Erlent

Átök harðna í Kólumbíu

Átök fara nú harðnandi milli stjórnarhersins og skæruliða FARC hreyfingarinnar, sem hefur reynt að bylta stjórn Kólumbíu í fjóra áratugi. Í gær féllu sex skæruliðar og þrír hermenn særðust í átökum í héraði, sem annars er helst þekkt fyrir mikla kókaínframleiðslu.

Erlent

Rice svartsýn á árangur

Condoleeza Rice sagðist við upphaf fjögurra daga ferðar um Miðausturlönd efast um árangur af ferðinni. Hún ætlar að reyna að fá Ísraela og Palestínumenn til að fallast á umræðugrundvöll fyrir friðarráðstefnu sem halda á í Bandaríkjunum í næsta mánuði.

Erlent

Hillary Clinton með mikið forskot

Hillary Clinton mælist nú með 21 prósenta forskot á næsta keppinaut sinn í hinu mikilvæga New Hampshire fylki fyrir útnefningu demokrataflokksins í Bandaríkjunum.

Erlent

Tyrkir gera stórskotaliðsárás á Írak

Tyrkneskar hersveitir skutu sjö til átta sprengjum á þorp við landamæri Tyrklands og Íraks nú í kvöld að því er Reuters hefur eftir vinum á svæðinu. Þorpið Nezdoor er í um fimm kílómetra fjarlægð frá landamærunum í Dahuk héraði. Engar fréttir hafa borist af mannfalli eða skemmdum í kjölfar árásarinnar.

Erlent

Spenna á landamærum Tyrklands og Íraks

Condoleeza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna skoraði á Tyrki í dag að láta ekki verða af fyrirhugaðri árás á kúrdíska skæruliða yfir landamærin við Írak. Þúsundir skærliða á vegum Verkamannaflokks Kúrdistans, eða PKK, hafast við í fjöllunum á landamærum Íraks og Tyrklands.

Erlent

Grátbiður lögreglu um að hreinsa nafn sitt

Robert Murat, maðurinn sem fyrstur féll undir grun í Madeleine málinu grátbiður portúgölsku lögregluna um að hreinsa hann af grunsemdum um að vera viðriðin hvarf Madeleine McCann. Murat hefur í fimm mánuði verið með stöðu grunaðs í málinu án þess að hann hafi verið handtekinn eða ákærður vegna málsins. Þrátt fyrir fjölmiðlabann sem sett var á hann á sínum tíma kom Murat fram í viðtali við BBC. „Það hafa liðið fimm mánuðu, sparifé mitt er uppurið og mamma hjálpar mér eins og hún getur en það er erfitt," segir Murat sem býr hjá móður sinni í grennd við hótelið sem McCann fjölskyldan gisti á.

Erlent

Flugskeytaárás á Gaza

Ísraelsher gerði flugskeytaárás á Gaza landræmuna í morgun með þeim afleiðingum að einn maður lét lífið og fimm særðust. Maðurinn sem féll var vopnaður Hamas-liði, en meðal þeirra sem særðust var ungur drengur.

Erlent

Hu styrkir sig

Varaforseti Kína, Zeng Tsínghong, lætur af embætti á þingi kínverska kommúnistaflokksins í næstu vikuk, að sögn heimildarmanna Reuters.

Erlent

Sendifulltrúi dæmdur fyrir peningaþvætti

Rússneskur sendifulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum var í gærkvöldi dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir peningaþvætti. Sendifulltrúinn, Vladimir Kuznetsov, var formaður fjárlaganefndar hjá Sameinuðu þjóðunum.

Erlent

Rice ræðir mannréttindi í Rússlandi

Condolezza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna fundaði í morgun með mannréttindafrömuðum í Rússlandi og hét þeim aðstoð við að vernda einstaklinga gegn "ofurvaldi ríkisins," eins og hún orðaði það.

Erlent

Bush vill frelsa fangana á Kúbu

George Bush sagði í ræðu í Miami í dag að senn sæi fyrir endann á stjórnartíð hins grimma einræðisherra á Kúbu. Castro er bæði gamall og veikur og því ekki óeðlilegt að búast við að hann safnist til feðra sinna á næstu áratugum eða svo. Castro er búinn að lifa ansi marga Bandaríkjaforseta sem hafa villjað hann feigan. Forsetinn hafði mörg orð um þær breytingar sem alþjóðasamfélagið vildi sjá á Kúbu eftir Castro. Meðal annars sagði hann að þjóðir heims yrðu að krefjast þess að föngum á Kúbu yrði sleppt.

Erlent

Skömm að Nóbelsverðlaunum Gore

Danski umhverfisverndargagnrýnandinn Björn Lomborg segir að það sé til skammar að Al Gore hafi fengið friðarverðlaun Nóbels fyrir umhverfisverndarstefnu sína.

Erlent

Tyrkir ögra samskiptum við Bandaríkjamenn

Recep Tayyip Erdogan forsætisráðherra Tyrkja sagði í dag að viðkvæm staða á milli Bandaríkjanna og Tyrklands myndi ekki aftra Tyrkjum að ráðast yfir landamærin til Íraks til atlögu gegn uppreisnarmönnum Kúrda. Hann sagði Tyrki tilbúna að fórna góðum samskiptum við Washington ef það væri nauðsynlegt.

Erlent

Skelfilegt aðgerðarleysi gegn mæðradauða

Sérfræðingar hafa fordæmt skelfilegt aðgerðarleysi gegn mæðradauða í heiminum. Hálf milljón kvenna deyr árlega af barnsförum eða á meðgöngu samkvæmt læknaritinu Lancet. Þá verða 10 – 20 milljónir kvenna fyrir fötlun. Lítið hefur breyst í þessum efnum í 20 ár. Óöruggar fóstureyðingar sem framkvæmdar eru árlega telja 20 milljónir. Þær eru stór orsakavaldur í mæðradauða.

Erlent

Ríkasti maður Noregs í nokkra tíma

Norska ráðgjafanum og fjárfestinum Harald Dahl brá heldur en ekki í brún þegar hann las í norskum fjölmiðlum að hann væri ríkasti maður Noregs og ætti litla hundrað milljarða. Þetta kannaðist hann einfaldlega ekki við.

Erlent

„Ég er Al Gore“

„Ég er Al Gore, og ég var næsti forseti Bandaríkjanna,“ hefur friðarverðlaunahafi Nóbels gjarnan sagt í kynningu á sjálfum sér. Gore hlaut friðarverðlaunin í ár ásamt alþjóðlegri nefnd Sameinuðu þjóðanna um loftlagsmál. Verðlaunin voru veitt fyrir að vekja athygli á þeirri hættu sem stafar að heiminum af völdum loftslagsbreytinga.

Erlent

Eldri borgari sofnaði á rauðu

Svissneska lögreglan var kölluð út til að vekja eldri borgara sem sofnaði við stýrið á rauðu ljósi í Bottmingen í Sviss. Urs Maurer sem er 78 ára stoppaði eins og lög gera ráð fyrir á þegar hann sá rautt ljós. Á meðan hann beið eftir grænu varð hann svo svefndrukkinn að hann sofnaði. Aðrir ökumenn reyndu árangurslaust að flauta og banka á rúðuna til að vekja hann.

Erlent

Fagnar ákvörðun Nóbelsnefndarinnar

Achim Steiner, framkvæmdastjóri Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna, fagnar ákvörðun Nóbelsnefndarinnar að veita Al Gore, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna, og alþjóðlegri nefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál friðarverðlaun Nóbels þetta árið. Verðlaunin fá Gore og nefndin fyrir framlag sitt í loftlagsmálum.

Erlent

Tyrkir kalla sendiherra frá Bandaríkjunum

Stjórnvöld í Tyrklandi hafa kallað sendiherra sinn í Washington tímabundið heim til viðræðna. Það er gert vegna andstöðu við ákvörðun bandaríska þingsins um að skilgreina morð Tyrkja á Armönum árið 1915-1917 sem þjóðarmorð. Ályktun þess efnis var samþykkt af utanríkismálanefnd þingsins og fer þaðan til atkvæðagreiðslu hjá fulltrúaráðinu.

Erlent

Öryggisráðið harmar aðgerðir í Búrma

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur gert yfirlýsingu sem harmar aðgerðir herstjórnarinnar í Búrma gegn mótmælendum í landinu. Kínverjar beittu fyrst neitunarvaldi gegn yfirlýsingu sem gerð var af Bandaríkjunum, Bretlandi og Frakklandi. Þeir drógu síðan andstöðu sína til baka og þykir það merki um breytta afstöðu Kínverja gegn herforingjastjórninni í Búrma.

Erlent

Heimspekingurinn Sri Chinmoy látinn

Indverski heimspekingurinn Sri Chinmoy sem tilnefndur var til friðarverðlauna Nóbels lést á heimili sínu í New York í gær. Hann varð andlegur leiðtogi þúsunda manna um heim allan fyrir trú sína á innri frið og samkennd milli landa. Chinmoy var tilnefndur til verðlaunanna fyrir þrotlaust starf fyrir Sameinuðu þjóðirnar í 30 ár.

Erlent

Putin varar Bandaríkin við eldflaugakerfi

Vladimir Putin forseti Rússlands segist ekki styðja áform Bandaríkjamanna um eldflaugavarnarkerfi í Evrópu. Með því yrðu möguleikar Rússa til að bregðast við hernaðaruppbyggingu í nágrannalöndum sínum í Evrópu að engu. Putin lýsti þessu yfir við upphaf fundar með Condoleezzu Rice utanríkisráherra Bandaríkjanna og Robert Gates varnarmálaráðherra.

Erlent