Erlent
Kosið í Þýskalandi í dag Kjörfundur hófst í Sambandsþingskosningunum í Þýskalandi klukkan 6 í morgun að íslenskum tíma eða 8 að staðartíma. 62 milljónir manna eru á kjörskrá. Gríðarleg öryggisgæsla er í landinu vegna kosninganna, enda hafa alþjóða hryðjuverkasamtök hótað því að láta til skarar skríða í Þýskalandi í dag. Búist er við að Angela Merkel kanslari og flokkur hennar, kristilegir demókratar, beri sigur út býtum í þingkosningunum. Erlent 27.9.2009 10:04
Danskir sósíaldemókratar vilja banna vændiskaup Sósíaldemókratar í Danmörku vilja banna kaup á vændi með lögum líkt og gert hefur verið á hinum Norðurlöndunum. Ályktun þessa efnis var samþykkt á landsfundi Sósíaldemókrata í Álaborg í gær. Erlent 27.9.2009 08:00
Vilja vana kynferðisbrotamenn Meirihluti pólska þingsins hefur samþykkt lög um að kynferðisbrotamenn skuli vanaðir með lyfjum. Lögin eiga bæði við um þá sem eru dæmdir fyrir barnaníð og þá sem eru dæmdir fyrir nauðgun. Enn á eftir að samþykkja lögin í öldungadeild þingsins og þar á eftir mun forseti landsins þurfa að samykkja þau áður en þau taka gildi. Erlent 26.9.2009 21:30
Fimmtíu manns deyja vegna flóða á Fillippseyjum Að minnsta kosti 50 manns hafa látist og þúsundir þurft að flýja heimili sín vegna mikilla rigninga í Fillipseyjum Erlent 26.9.2009 17:55
Rændu gullsmíðaverkstæði í Álaborg Tveir menn huldir reykgrímurm réðust á í morgun inn í gullsmíðaverkstæðið N.P. Nielsen í Bispensgade í Álaborg og flúðu á brott með skartgripi að verðmæti allt að 100 þúsund dönskum krónum eða um 2,5 milljónum íslenskra. Erlent 26.9.2009 11:37
Eftirlitsmenn SÞ mega skoða auðgunarstöð á Úrani Eftirlitsmönnum Sameinuðu þjóðanna er velkomið að skoða nýja auðgunarstöð á úrani sem Íranar hafa komið sér upp. Þetta segir Mahmoud Ahmadinejad forseti landsins. Íranar voru harðlega gagnrýndir í gær af leiðtogum Bandaríkjanna, Bretlands og Frakklands eftir að upplýst var að þeir hefðu leynilega komið sér upp nýrri auðgunarstöð á úrani. Erlent 26.9.2009 09:43
Stóra samsteypan gæti lifað Angela Merkel Þýskalandskanslari á sér þá ósk heitasta að losna úr stjórnarsamstarfi við Sósíaldemókrata og mynda samsteypustjórn með Frjálsum demókrötum. Hvort henni verður að ósk sinni ræðst á morgun, þegar Þjóðverjar kjósa sér nýtt þing. Erlent 26.9.2009 01:15
Boða nýtt regluverk „Hið gamla kerfi alþjóðlegrar efnahagssamvinnu heyrir sögunni til. Nýja kerfið, frá og með deginum í dag, er komið af stað,“ sagði Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, á leiðtogafundi tuttugu mestu iðnríkja heims í Pittsburgh í Bandaríkjunum. Erlent 26.9.2009 00:45
Barnaníðinga verður að gelda Neðri deild pólska þingsins samþykkti í gær frumvarp sem gerir yfirvöldum skylt að gelda barnaníðinga með lyfjagjöf. Frumvarpið fer nú til efri deildar þingsins, en þarf einnig samþykki forsetans. Talið er víst að það verði að lögum. Erlent 26.9.2009 00:30
Obama fellst loksins á að hitta Gordon Brown Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, hefur loksins fallist á að hitta Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, eftir margítrekaðar tilraunir til þess að koma á fundi með þeim. Erlent 25.9.2009 23:22
Íranir undir miklum þrýstingi á G20 fundinum Íranir hafa komið sér upp aðstöðu til auðgunar úrans í leynilegri tilraunastöð. Barack Obama sagði í ræðu sinni á G20 fundinum sem hófst í Pittsburgh í Bandaríkunum í dag að skýlaus krafa væri uppi um að eftirlitsmenn á vegum Sameinuðu þjóðanna fái að rannsaka stöðina. Erlent 25.9.2009 14:40
Sjóræningjar láta enn til skarar skríða Sómalskir sjóræningjar ruddustu um borð í skip sem var á leið til höfuðborgarinnar Mogadishu og skutu skipstjórann til bana. Skipstjórinn, sem var frá Alsír hafði neitað að verða við skipunum ræningjanna um að breyta um stefnu á skipinu að sögn sómalskra yfirvalda. Erlent 25.9.2009 13:11
Mjaðmaaðgerðir kostnaðarsamar fyrir breska skattgreiðendur Einn af hverjum fimm Bretum, sem gengst undir mjaðmaaðgerð á breskum einkasjúkrahúsum og stofum, þarf á nýrri aðgerð eða viðgerð að halda, innan við þremur árum eftir aðgerð. Margar hinna síðari aðgerða eru framkvæmdar á opinberum sjúkrahúsum með miklum kostnaði fyrir breska skattgreiðendur. Erlent 25.9.2009 12:22
Áður óbirt myndband með Jackson Áður óbirt myndband, sem sýnir Michael Jackson heitinn æfa flutning lagsins This is it, hefur nú litið dagsins ljós. Erlent 25.9.2009 09:03
Vopnabrak og gnýr á G20-fundi Táragas og tuddaskapur einkenndu upphaf hins svokallaða G20-fundar í Pittsburgh sem hófst í gær. Erlent 25.9.2009 08:54
Segir tóma blekkingu að Noregur standi utan ESB „Það er tóm blekking að Noregur standi utan við Evrópusambandið,“ sagði Fredrik Sejersted, formaður Evrópuréttarstofnunar Óslóarháskóla, á morgunverðarfundi um stöðu Noregs í Evrópu sem haldinn var í Norræna húsinu í gær. Erlent 25.9.2009 06:00
Vekur vonir um sigur á AIDS Alþjóða heilbrigðisstofnunin WHO og Alnæmisstofnun Sameinuðu þjóðanna segja að tilraunir í Taílandi með nýtt bóluefni gegn alnæmi hafi gengið vel og lofi mjög góðu. Erlent 25.9.2009 06:00
Obama vill lesa betri dagblöð Forseti Bandaríkjanna hefur hug á að gera lagafrumvarp til að auðvelda dagblöðum að sporna gegn þeirri hnignun sem þau standa frammi fyrir. Til greina mun koma að dagblöðin, í breyttu rekstrarformi, fái skattaívilnanir. Fari svo verði þau ekki rekin í ágóðaskyni. Erlent 25.9.2009 03:30
Framleiðandi AK-47 á leið á hausinn Stærsti vopnaframleiðandi Rússlands sem kallast Izhmash stendur frammi fyrir gjaldþroti. Fyrirtækið er þekktast fyrir að framleiða Kalashnikov vélbyssuna sem einnig er þekkt undir nafninu AK-47. AK-47 er útbreiddasta vélbyssa sögunnar og hefur hún komið við sögu í flestum ef ekki öllum stríðum sem háð hafa verið frá lokum seinni heimstyrjaldarinnar. Erlent 24.9.2009 10:48
Íslenskur þorskur í úrslitum í Bretlandi Spennan er heldur betur farin að magnast í keppninni um besta „Fish ´n´Chips“ staðinn í Bretlandi. Nú eru einungis sex staðir eftir í keppninni en flestir hafa sterkar skoðanir á því hvernig best sé að útbúa þennan þjóðarrétt Breta. Erlent 24.9.2009 10:19
Nýtt bóluefni gegn alnæmi dregur úr líkum á sýkingu Nýtt bóluefni hefur fundist gegn alnæmi sem dregur úr líkum á sýkingu af völdum þessa sjúkdóms. Bóluefnið er enn á tilraunastigi en fyrstu niðurstöður benda til að það minnki líkur á sýkingu um þriðjung. Erlent 24.9.2009 08:35
Sádi-Arabar bjóða bæði kyn velkomin í háskóla Sádi-Arabar hafa opnað sinn fyrsta háskóla sem stendur stúdentum af báðum kynjum opinn. Erlent 24.9.2009 08:08
Níu ára fangelsi fyrir skotárás á McDonald's Félagi í vélhjólasamtökunum Vítisenglum í Danmörku og tveir menn sem bíða inngöngu í samtökin hafa verið dæmdir í níu ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps þegar þeir gerðu skotárás á þrjá menn úr annarri vélhjólaklíku á McDonald's-stað í Árósum fyrir tæpu ári. Erlent 24.9.2009 07:35
Nýjar smyglleiðir frá Mexíkó Mexíkóskir smyglarar leita sífellt nýrra leiða til að koma ólöglegum innflytjendum og fíkniefnum til Bandaríkjanna og nýjasta aðferð þeirra er að sigla meðfram Kyrrahafsströndinni frá Mexíkó og taka land á fáförnum slóðum á strandlengju Kaliforníu. Erlent 24.9.2009 07:24
Indverjar finna vatn á tunglinu Indverjar hafa fundið vatn á tunglinu, fyrstir manna. Þetta gerðist í fyrsta tunglleiðangri þeirra en þar var á ferð ómannað könnunarfar með búnað sem sérstaklega var ætlað að leita að ummerkjum um vatn. Erlent 24.9.2009 07:22
Mafíukrókódíll upptækur Lögregla í Napólí á Ítalíu gerði krókódíl í eigu mafíuforingjans Sergio Di Mauro upptækan við húsleit á heimili hans í síðustu viku. Erlent 24.9.2009 07:18
Páfi heimsækir Breta á næsta ári Benedikt XVI páfi heldur í opinbera heimsókn til Bretlands á næsta ári og verður það í fyrsta sinn síðan 1982 sem páfi heimsækir landið. Erlent 24.9.2009 07:17
Verðið lækkar erlendis Heimsmarkaðsverð á hráolíu féll um tæp fjögur prósent og fór undir sjötíu dali á tunnu í gær eftir að bandaríska orkumálaráðuneytið birti vikulega tölur um olíubirgðir í landinu. Erlent 24.9.2009 06:00
Þyrlan hafði takmarkaða burðargetu Þyrlan sem notuð var við að ræna peningageymslu öryggisfyrirtækis í Svíþjóð í morgun hafði mjög takmarkaða burðargetu. Aram Rubinstein, sem er þyrluflugmaður og rekur þyrluflugþjónustu, telur að hún hafi getað borið um 100 kíló af peningaseðlum sem gæti samsvarað 45 milljónum sænskra króna eða um 810 milljónum íslenskra króna. Þyrlan var af gerðinni Bell 206. Erlent 23.9.2009 23:04
Obama að ávarpa allsherjarþing SÞ Barack Obama Bandaríkjaforseti hóf fyrir stundu fyrstu ræðu sína á allsherjarþingi Sameinuðu Þjóðanna sem nú stendur yfir. Ræðan hófst klukkan hálftvö að íslenskum tíma og er búist við því að forsetinn muni afra yfir aðgerðir Bandaríkjamanna til þess að takast á við alheimskreppuna auk þess sem búist er við því að Obama lýsi þeirri viðhorfsbreytingu sem átt hefur sér stað í Hvíta húsinu gagnvart Sameinuðu þjóðunum frá því hann tók við. Erlent 23.9.2009 13:45