Erlent

Neyðarástandi lýst yfir á Salómonseyjum

Sextán eru látnir og fjörutíu er saknað eftir skyndiflóð sem herjað hafa á Salómonseyjar í Suður-Kyrrahafi í dag og nótt. Yfir tíu þúsund manns hafa misst heimili sín í flóðunum.

Erlent

Leit hafin að svarta kassanum neðansjávar

Leitarsveitir á Indlandshafi eru nú byrjaðar að nota bergmálsmælitæki til þess að reyna að staðsetja svarta kassann svokallaða úr þarþegaþotu Malaysian Airlines sem hvarf þann áttunda mars síðastliðinn með 239 manns innanborðs.

Erlent

Annar stór skjálfti í Síle

Annar öflugur jarðskjálfti, að þessu sinni upp á 7,6 stig, reið yfir Síle seint í gærkvöldi, réttum sólarhring eftir að skjálfti upp á 8,2 stig olli þar miklu tjóni.

Erlent

Skaut þrjá og særði sextán í Texas

Bandarískur hermaður gekk berserksgang á Fort Hood herstöðinni í Texas í gærkvöldi og hóf skothríð á félaga sína. Hann varð þremur að bana og særði sextán áður en hann framdi sjálfsmorð.

Erlent

Ólíklegt að dregið verði úr olíunotkun

Olíufyrirtæki telur nánast engar líkur á því að ríki heims muni koma sér saman um að draga verulega úr notkun jarðefnaeldsneytis, þrátt fyrir nokkuð almenna vitneskju um afleiðingarnar. Loftslagsnefnd SÞ segir að enginn verði óhultur.

Erlent

NATO slítur öllu samstarfi við Rússa

Anders Fogh Rasmussen, fráfarandi framkvæmdastjóri NATO, tilkynnti þetta á blaðamannafundi í gær og sagði hann jafnframt að besta leiðin til að leysa þá deilu sem ríki í samskiptum Rússa og Úkraínumanna væri með pólitískum viðræðum.

Erlent