Var það samsæri? 22. júní 2004 00:01
Mattias Jonson reyndist hetja Svía þegar hann skoraði annað mark liðsins á síðustu mínútu leiksins gegn Dönum í gærkvöld og jafnaði leikinní 2-2. Þýddu þau úrslit að báðir frændur okkar Íslendinga af Norðurlöndunum komast áfram, hvernig sem leikur Ítala og Búlgara færi. Ítalir urðu æfir, sökuðu þjóðirnar um samsæri og að úrslitin hefðu verið ákveðin fyrirfram. Það liggur enginn vafi á því að bæði lið stefndu á jafntefli í leiknum. Það sést einfaldlega á því hvernig leikurinn þróaðist. En óhagganleg sönnunargögn fyrir því er erfitt að finna," sagði Franco Carraro, forseti ítalska knattspyrnusambandsins, í leikslok. Carraro var fokreiður og sakaði nágrannaþjóðirnar um samsæri. Morten Olsen, þjálfari Dana, vísaði ásökunum Carraro algjörlega á bug. "Það er jafn fáránlegt og það er barnalegt að halda það," sagði Olsen. "Allir sem sáu þennan leik vita að bæði lið léku til sigurs". Eins og áður segir bauð gærkvöldið upp á dramatík eins og hún gerist best, því hefði Jonson ekki náð að jafna metin hefðu Svíar setið eftir á kostnað Ítala, sem tryggðu sér sigur gegn Búlgörum - einnig með marki á síðustu mínútunni. Það voru því bæði liðin á vellinum sem fögnuðu í leikslok enda búin að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum EM. Úrslitin þýða jafnframt að Svíar hafna í efsta sæti riðilsins og mæta annaðhvort Þýskalandi eða Hollandi í 8-liða úrslitum, en hvor það verður kemur í ljós í kvöld. Dönum bíður hinsvegar gríðarlega erfiður leikur gegn Tékkum í 8-liða úrslitunum, en þeir hafa þegar tryggt sér efsta sætið í D-riðlinum. Viðureignin í gær var nokkuð fjörug á köflum og voru það Danir sem byrjuðu mun betur. Jon Dahl Tomasson náði verðskuldað forystunni með glæsilegu marki um miðjan fyrri hálfleik, en Henrik Larsson jafnaði úr vítaspyrnu í upphafi þess síðari. Gegn gangi leiksins bætti Tomasson við sínu öðru marki á 66. mínútu en eftir þunga pressu náði áðurnefndur Jonson loks að jafna metin á elleftu stundu. Henrik Larsson var hamingjan uppmáluð í leikslok. "Yndislegt, yndislegt, yndislegt. Það að vera komin áfram fylgir tilfinning sem er ekki hægt að lýsa. Við erum mjög glaðir," sagði Larson. Þjálfari Dana var heldur rólegri, sagði ánægjulegt að vera kominn áfram en að sínir menn hefðu oft leikið betur. "Við þurfum að taka okkur á fyrir leikinn gegn Tékkum í 8-liða úrslitunum. Nokkrir leikmenn virtust þreyttir og voru ekki upp á sitt besta. Það þarf að laga," sagði Morten Olsen.
Íslenski boltinn Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn „Mér fannst við ekki góðir“ Íslenski boltinn Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Fótbolti „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn Íslenski boltinn Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Oliver til FH Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Smáþjóðin úr leik á HM en Pépé sendi Fílabeinsströndina áfram Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn „Mér fannst við ekki góðir“ Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Veit ekki hvort Haaland var að grínast Anton Ingi ráðinn þjálfari dansks félags Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Guðrún eftirlét Thelmu og Fanneyju toppsætið fyrir sumarfríið Onana aftur að láni frá Man. Utd Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Tómas Bent kominn með nýjan stjóra Oliver til FH „Alltaf skemmtilegt að taka á móti Víkingum heima“ Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Portúgalar gætu farið tvær mjög ólíkar og miserfiðar leiðir á HM Yngstur til að byrja leik á HM í 24 ár Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Fékk fimm leikja bann fyrir að valda fótbroti Kone Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Krakkarnir fögnuðu eins og Ronaldo á Norðurálsmótinu Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Óþekkti markvörðurinn kominn með fleiri fylgjendur en Tom Brady Maður dagsins á HM: „Það var ekki ég sem uppgötvaði Vini Jr.“ Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Sjá meira