Erlent
Kvarta undan káfi á Kastrup Það ríkir allt annað en gleði meðal danskra flugþjóna vegna nýrra öryggisreglna sem tóku gildi á Kastrup-flugvelli í dag. Samkvæmt þeim eiga verðir í öryggishliðum að leita með höndunum á öllum farþegum, þar á meðal í klofi og á milli brjósta. Erlent 15.9.2007 16:26
Al-Qaida hótar líka IKEA og Volvo Lögregla í Svíþjóð hefur þegar hafið rannsókn á hótunum í garð sænska listamannsins Lars Vilks og ritstjóra héraðsblaðsins Nerikes Allehanda vegna Múhameðsteikninga. Erlent 15.9.2007 15:07
Verja yfir 10 milljónum í auglýsingaherferð vegna Madeleine Foreldrar bresku stúlkunnnar Madeleine McCann hafa ákveðið að blása til auglýsingaherferðar um alla Evrópu til þess að reyna blása lífi í leitina að stúlkunni á ný. Erlent 15.9.2007 14:44
Rændu íþróttaminjagripum á hótelherbergi Ruðningskappinn fyrrverandi og kvikmyndaleikarinn O.J. Simpson var færður til yfirheyrslu hjá lögreglunni í Las Vegas í fyrradag, grunaður um aðild að vopnuðu ráni á spilavíti þar í borg. Erlent 15.9.2007 12:45
Öldungar takast á um forsætisráðherraembættið í Japan Tveir munu takast á um það sem að verða næsti forsætisráðherra Japans eftir að Shinzo Abe sagði af sér á dögunum. Það verða þeir Taro Aso og Yasuo Fukuda sem berjast munu um leiðtogahlutverkið í Frjálslynda demókrataflokknum sem heldur um stjórnartaumana í landinu. Erlent 15.9.2007 11:30
Setur 100 þúsund dollara til höfuðs Lars Vilks Abu Omar al-Baghdadi, leiðtogi al-Qaida í Írak, hefur sett hundrað þúsund dollara, jafnvirði um 6,5 milljónum króna til höfuðs sænska teiknaranum Lars Vilks sem teiknaði á dögunum myndir af Múhameð spámanni í líki hunds. Erlent 15.9.2007 10:57
Hermönnum hugsanlega fækkað í 100 þúsund eftir rúmt ár Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir vel koma til greina að kalla enn fleiri hermenn heim frá Írak en Bush Bandaríkjaforseti boðaði í ræðu á fimmtudaginn. Gates segir koma til greina að fækka hermönnum niður í hundrað þúsund fyrir lok næsta árs. Erlent 15.9.2007 10:45
Áttatíu látnir eftir flóð í tólf Afríkuríkjum Úrhellisrigningar og mikil flóð hafa orðið minnst áttatíu að bana og hrakið hundruð þúsunda frá heimilum sínum í tólf löndum Afríku sunnan Sahara-eyðimerkurinnar á síðustu vikum. Erlent 15.9.2007 10:15
Norðvestursiglingaleiðin opin Norðvestursiglingaleiðin yfir norðurpólinn er greiðfær skipum í fyrsta sinn síðan eftirlit með henni hófst fyrir tæpum þrjátíu árum. Um er að ræða beinustu siglingaleiðina milli Asíu og Evrópu. Erlent 15.9.2007 09:53
Trúarleg skylda stúlku að giftast frænda sínum Leiðtogi stærsta sértrúarsafnaðar Bandaríkjanna sem styður fjöldkvæni sagði fjórtán ára stúlku sem hann hafði nýlega gift nítjan ára frænda sínum að það væri trúarleg skylda hennar að gefa eiginmanninum hug sinn, líkama og sál. Þessu héldu saksóknarar í máli stúlkunnar gegn safnaðarleiðtoganum fram fyrir rétti í Utah í dag. Erlent 14.9.2007 21:10
Holdafar unglinga hefur áhrif á frjósemi síðar meir Holdafar á unglingsárum hefur áhrif á hve mörg börn fólk eignast síðarmeir. Vísindamenn fylgdust með þrettán hundruð finnskum ungmennum, frá árinu 1980, en þau voru þá á aldrinum 3 - 18 ára. Erlent 14.9.2007 19:58
Ekki alveg dauður Maður, sem hafði verið úrskurðaður látinn, vaknaði við nístandi sársauka á skurðarborði í Venesúela eftir að læknar hófu krufningu á honum. Erlent 14.9.2007 19:10
Lítill árangur í Írak, segir í skýrslu Hvíta hússins Skýrsla frá Hvíta húsinu í Bandaríkjunum gefur til kynna að lítið hafi áunnist í stríðinu í Írak, þrátt fyrir orð Bush forseta til hins gagnstæða í gærkvöldi. Erlent 14.9.2007 18:19
Stöðugleiki og lægri vextir fylgja Evru Fyrrverandi fjármálaráðherra Írlands ráðleggur Íslendingum að skoða upptöku Evru því hún hafi hjálpað Írum að viðhalda stöðugleika á tímum mikillar efnahagsuppbyggingar. Erlent 14.9.2007 18:03
Sendiráðið ævareitt yfir ummælunum Bandaríska sendiráðið í Danmörku er langt því frá sátt við ummæli þekkts dansks sjónvarpsmanns um hvernig honum varð innanbrjósts þegar hann frétti af hryðjuverkaárásunum 11. september 2001. Erlent 14.9.2007 17:31
Réttarhöld hafin yfir skákborðsmorðingjanum Réttarhöld hófust í dag yfir rússneska fjöldamorðingjanum Alexander Pichushkin, sem er sakaður um að hafa myrt 49 manns. Flest fórnarlöm sín höfuðkúpubraut hann með hamri. Erlent 14.9.2007 16:54
Búið að finna gallann í Dash 8 vélunum Framleiðandi Dash 8 vélanna sem SAS flugfélagið kyrrsetti í vikunni segir að búið sé að finna gallann sem olli því að hjólabúnaður vélanna brást ítrekað. Kanadiski framleiðandinn Bombardier segir að viðgerð sé tiltölulega einföld og hægt verði að aflétta farbanninu jafnvel strax á mánudaginn. Erlent 14.9.2007 16:40
Minn tími kemur aftur -Putin Vladimir Putin, forseti Rússlands sagði í dag að hann útilokaði ekki að hann myndi sækjast eftir forsetaembættinu á nýjan leik árið 2012. Samkvæmt stjórnarskrá landsins má forseti ekki sitja lengur en tvö kjörtímabil. Síðara kjörtímabili Putins lýkur á næsta ári. Hinsvegar mega menn bjóða sig fram á nýjan leik eftir eitt kjörtímabil utan embættis. Erlent 14.9.2007 16:26
Simpson yfirheyrður vegna ráns OJ Simpson hefur verið yfirheyrður vegna ráns í spilavíti í Las Vegas í gær. Lögreglan hefur staðfest að Simpson hafi verið yfirheyrður, en hann hafi ekki verið handtekinn. Fregnir af þessu eru enn mjög af skornum skammti. Ekkert hefur verið gefið upp um ránsfeng eða annað sem málið snertir. Erlent 14.9.2007 14:34
Norðmenn senda herþotur gegn rússum Tvær norskar herþotur voru sendar á loft í morgun til að mæta tveimur rússneskum sprengjuvélum sem flugu meðfram strönd Noregs. Rússnesku vélarnar voru af gerðinni Tu-160. Þá rauf rússnesk herflugvél lofthelgi Finnlands í morgun. Erlent 14.9.2007 13:35
Hvað varð um Madeleine McCann? Líklega hefur ekki verið fjallað jafn mikið um lítið barn í heimspressunni og bresku telpuna Madeleine McCann. Erlent 14.9.2007 12:22
Meintur árásarmaður handtekinn Lögreglan í Frankfurt í Þýskalandi hefur handtekið 22 ára gamlan mann fyrir fólskulega árás á rabbía þar í borg. Maðurinn stakk rabbíann með hníf áður en hann hljóp í burtu. Verknaðurinn vakti mikinn óhug í Þýskalandi og umræðu um gyðingahatur þar í landi. Erlent 14.9.2007 12:03
Vilja ekki fleiri erlenda verkamenn Hugmynd framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins um að aðildarlönd opni landamæri sín fyrir erlendu vinnuafli hafa fallið í grýttan jarðveg í Þýskalandi. Haft er eftir Michael Glos, efnhagsráðherra Þýskalands, á vefútgáfu þýska blaðsins Der Spiegel í dag að Þjóðverjar vilji ekki taka við fleiri erlendum verkamönnum í bili. Erlent 14.9.2007 11:23
Líkur á vopnahléi í Darfur Forseti Súdans, Omar Hassan al-Bashir sagði á blaðamannafundi í Róm í morgun að súdönsk stjórnvöld hefðu fyrir sitt leyti fallist á vopnahlé í Darfur héraði. Erlent 14.9.2007 08:39
Bhutto hyggst snúa aftur til Pakistans Fyrrverandi forsætisráðhera Pakistans, Benazir Bhutto, ætlar að snúa aftur til heimalandsins eftir margra ára útlegð. Bhutto hefur átt í viðræðum við forseta landsins, Pervez Musharaf, um að taka á ný við forsætisráðherraembættinu, en þær viðræður fóru út um þúfur. Erlent 14.9.2007 08:31
Enn einn skjálftinn í Indónesíu Indónesísk yfirvöld hafa gefið út flóðbylguviðvörun á eyjunni Súmötru eftir að enn einn jarðskjálftinn reið yfir í nótt. Stærsti skjálftinn kom á miðvikudag en síðan þá hafa stórir eftirskálftar mælst. Erlent 14.9.2007 07:29
Bush tilkynnir um fækkun í herliði George Bush Bandaríkjaforseti sagði í ávarpi til þjóðar sinnar í gærkvöldi að hluti bandarískra hermanna í Írak verði kallaðir heim. Í ræðu sinni sagði Bush að 5700 hermenn yrðu kallaðir heim fyrir jól og að þúsundir myndu fylgja í kjölfarið fram á mitt næsta sumar. Erlent 14.9.2007 07:19
Misþyrmdu tvítugri stúlku Sex menn í Logan sýslu í Bandaríkjunum eru grunaðir um að hafa misþyrmt 20 ára gamalli svartri stúlku frá Charleston hrottalega. Henni var haldið nauðugri í hjólhýsi í Logan sýslu í fjölda daga og misþyrmt þar. Samkvæmt ákærum var hún misnotuð kynferðislega, neydd til að borða dýraskít, stunginn í lærið, heitu vatni hellt yfir hana, hún neydd til að drekka salernisvatn og hún lamin. Erlent 13.9.2007 23:49
Einmana með ónýtt ónæmiskerfi Einmana fólk er líklegra til að veikjast og deyja ungt. Vísindamenn telja sig nú vita af hverju - ónæmiskerfi þeirra er í rúst. Vísindamenn könnuðu DNA fólk sem var félagslega einangrað og komust að því að erfðaefni sem tengdist ónæmiskerfi þeirra var afbrigðilegt. Erlent 13.9.2007 21:19
Lögregla skaut tvo bankaræningja til bana Lögregla í Hampshire skaut tvo menn til bana þegar þeir gerðu tilraun til vopnaðs ráns í banka í morgun. Lögregla beið mannanna þegar þeir komu út úr HSBC bankanum og skaut þá. Annar mannanna lést á staðnum, en hinn var fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést skömmu síðar. Vopn sem talin eru tilheyra ræningjunum fundust á vettvangi. Erlent 13.9.2007 20:54