Geir aðstoðar ekki Viggó 8. október 2004 00:01
Geir Sveinsson mun ekki verða aðstoðarmaður Viggós Sigurðssonar hjá íslenska landsliðinu í handbolta en bæði Viggó og forysta HSÍ sóttist fast eftir því að Geir tæki starfið. Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari staðfesti þetta í samtali við Fréttablaðið í gær og sagði að hann myndi hefja leit að aðstoðarmanni nú þegar. Geir sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að það hefði læðst að honum sá grunur þegar hann ræddi við forystu HSÍ fyrr í vikunni að Viggó hefði alltaf verið fyrsti kostur því honum var boðin aðstoðarþjálfarastaðan á þeim fundi. "Ég kom inn í þessar viðræður með það fyrir augum að ég væri að fara ræða um landsliðsþjálfarastarfið en þegar á reyndi var sennilega eingöngu verið að bjóða mér starf aðstoðarmanns. Ég ákvað að hugsa það boð en eftir blaðamannafundinn á fimmtudaginn þegar Viggó var kynntur sem landsliðsþjálfari þá hvarf áhuginn smá saman. Ég vil taka það fram að ég er ekki svekktur yfir því að hljóta ekki starfið. Viggó er mjög hæfur þjálfari og hann á þetta fyllilega skilið," sagði Geir og bætti því við að hann myndi aldrei aftur þjálfa félagslið á Íslandi. "Ég brann út á fjórum árum í þessu síðast og ætla mér ekki að gera það aftur. Ef menn hafa metnað þá er þetta full vinna fyrir lágmarkslaun því að það er ekki litið á þetta sem fulla vinnu. Það nennir enginn að standa í þessu til lengdar," sagði Geir sem viðurkenndi að landsliðið væri eina liðið sem hann gæti hugsað sér að þjálfa á Íslandi.
Íþróttir Mest lesið Endurnýja kynnin: „Stórar skoðanir en ekki endilega góðar skoðanir“ Golf Dæmdur ofbeldismaður keppir á Opna breska í ár Golf Körfuboltakvöld í Boston: Nablinn tók viðtal við Ice Cube og sættist við Pargo Körfubolti Getur verið erfitt að kveðja: „Það var aðeins grátið“ Sport Gæti fengið átta milljarða króna Formúla 1 Skærasta stjarna Sviss fær lítið að spila á EM en allir vilja hitta hana Fótbolti Náðu ekki að bjarga lífi nítján ára vonarstjörnu Sport Caitlin Clark aftur meidd og vandaði dómaranum ekki kveðjurnar Körfubolti Yamal tekur óhræddur við tíunni Fótbolti Nýir erlendir leikmenn halda áfram að streyma í botnliðið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stelpurnar réðu ekki við þær serbnesku Messi fékk skell sama kvöld og fréttist af komu „lífvarðarins“ Nýir erlendir leikmenn halda áfram að streyma í botnliðið Náðu ekki að bjarga lífi nítján ára vonarstjörnu Getur verið erfitt að kveðja: „Það var aðeins grátið“ Körfuboltakvöld í Boston: Nablinn tók viðtal við Ice Cube og sættist við Pargo Skærasta stjarna Sviss fær lítið að spila á EM en allir vilja hitta hana Erlangen staðfestir komu Andra Endurnýja kynnin: „Stórar skoðanir en ekki endilega góðar skoðanir“ Gæti fengið átta milljarða króna Yamal tekur óhræddur við tíunni Dæmdur ofbeldismaður keppir á Opna breska í ár Dagskráin í dag: Golf og snóker og snóker og golf Caitlin Clark aftur meidd og vandaði dómaranum ekki kveðjurnar Biðin eftir Meistaravöllum styttist um einn dag Bradley Beal til Clippers Eyjakonur gjörsigruðu Gróttu Bellingham í aðgerð á öxl og missir af næstu landsleikjum Arnar Grétarsson tekinn við Fylki Grænt ljós á golfmótið þrátt fyrir gos Ítalía í undanúrslit í fyrsta sinn síðan 1997 Þúsund hjólareiðakappar þeysa um hálendið um helgina Grétar kveður Frakkland og fer til Grikklands Eigendur Burnley eignast hitt liðið í Barcelona „Þetta var bara byrjunin“ Hetjudáðir gegn Íslandi tryggðu henni sæti í byrjunarliðinu í kvöld Norskur ólympíumedalíuhafi látinn eftir að eldingu laust í höfuð honum Íslensku strákarnir töpuðu stórt í sextán liða úrslitunum Liverpool reynir líka við Ekitike Vilja hefja golfmótið á morgun: „Látum þetta ekki á okkur fá“ Sjá meira