Erlent

MP3-spilarar geta truflað gangráða

Bandarískir læknar segja að rannsóknir hafi leitt í ljós að ef heyrnartól eru notuð með MP3 stafrænum spilurum eins og iPod geti það valdið truflunum á hjartagangráðum.

Erlent

Ekki refsað fyrir nauðgunina sjálfa

Á Kristalsnótt sem stóð raunar níunda og tíunda nóvember árið 1938 þyrptust brúnstakkar Nazista og almennir borgarar út á götur í borgum og bæjum Þýskalands og brutu alla glugga í tugþúsundum verslana og heimila gyðinga.

Erlent

Heimshorn -aftökur

Þrír indónesiskir múslimar voru teknir af lífi í dag fyrir sprengjutilræðið á eynni Bali árið 2002.

Erlent

Tvítugur piltur stunginn til bana á Englandi

Tvítugur karlmaður fannst látinn í bakgarði í Bournemouth á Englandi í gærmorgun. Maðurinn var stunginn til bana. Lögreglan hefur gefið út að hún rannsaki málið sem morðmál þar sem líkið hafi verið með stungusár á bringunni.

Erlent

Af húmorslausum hálfvitum

Carla Bruni-Sarkozy forsetafrú Frakklands segir að hún sé glöð yfir að vera ekki lengur ítalskur ríkisborgari, eftir ummæli Silvios Berlusconis forsætisráðherra Ítalíu um Barack Obama.

Erlent

Egyptar vilja ekki sjá son Bin Laden

Egypsk yfirvöld neituðu í dag að hleypa syni Osama bin Laden og konu hans inn í landið. Þau voru sett um borð í flugvél til Quatar. Hjónin hafa verið á nokkru flakki því þeim hefur einnig verið synjað um landgönguleyfi í Bretlandi og á Spáni, þar sem þau sóttu um hæli.

Erlent

Tuttugu létust í rússneskum kjarnorkukafbáti

Tuttugu sjóliðar létu lífið og tuttugu og einn slasaðist um borð í rússneskum kjarnorkukafbáti á Kyrrahafi í gær. Svo virðist sem slökkvikerfi bátsins hafi verið virkjað fyrir slysni. Rússneska flotastjórnin segir að kjarnaofn bátsins sé óskemmdur.

Erlent

Veðmálasíða gefst upp á íslensku krónunni

Veðmálasíðan bet365.com sem margir íslendingar hafa stundað undanfarin ár er búin að gefast upp á íslensku krónunni. Hægt er að veðja á úrslit leikja í hinum ýmsu íþróttagreinum og hefur síðan notið töluverða vinsælda. Nokkur dæmi eru um að aðstandendur síðunnar hafi hringt í íslenska notendur og beðið þá um að skipta um gjaldmiðil.

Erlent

Afslappaður og yfirvegaður á sínum fyrsta blaðamannafundi

Barack Obama þótti einstaklega afslappaður og yfirvegaður í gær þegar hann hélt sinn fyrsta blaðamannafund eftir að hafa verið kjörinn forseti Bandaríkjanna. Hann svaraði spurningum blaðamanna skýrt og ákveðið, en benti á að hann gæti ekki endilega farið út í smáatriði á þessari stundu.

Erlent

Rice vongóð um frið

Condoleezza Rice, fráfarandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segist vera bjartsýn og vonast til þess að ekki sé langt í friðarsamkomulag á milli Ísraela og Palestínumanna.

Erlent

Gagnrýnir kjarnorkuvopnagerð Írana

,,Fyrirætlun Írana að smíðja kjarnorkuvopn er óásættanleg," sagði Barack Obama verðandi Bandaríkjaforseti á blaðamannafundi í Chicago fyrr í dag. Skera verði á tengsl landsins við hryðjuverkahópa. Obama hvatti yfirvöld í Teheran til að hætta að styðja hryðjuverkasamtaka.

Erlent

Uppgjafahermenn á Rauða torginu

Hinn sjöunda nóvember árið 1941 marséruðu rússneskir hermenn yfir Rauða torgið í Moskvu á leið sinni beint á vígvöllinn. Hersveitir nazista voru þá í aðeins nokkurra tuga kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni.

Erlent

Týndi skónum við vígslu fótboltavallar

Michelle Bachelet forseti Chile vígði í dag nýjan knattspyrnuleikvang sem verður notaður fyrir kvennalið undir tuttugu ára aldri í heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu sem hefst 20 nóvember.

Erlent

Berluconi segir Obama vera sólbrúnan

Forsætisráðherra Ítalíu er enn einusinni í súpunni vegna óviðeigandi ummæla. Hann lýsti Barack Obama sem sólbrúnum. Silvio Berlusconi var að tala við blaðamenn að loknum fundi með Dmitry Medevedev forseta Rússlands. Hann var meðal annars spurður um útlitið í samskiptum Rússlands og Bandaríkjanna eftir að Barack Obama var kjörinn forseti.

Erlent

Bush og Obama funda í næstu viku

George Bush Bandaríkjaforseti mun funda með eftirmanni sínum, Barack Obama, í næstu viku þar sem þeir munu meðal annars ræða hina alþjóðlegu fjármálakreppu og stríðið Írak.

Erlent

Óður repúblikani beit barþjón í nefið

Sjötugur repúblikani í Pennsylvaníu-ríki í Bandaríkjunum beit barþjón í nefið og lamdi allt sem fyrir honum varð með göngustaf þegar ljóst varð að Barack Obama yrði næsti forseti Bandaríkjanna.

Erlent

Doktor limur fyrir dóm eftir helgina

Mál danska lýtalæknisins Jørn Ege, sem nefndur hefur verið penislægen upp á dönsku eða limlæknirinn, verður þingfest fyrir héraðsdómi í Kaupmannahöfn á mánudaginn, en hann er ákærður fyrir stórfelld skattsvik.

Erlent

Vissi ekki að Afríka væri heimsálfa

Sarah Palin varaforsetaefni Repúblikanaflokksins vissi ekki hvort Afríka væri heimsálfa eða land, samkvæmt upplýsingum sem hafa lekið til fjölmiðla frá flokknum sem tapaði fyrir Barack Obama og félögum í fyrradag.

Erlent

Emanuel fer með Obama í Hvíta Húsið

Barack Obama, verðandi Bandaríkjaforseti, er þegar byrjaður að velja í stjórn og starfslið sitt. Í fréttum í dag kom fram að hann hefði boðið Rahm Emanuel, fulltrúadeildarþingmanni og fyrrverandi ráðgjafa Bills Clintons, að verða starfsmannastjóri sinn. Það kom síðan í ljós nú í kvöld að Emanuel hefur þegið boðið og mun því fylgja Obama í Hvíta Húsið.

Erlent