Ákæruvaldið fær á baukinn 29. júní 2004 00:01
Ákæruvaldið fær á baukinn í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í fjársvikamáli sem kveðinn var upp í dag. Um er að ræða mál þar sem maður var ákærður í níu liðum fyrir að hafa svikið fé úr fjórum tryggingafélögum á árunum 1989-1991. Maðurinn var ákærður og hnepptur í gæsluvarðhald árið 1992 en síðan lá málið óhreyft hjá lögreglu í sjö ár, eða til ársins 1999. Héraðsdómur sýknar manninn af öllum ákæruliðum en lætur ekki þar við sitja heldur ávítar ákæruvaldið fyrir drátt sem varð á málinu, fyrst hjá lögreglu og síðar fyrir dómi. Í niðurstöðu segir að slíkur dráttur sé andstæður lögum um meðferð opinberra mála, ákvæðum stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu. Að mati dómara er þessi dráttur ákæruvaldsins ámælisverður. Orðrétt segir: „Allur málatilbúnaður ákæruvaldsins er mjög ruglingslegur og mjög erfitt og oft útilokað að sjá tengsl einstakra skjala við einstaka ákæruliði. Þá er hluti skjala illlæsilegur, nánast ólæsilegur, til að mynda mörg ljósrit, sem liggja frammi meðal gagna málsins en þessi skjöl eru sum hver um 12 ára gömul og því eðlilegar skýringar á óskýrleika þeirra að þessu leyti. Allur þessi málatilbúnaður stappar nærri að vísa beri máli þessu frá dómi.“ Þar sem maðurinn hafði þegar gefið skýrslu við gæsluvarðhald árið 1992 þótti samt rétt að kveða upp efnislegan dóm og var hann, sem áður segir, sýknaður af öllum ákæruliðum og skaðabótakröfum allra tryggingafélaga vísað frá dómi. Auk þessa mun sakakostnaður greiðast úr ríkissjóði.
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira