Sport

Ótrúlegur leikur

Holland og Tékkland buðu áhorfendum upp á einn magnaðasta knattspyrnuleik sem spilaður hefur verið fyrr og síðar í kvöld þegar liðin áttust við í B-riðli EM. Lokatölurnar urðu 3–2 Tékkum í vil og skoraði Vladimir Smicer sigurmarkið á 87. mínútu leiksins. Með sigrinum tryggðu Tékkar sér sæti í 8-liða úrslitum, fyrst allra liða á EM.Leikurinn var stanslaust fjör frá upphafi til enda og boðið var upp á allt sem knattspyrnuleikur getur mögulega gert; sóknarleik af bestu gerð frá upphafi til enda, ótrúlegan hraða, fimm mörk, rautt spjald, dramatík og guð má vita hvað. Hollendingar byrjuðu betur og komust í 2-0 með mörkum frá Wilfred Bouma og Ruud Van Nistelrooy. En mögnuð endurkoma Tékka hófst með frábærum mörkum frá Jan Koller og Milan Baros og hún var síðan fullkomnuð með áðurnefndu marki Smicers. Það voru taktísk mistök hjá Dick Advocaat, þjálfara Hollands, í stöðunni 2–1 sem komu Tékkum inn í leikinn á ný, en þá tók hann vængmanninn Ariel Robbin af leikvelli og freisti þess að halda fengnum hlut. Sú breyting gekk engan veginn upp en úr varð einhver eftirminnilegasta endurkoma í einhverjum besta knattspyrnuleikja allra tíma. „Annað mark þeirra virkaði sem köld sturta á liðið og vakti okkur. Bæði þessi lið vilja spila sóknarbolta. Það var æðislegt að spila þennan leik og ábyggilega líka að horfa á hann. Leikurinn náði aldrei að róast," sagði Pavel Nedved, fyrirliði Tékka. „Ég tók Robben útaf því þeir voru að fá of mikið pláss á miðjunni. Fólk talar um mín mistök en hvað með öll færin sem misfórust," spurði Advocaat í leikslok.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×