KA-menn áfram í bikarnum 3. júlí 2004 00:01
KA-menn tryggðu sér í dag sæti í átta liða úrslitum VISA-bikars karla í knattspyrnu með því að leggja Víking að velli, 4-2, í leik liðanna í Víkinni. Fyrri hálfleikur er með þeim fjörugri sem sést hafa í íslensku knattspyrnunni á þessu tímabili, fimm mörk litu dagsins ljós og eitt var dæmt af vegna rangstæðu. Víkingar fengu draumabyrjun en Viktor Bjarki Arnarsson skoraði strax á 5. mínútu. Viktor Bjarki fékk boltann um 25 metra frá marki KA-manna og þrumaði boltanum í stöngina og inn án þess að Sandor Matus, markvörður KA-mann hreyfði legg né lið. Pálmi Rafn Pálmason jafnaði metin fyrir KA-menn á 14. mínútu en hann lék þá Sölva Geir Ottsen, varnarmann Víkinga, grátt áður en hann renndi boltanum framhjá Martin Trancik, markverði Víkinga. Pálmi Rafn var síðan aftur á ferðinni fimm mínútum en þá nýtti hann slæm mistök í vörn Víkinga og skoraði með þrumuskoti frá vítateig. Víkingar gáfust þó ekki upp og jöfnuðu metin á 24. mínútu. Þá var brotið á Hauki Armin Úlfarssyni innan vítateigs, vítaspyrna var dæmd og úr henni skoraði Daníel Hjaltason af öryggi. Hinn marksækni Atli Sveinn Þórarinsson kom KA-mönnum aftur yfir á 31. mínútu með fallegu marki og einni mínútu síðar var mark sem Víkingurinn Grétar Sigurðsson skoraði dæmt af vegna rangstæðu. Í síðari hálfleik færðist meiri ró yfir leikinn og Jóhann Þórhallsson gulltryggði sigur KA-manna þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka eftir að hann komst einn í gegnum vörn Víkinga sem var sofandi einu sem oftar í leiknum. Víkingur - KA 2-4 1-0 Viktor Bjarki Arnarsson (5.), 1-1 Pálmi Rafn Pálmason (14.), 1-2 Pálmi Rafn Pálmason (19.), 2-2 Daníel Hjaltason, víti (24.), 2-3 Atli Sveinn Þórarinsson (31.), 2-4 Jóhann Þórhallson (70.)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Fótbolti Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Enski boltinn Fótboltamaður drukknaði Fótbolti Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Enski boltinn Lyon krækir í leikmann Liverpool Enski boltinn Patrick: Léttir að sjá boltann í netinu Fótbolti Ómar Björn: Misreiknaði boltann Fótbolti Dagskráin: Besta deildin ræður ríkjum Sport Son verður sá dýrasti í sögunni Enski boltinn NFL-stjarna dæmd fyrir þátt í hundaati Sport Fleiri fréttir Hefur eignast barn en þarf samt að sanna það að hún sé kona Fótboltamaður drukknaði Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez NFL-stjarna dæmd fyrir þátt í hundaati Dagskráin: Besta deildin ræður ríkjum Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Patrick: Léttir að sjá boltann í netinu Lyon krækir í leikmann Liverpool Ómar Björn: Misreiknaði boltann Snéri til baka úr krabbameinsmeðferð og lokaði leiknum Eir og Ísold mæta á EM Markalaust í baráttunni um brúna Uppgjör: ÍA - Valur 2-2 | Skaginn náði í stig með ótrúlegu marki Brann á toppinn og Lyngby skreið áfram í bikarnum Hansen hamingjusamur í Víkinni næstu árin Tryggvi þurfti að bíða í 257 daga eftir að bæta metið Jorge Costa látinn Partey laus á skilorði Fór að gráta þegar hún skoraði Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Gervigreindin fór illa með mótherja Víkinga „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins Þýsku meistararnir urðu að segja upp öllum leikmönnunum sínum Frank Mill er látinn „Sagt að mér gæti blætt út“ Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Natasha með slitið krossband Sjá meira