Innlent

Oriana kemst í höfn

Eitt stærsta skemmtiferðaskip heims, Oriana, neyddist til að sigla út úr ytri höfninni í Reykjavík í dag vegna hvassviðris. Síðdegis var ákveðið að það legðist að bryggju í Sundahöfn til að unnt yrði að koma farþegunum aftur um borð. Oriana, sem er 69 þúsund tonn að stærð og 260 metrar á lengd, kom inn á ytri höfnina klukkan sjö í morgun og voru farþegarnir sendir í land á léttbátum skipsins. Um hádegisbil var orðið það hvasst að ekki þótti þorandi að hafa skipið á ytri höfninni og var því siglt út Faxaflóa. Um 1400 farþegar skipsins voru hins vegar komnir í land og komust ekki út í skipið aftur. Þeir voru því strandaglópar í landinu. Ekki þótti gerlegt að láta bátana ferja farþegana út aftur. Síðdegis var gripið til þess ráðs að sigla skipinu inn í Sundahöfn en svo vel vildi til að ekkert flutningaskip var þá við lengsta viðlegukantinn í gámahöfninni. Þangað sigldi Oriana inn um fimmleytið og telja kunnugir að þetta sé stærsta farþegaskip sem lagst hafi að landi hérlendis. Gert var ráð fyrir að það sigli frá Reykjavík með alla farþega og áhöfn, alls 2000 manns, um kvöldmatarleytið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×