. júní 2004 00:01
Alþingi verður kallað saman mánudaginn 5. júlí þar sem ákveðið verður fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslu um fjölmiðlalögin. Þjóðaratkvæðagreiðslan mun fara fram í byrjun ágúst. Þetta kom fram í máli Davíðs Oddssonar að loknum samráðsfundi með formönnum allra stjórnmálaflokkanna í gær. Skipuð hefur verið nefnd fjögurra hæstaréttarlögmanna til að undirbúa frumvarp um lög um þjóðaratkvæðagreiðslu. Í henni sitja Karl Axelsson, lektor við lagadeild Háskóla Íslands, formaður hópsins, Andri Árnason, Jón Sveinsson og Kristinn Hallgrímsson. Auk þeirra er Kristján Andri Stefánsson í nefndinni af hálfu forsætisráðuneytisins. Fundurinn var haldinn samkvæmt ósk formanna stjórnarandstöðuflokkanna. Hann stóð stutt yfir og lauk með því að forsætisráðherra sleit fundinum. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar sögðu að fundi loknum að fundurinn hefði verið sýndarmennska ein, ekki hafi verið ætlun formanna stjórnarflokkanna að hafa samráð við stjórnarandstöðu. Forsætisráðherra hafi rokið upp og slitið fundi þegar stjórnarandstaðan hóf að ræða um að ekki ætti að setja lög um lágmarksþátttöku í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Aðspurður sagði forsætisráðherra að ekki hefði verið um ágreining að ræða á fundinum: "Kannski hegðunarvandamál, ekkert annað. Forystumenn stjórnarflokkanna vildu ekki ganga til þessa fundar með því að menn byrjuðu á því að setja skilyrði þeim aðilum sem við vorum að tala við. Við töldum að Ögmundur Jónasson hafi þegar í upphafi byrjað að setja þau skilyrði sem ætti að vinna eftir, hvað mætti gera og hvað mætti ekki gera. Það er okkar skoðun að það væri ekki farsælt fyrir samráð og samstarf að annar aðilinn setti þau skilyrði að hann fengi að ráða þessu öllu saman," sagði Davíð. Hann sagði að samstaða hafi þó verið um hvenær kalla ætti þingið saman. "Ekki þótti skynsamlegt að kalla þingið saman í júní vegna þess að í fyrsta lagi er nú 17. júní framundan og þinghúsið er eins og það er og síðan eru forsetakosningar, það myndi trufla þær," sagði Davíð. Hann sagði að ekki væri stefnt á að setja bráðabirgðalög um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar en líklega myndi það taka þingið viku til tíu daga að afgreiða málið. Hann sagði áætlaðan kostnað við þjóðaratkvæðagreiðsluna á bilinu 100-200 milljónir króna. Ekki væri ætlunin að Alþingi veiti peninga til stjórnmálaflokkanna til kynningar á frumvarpinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira