Innlent

Olíubirgðastöð í Neskaupstað

Nýtt olíudreifingarfyrirtæki ætlar að reisa olíubirgðastöð í Neskaupstað og hefja starfsemi á árinu. Þjónustan mun einskorðast við skip og býst framkvæmdastjórinn við að fyrirtækinu takist að bjóða lægra verð en þau félög sem fyrir eru á markaðnum. Fyrirtækið heitir Íslensk olíumiðlun ehf. og er til helminga í eigu danska fyrirtækisins Malik Supply sem hefur einkum sérhæft sig í sölu á olíu til skipa úti á rúmsjó, og Ólafs Þorsteins Kjartanssonar. Ólafur sagði í samtali við Stöð 2 að stefnt væri að því að hefja starfsemi seint á þessu ári. Fyrirtækið hefur fengið lóð í Neskaupstað og verður þar byggður 4000 tonna olíutankur. Ólafur segir höfnina í Neskaupstað mjög góða og til standi að gera hana enn betri og þar sé mikil skipaumferð þannig að sú staðsetning henti fyrirtækinu best. Þá hafi bæjaryfirvöld eystra sýnt mikinn samstarfsvilja. Íslensk olíumiðlun fær sína olíu frá Malik Supply sem nýtur mjög góðra kjara vegna mikilla viðskipta og því er hann bjartsýnn á að Íslenskri olíumiðlun takist að bjóða útgerðum lægra verð en félögin, sem eru fyrir á markaðnum, bjóða. Einnig muni heimsmarkaðsverð á olíu endurspeglast í verðlagningu fyrirtækisins, þ.e.a.s. allar hækkanir og lækkanir munu koma strax til framkvæmda. Þá segir hann menn ekki síður vera að horfa til erlendra skipa sem hingað koma til að landa.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×