Sameining á Héraði staðfest 24. ágúst 2004 00:01
Félagsmálaráðurneytið hefur staðfest sameiningu Austur-Héraðs, Fellahrepps og Norður-Héraðs í eitt sveitarfélag. Sveitarstjórnir sveitarfélaganna þriggja hafa nú þegar hafið vinnu við þau fjölmörgu verkefni sem snúa að sameiningunni en ný sveitarstjórn mun taka við völdum 1. nóvember næstkomandi að því er segir í frétttatilkynningu. Í tilkynningunni segir að með sameiningunni sé orðið til öflugt sveitarfélag með fjölbreytta möguleika til búsetu. Sveitarfélagið er annað fjölmennasta sveitarfélag á Austurlandi, miðað við mannfjöldatölur 1. desember síðastliðinn, með tæplega 3000 íbúa.Um mitt þetta ár eru íbúarnir hinsvegar um 3400 ef tekið er tillit til þeirra erlendu starfsmanna sem starfa við virkjanaframkvæmdir í sveitarfélaginu. Um 2000 manns búa á Egilsstöðum og í Fellabæ sem við sameininguna verður stærsti þéttbýliskjarni á Austurlandi. Þar er öflugt framboð verslunar og þjónustu og þar tengjast leiðir innan sveitarfélagsins og til annarra svæða á Austurlandi. Sveitarfélagið afmarkast af Biskupshálsi í vestri, Héraðsflóa í norðri, Austfjarðafjallgarði í austri og Vatnajökli og Öxi í suðri. Þéttbýlið styður sterk byggð í dreifbýlinu með blómleg landbúnaðsvæðiog smærri þjónustukjarna en með sameiningunni er orðið til mjög víðfemt sveitarfélag sem er með þeim landmestu á Íslandi. Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga í sameinuðu sveitarfélagi rennur út kl. 12 á hádegi laugardaginn 25. september. Kjörskrár vegna kosninganna munu liggja frammi almenningi til sýnis frá og með miðvikudeginum 6. október til og með föstudagsins 15. október. Til nýrrar sveitarstjórnar verður kosið laugardaginn 16. október og samhliða sveitarstjórnarkosningunum verður gerð skoðanannakönnun um nafn á nýju sveitarfélagi
Fréttir Innlent Mest lesið Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent „Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Innlent „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Innlent Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Innlent Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni Innlent Níu í haldi fyrir að smygla yfir hundrað kílóum af kókaíni í sjókistu Innlent Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Innlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Gómaður með tæp sextíu kíló af amfetamíni og „bleikt kókaín“ Innlent Fleiri fréttir Vegum lokað og bílar taldir Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Stærsta kókaínmál Íslandssögunnar og ráðherra sakar starfsmenn Hvals um fíflaskap Lokaeinkunnirnar vísbending um ósamræmda einkunnagjöf Komu slösuðum til bjargar í Drangey Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni Tímamót hjá Klettaskóla: „Allir mjög peppaðir“ Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Gómaður með tæp sextíu kíló af amfetamíni og „bleikt kókaín“ Níu í haldi fyrir að smygla yfir hundrað kílóum af kókaíni í sjókistu Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Traust til íslenskra yfirvalda sagt fara vaxandi Synjun Suðurlandsbrautar gæti tafið fyrstu lotu Borgarlínu „Þú verður að hafa stjórn á tækninni sem þú nýtir“ Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Aðalmeðferð að ljúka í Edition málinu og sextán ára fangelsis krafist Hótanir nægi ekki til að bregðast við utan landhelgi Fara fram á sextán ár yfir Ming: „Ásetningur hennar var kaldur og grimmur“ Dræm laxveiði: „Menn spá ekki nema spáin sé góð“ Tvö hundruð prósent fleiri tilkynningar um vændi „Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar Lýsa yfir þungum áhyggjum af notkun gervigreindar við tónlistarsköpun Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Með kylfur og mikið magn vímuefna Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Sjá meira