Erlent
Borgarstjóri Lundúna bjargaði konu í neyð Heimildarmyndagerðakonan Franny Armstrong komst heldur betur í hann krappann á mánudagskvöldinu þegar hún var að ganga heim til sín í London. Í viðtali við The Daily Mail segist hún hafa verið að senda smáskilaboð úr símanum sínum á sama tíma og hún gekk heim á leið. Skyndilega var henni hrint harkalega utan í bifreið. Hún leit upp og sá hóp unglingsstúlkna en ein þeirra var vopnuð straujárni. Erlent 3.11.2009 21:02
Buffætur böðlast á konu Tveim af varðmönnum Turnsins í Lundúnum, Tower of London, hefur verið vikið úr starfi fyrir að áreita einu konuna sem tilheyrir varðsveitinni. Erlent 3.11.2009 16:48
Hamas fá langdrægari eldflaugar Yfirmaður leyniþjónustu ísraelska hersins segir að Hamas samtökin á Gaza svæðinu hafi fengið íranskar eldflaugar sem séu miklu langdrægari en þær eldflaugar sem þau hafa ráðið yfir hingaðtil. Erlent 3.11.2009 15:29
Frægar mannætur í Chicago Tvö frægustu mannætuljón heims eru nú til sýnis í náttúrufræðisafninu í Chicago. Kannski rétt að taka fram að þau eru uppstoppuð. Erlent 3.11.2009 14:09
Tvíburaturnarnir koma til hafnar í New York Nýjasta herskip bandaríska flotans, USS New York kom til heimahafnar í New York í gær. Stefni skipsins er byggt úr stáli sem tekið var úr rústum tvíburaturnanna eftir hryðjuverkaárásina árið 2001. Erlent 3.11.2009 13:47
Úps Konuna hans Davors Ivanovics langaði til að gefa honum skemmtilega afmælisgjöf. Davor var í viðskiptaferð í Zagreb í Króatíu á afmælisdaginn. Erlent 3.11.2009 13:30
Putin hótar annarri gaslokun Í janúar síðastliðnum lokuðu Rússar í tvær vikur fyrir gasflutning til Evrópu um leiðslur sem liggja í gegnum Úkraínu. Erlent 3.11.2009 11:19
Snjórinn að hverfa á Kilimanjaro Snjórinn á Kilimanjaro gæti horfið á næstu tveim áratugum að mati vísindamanna sem hafa nýlokið við rannsókn á þessu hæsta fjalli Afríku. Erlent 3.11.2009 10:23
Vonda skapið æskilegra sýnir rannsókn Ástralar telja sig nú hafa sýnt fram á það með rannsókn að ákaflega hollt sé að vera í mjög vondu skapi annað slagið. Erlent 3.11.2009 08:42
Jörð skelfur á Grikklandi Jarðskjálfti reið í morgun yfir vesturhluta Grikklands. Að sögn yfirvalda var skjálftinn 5,7 á Richter-kvarðanum en engar fregnir hafa borist af tjóni eða slysum af völdum hans. Upptök skjálftans voru neðansjávar, um 330 kílómetra frá höfuðborginni Aþenu og nærri eyjunni Zakynthos. Jarðskjálftar eru algengir á svæðinu og því eru byggingar á eyjunni og á nærliggjandi eyjum hönnuð til þess að standast skjálfta af þessari stærðargráðu. Erlent 3.11.2009 08:34
Myndskeiði af Madeleine dreift á netinu Lögreglan í Bretlandi hefur gefið út myndband sem sýnir hvernig líklegt er að Madeleine McCann, litla telpan sem hvarf í portúgal fyrir þremur árum síðan lítur út í dag. Aðstandendur rannsóknarinnar vonast til þess að myndbandið, sem fólk er hvatt til að dreifa á internetinu, muni meðal annars ýta við samvisku þeirra sem kunna að vita eitthvað um afdrif Maddíar, sem hvarf úr rúmi sínu í portúgalska strandbænum Praia da Luz í maí 2007. Erlent 3.11.2009 07:41
Sarkozy auglýsti þvottaduft 12 ára Komið hefur í ljós að Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti lék í auglýsingu fyrir þvottaduft árið 1967, þá 12 ára gamall. Erlent 3.11.2009 07:19
E.Coli-sýking í bandarísku nautahakki Bakteríusýking í nautahakki er að öllum líkindum orsök tveggja dauðsfalla í Bandaríkjunum en tæplega 30 hafa veikst. Erlent 3.11.2009 07:11
Fyrrum KGB-njósnari skotinn á götu Fyrrverandi KGB-njósnari var skotinn til bana af óþekktum byssumönnum á götu í Moskvu í gær. Rússneska fréttastofan ITAR-Tass greindi frá þessu. Erlent 3.11.2009 07:08
Segja Karadzic sjá eftir því einu að nokkrir múslimar sluppu Slátrarinn frá Bosníu, Radovan Karadzic, sem nú er réttað yfir við stríðsglæpadómstólinn í Haag, sá eftir því einu að einhverjir múslimar sluppu á lífi frá fjöldamorðunum í Srebrenica sumarið 1995. Erlent 3.11.2009 07:06
Var rukkaður um 88,9 milljarða Bandarískur maður hefur verið dæmdur til að greiða 711 milljón dollara sekt fyrir tilraun til að svíkja notendur Facebook-samskiptavefjarins. Erlent 3.11.2009 06:00
Kaupa meiri tónlist en hinir Þeir sem stela tónlist af netinu kaupa líka tónlist fyrir jafnvirði 15.700 króna að meðaltali á ári. Þeir sem segjast ekki stunda ólöglegt niðurhal kaupa tónlist fyrir rúmlega níu þúsund krónur á ári. Þetta kemur fram í nýrri könnun í Bretlandi, sem BBC greinir frá. Erlent 3.11.2009 01:00
Í átt að reglum um vopnasölu Sameinuðu þjóðirnar stigu á föstudag skref í átt að því að setja reglur um alþjóðlega vopnasölu, þegar meirihluti þjóða samþykkti að reyna að semja slíkar reglur fyrir árið 2012. Erlent 3.11.2009 01:00
Albínóamorðingjar dæmdir til dauða Fjórir karlmenn í Tansaníu hafa verið dæmdir til dauða fyrir að myrða albínóa. Morðið var framið á síðasta ári en morðið er eitt af fimmtíu albínóamorðum sem hafa verið framin undanfarið í Tansaníu. Erlent 2.11.2009 23:24
Obama hvetur Karzai til þess að beita sér gegn spillingu Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, hvetur Hamid Karzai, nýkjörinn forseta Afganistan, til þess að skrifa nýjan kafla í leiðtogahlutverki sínu í Afganistan. Obama óskaði leiðtoganum til hamingju í dag en Karzai var réttkjörinn leiðtogi Afganistan eftir að andstæðingur hans, Abdullah Abdullah, dró framboð sitt til baka og sakaði Karzai um kosningasvik. Erlent 2.11.2009 21:49
Loksins eftirlit með hefðbundnum vopnum Þótt hungursneyð og vesöld ríki víða um heim er það einhvernvegin svo að jafnvel hjá þeim þjóðum sem eru verst staddar er enginn skortur á vopnum. Erlent 2.11.2009 16:25
Farþeginn hvarf úr aftursæti flugvélar Það er erfitt að segja hvorum hafi brugðið meira flugmanni eða farþega einnar af listflugvélum Suður-Afríska flughersins sem fóru saman í loftið um síðustu helgi. Erlent 2.11.2009 15:27
Reið hesti upp í Sívala turninn í Kaupmannahöfn Danskur hestamaður bíður þess nú að sjá hvort hann verður kærður fyrir að ríða á hesti sínum upp í Sívala turninn í Kaupmannahöfn. Erlent 2.11.2009 14:45
Hætt við kosningar í Afganistan Engar kosningar verða í Afganistan um næstu helgi eins og til stóð. Hamid Karzai hefur verið lýstur réttkjörinn forseti landsins eftir að mótframbjóðandi hans Abdullah Abdullad hætti við framboð sitt. Erlent 2.11.2009 13:38
Silvio lætur ekki hrekja sig úr embætti Silvio Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu segir að hann muni sitja áfram í embætti jafnvel þótt hann hljóti dóm í málaferlum sem nú standa yfir gegn honum. Erlent 2.11.2009 10:17
Polanski býður himinháa tryggingu Lögfræðingur Romans Polanski segir að hann muni í dag bjóðast til að leggja fram himinháa tryggingu fyrir því að verða látinn laus úr svissnesku fangelsi. Erlent 2.11.2009 09:51
Bjóða sambýliskonu Larssons fé Kaflaskil hafa orðið í deilu fyrrverandi sambýliskonu Stieg Larssons og bróður hans og föður um arf hans. Þau hafa deilt um auð Larssons en tekjur af bókum hans og kvikmyndaréttum af þeim sem nema hundruðum milljóna íslenskra króna. Erlent 2.11.2009 09:38
Metfjöldi framseldur til Bandaríkjanna Aldrei hafa fleiri afbrotamenn verið framseldir frá Mexíkó til Bandaríkjanna en á þessu ári. Erlent 2.11.2009 08:48
Fyrsta geimhótelið opnar 2012 Spænskt fyrirtæki stefnir á að opna fyrsta geimhótelið árið 2012. Það heitir Galactic Suite Space Resort og nóttin kostar milljón evrur, litlar 184 milljónir króna. Erlent 2.11.2009 08:42
Óvíst með kosningar í Afganistan Óljóst er á þessari stundu hvort fyrirhugaðar forsetakosningar sem halda átti í Afganistan næsta laugardag verði haldnar. Um aðra umferð var að ræða þar sem talið var að stuðningsmenn sitjandi forseta, Hamids Karzai hefðu beitt brögðum í fyrri umferðinni þegar hann fékk meirihluta atkvæða. Því var ákveðið að kjósa upp á nýtt á milli Karzais og helsta keppinautar hans Abdullah Abdullah. Erlent 2.11.2009 07:24
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent