Innlent

Sjómenn styðja forystuna

Áhöfn Þerneyjar RE-101 lýsir fullum stuðningi við forystu samtaka sjómanna í svokölluðu Sólbaksmáli, sem og í öðrum málum, að því er fram kemur í tilkynningu frá áhöfninni. Í henni segjast sjómennirnir eiga erfitt með að skilja málflutning útgerðarmanna um annað. "Einnig furðum við okkur á því að útgerðarmenn sem nýta auðlind allra landsmanna svo til frítt séu farnir að selja sjómönnum pláss á skipum sínum í skiptum fyrir lögbundna samninga þeirra," segir í tilkynningunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×