Erlent

Mannfall eftir flóðbylgju í Kyrrahafi

Talið er að einhverjir hafi látið lífið eftir að flóðbylgja skall á Samóaeyjar í kjölfar jarðskjálfta á hafsbotni skammt frá eyjunum í Kyrrahafi nú í kvöld. Jarðskjálftinn mældist um 8,0 á Richter. Það er Sky News sem greinir frá.

Erlent

Háfleygar konur

Það var stokkið fyrir málstaðinn í Kaliforníu um síðustu helgi. Eitthundrað áttatíu og ein kona setti þá heimsmet með því að spenna á sig fallhlíf og stökkva saman úr flugvélum.

Erlent

Réttað yfir rógberum í Frakklandi

Dominique de Villepin fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands kom fyrir rétt í dag vegna ásakana um að hann hafi tekið þátt í ófrægingarherferð gegn Nicolas Sarkozy forseta, fyrir síðustu forsetakosningar.

Erlent

Á að myrða Barack Obama?

Bandaríska leyniþjónustan rannsakar nú atkvæðagreiðslu sem sett var inn á Facebook um hvort rétt sé að myrða Barack Obama.

Erlent

Var í rétti - í fyrstu

Dani á þrítugsaldri var handtekinn í bænum Bjæverskog á Sjálandi í gærkvöldi eftir að vörubílstjóri ók á bíl hans og var í órétti.

Erlent

Tugmilljónir dollara í gámum

Mexíkóskir og kólumbískir lögreglumenn hafa í samvinnu við bandaríska starfsbræður sína fundið samtals 41 milljón dollara í reiðufé, falið í nokkrum vöruflutningagámum sem allir voru á leið til Kólumbíu.

Erlent

Segir Obama marxista

Fyrrum dægurlagasöngvarinn Andy Williams, sem einnig er harður repúblikani, ásakar Barack Obama Bandaríkjaforseta um að fylgja kenningum marxista og vilja koma amerísku þjóðfélagi á kné.

Erlent

Starbucks eyðileggur samskipti

Starbucks-kaffihúsakeðjan dregur úr samskiptum milli fólks og eyðileggur eðlilegt samfélagslíf. Þetta fullyrðir sagnfræðiprófessor við Temple-háskólann í Fíladelfíu eftir að hafa rannsakað 425 Starbucks-kaffihús í níu löndum.

Erlent

Minnst 140 látnir og 32 saknað í Manila

Tala látinna í flóðunum í Manila, höfuðborg Filippseyja, er komin upp í 140 en 32 er saknað. Óttast er að dauðsföllum eigi eftir að fjölga en rúmlega 450.000 manns hafa þurft að flýja heimili sín og ferðast fólk og björgunarlið um borgina með bátum af öllum stærðum og gerðum.

Erlent

Íranar sýna hvað þeir geta

Íranski herinn skaut upp í tilraunaskyni flugskeyti af nýrri og fullkominni gerð, sem dregur nógu langt til að bæði Ísrael og bandarískar herstöðvar við Persaflóa eru í skotfæri.

Erlent

Minnst fimmtíu drepnir í Gíneu

Hermenn hafa myrt yfir fimmtíu manns í vestur afríska ríkinu Gíneu í dag. Fimmtíu þúsund manns kom saman á fótboltavelli í höfuðborginni og mótmæltu framboði Moussa „Dadis" Camara.

Erlent

Heppnasta þorp Danmerkur

Svo virðist sem óvenju margt heppið fólk búi í þorpinu Græsted í Danmörku. Græsted hefur verið útnefnd heppnasta þorp í landinu.

Erlent

Íranar skutu langdrægri flaug á loft

Íranar skutu í morgun á loft langdrægri eldflaug af gerðinni Shahab 3 en þeirri flaug má skjóta allt að 2.000 kílómetra sem táknar að Ísrael og margar herstöðvar Bandaríkjamanna í Mið-Austurlöndum eru innan færis hennar.

Erlent

Októberhátíðir um allan heim

Árleg októberhátíð Þjóðverja er hafin en bjórunnendur sem ekki hafa tök á að fara til Þýskalands geta heimsótt eins konar útibú hátíðarinnar víða um heim.

Erlent

Rændu peningum og fjölda skotvopna

Tveir ræningjar í Albertslund í Kaupmannahöfn réðust inn á heimili sextugs manns á föstudaginn og neyddu hann til að afhenda sér lykla að rammgerðum skotvopnaskáp.

Erlent

Guardian fjallar um hrunið á Íslandi

Ummæli Davíðs Oddssonar þáverandi seðlabankastjóra í Kastljósi í fyrra, um að Íslendingar ætli sér ekki að greiða skuldir óreiðumanna, urðu meðal annars til þess að Bretar frystu eignir Landsbankans í skjóli hryðjuverkalaga, segir í grein í breska blaðinu Guardian í dag.

Erlent

Móðgaði Brown með spurningum um lyfjanotkun

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, er sármóðgaður út í Andrew Marr, helsta stjórnmálaskýranda BBC, eftir að Marr spurði hann í viðtali um helgina hvort hann notaði lyf til að komast gegnum daginn.

Erlent

83 látnir og margra saknað

Að minnsta kosti 83 hafa látist og 23 er saknað eftir að fellibylurinn Ketsana gekk yfir norðurhluta Filippseyja. Flóðin á svæðinu eru þau mestu í fjóra áratugi. Rigningu kyngdi látlaust niður í einn sólarhring og var hún álíka mikil þennan sólahring og meðaltal alls september­mánaðar. Rúmlega 330 þúsund manns þurftu að glíma við afleiðingar fellibylsins. Þar af voru 59 þúsund manns flutt í um eitt hundrað skóla, kirkjur og önnur húsnæði. Margir íbúar misstu allar eigur sínar en voru engu að síður þakklátir fyrir að vera enn á lífi. „Við erum komin aftur á byrjunarreit,“ sagði einn íbúanna.

Erlent

Aukin pressa á Íransstjórn

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti fyrir helgina einróma að „skapa skilyrði þess að heimurinn verði án kjarnorkuvopna“.

Erlent

Írar nú sáttari við Lissabon-sáttmálann

Örlög Lissabon-sáttmála Evrópusambandsins ráðast í þjóðar­atkvæðagreiðslu á Írlandi næsta föstudag. Samkvæmt skoðanakönnun, sem birt var fyrir helgi, eru góðar líkur til þess að samningurinn verði samþykktur.

Erlent

Pulitzer verðlaunahafi fellur frá

William Safire pistlahöfundur og ræðuskrifari lést í dag á líknarheimili í Rockville. Banamein hans var ristilkrabbamein. Safire var kunnur pistlahöfundur. Hann hlaut Pulitzer blaðamannaverðlaunin árið 1978 og skrifaði pistla á hálfsmánaðarfresti í New York Times á árunum 1973 - 2005.

Erlent

Angela Merkel lýsti yfir sigri í kosningunum

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hefur lýst yfir sigri í þingkosningunum þar í landi. Flokkur hennar, Kristilegir demókratar, geta myndað stjórn með frjálsum demókrötum ef niðurstöður verða eins og fyrsta útgönguspá gefur til kynna. Sextíu og tvær milljónir manna eru á kjörskrá í Þýskalandi en kjörstöðum hefur verið lokað.

Erlent