Gríðarlegur liðsstyrkur 24. júní 2004 00:01
Haukum hefur bæst gríðarlegur liðsstyrkur og nú síðast í formi landsliðsmarkvarðarins, Helgu Torfadóttur, sem mun verja mark þess á næstu leiktíð. Það þarf ekki að orðlengja að Helga er ásamt, Berglindi Írisi Hansdóttur, markverði Vals, besti markvörður landsins. Hún lék í Danmörku síðastliðna tvo vetur með Tvis Holstebro en þar áður með Víking en þar liggja hennar rætur. Áður hafði Haukaliðið fengið landsliðskonuna Hönnu Guðrúnu Stefánsdóttur og Nínu Kristínu Björnsdóttur til baka og þá verður Harpa Melsted klár í slaginn eftir að hafa fjölgað mannkyninu. Einnig verður rosaskyttan frá Litháen, Ramune Pekarskyté, besti og markahæsti leikmaður síðastliðinnar leiktíðar, áfram á Ásvöllum og eru það gleðitíðindi fyrir kvennahandboltann. Landa hennar, Kristina Matuzeviciute, snýr einnig aftur og ásamt Helgu Torfadóttur munu þær líklega mynda sterkasta markmannapar íslenskrar kvennahandboltasögu. Aðrir lykilmenn verða einnig áfram og ekki er allt búið enn. Á næstu dögum mun Guðmundur Karlsson skrifa undir samning sem þjálfari liðsins en hann tekur við af Ragnari Hermannsyni. Guðmundur er ekki alveg ókunnugur herbúðum Hauka en undir hans stjórn varð karlalið félagsins Íslandsmeistari árið 2000 eftir 47 ára bið. Með Guðmund við stjórnvölinn er þetta Haukalið verulega óárennilegt og greinilegt að stórhugurinn ríkir áfram á Ásvöllum og það á að bæta fyrir frekar slakt gengi á síðasta keppnistímabili.
Íþróttir Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Fótbolti „Mér fannst við ekki góðir“ Íslenski boltinn Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Fótbolti Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn Íslenski boltinn „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Fleiri fréttir Tyrkir náðu loksins sigri og jafntefli hentaði báðum liðum Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Dagskráin í dag: Risamót í golfi, bestu pílukastarar heims og Formúla 1 Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Smáþjóðin úr leik á HM en Pépé sendi Fílabeinsströndina áfram Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn „Mér fannst við ekki góðir“ Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Veit ekki hvort Haaland var að grínast Anton Ingi ráðinn þjálfari dansks félags Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Guðrún eftirlét Thelmu og Fanneyju toppsætið fyrir sumarfríið Onana aftur að láni frá Man. Utd Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Tómas Bent kominn með nýjan stjóra Oliver til FH „Alltaf skemmtilegt að taka á móti Víkingum heima“ Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Portúgalar gætu farið tvær mjög ólíkar og miserfiðar leiðir á HM Yngstur til að byrja leik á HM í 24 ár Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Fékk fimm leikja bann fyrir að valda fótbroti Kone Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Krakkarnir fögnuðu eins og Ronaldo á Norðurálsmótinu Sjá meira