Óttast að djammarar muni ekki pin-númerin Freyr Bjarnason skrifar 21. janúar 2015 09:00 Össur Hafþórsson segir að pinnið á minnið eigi eftir að róa partíið niður og óttast að það verði svolítið vesen. Vísir/Pjetur
Skemmtistaðaeigendur í miðbæ Reykjavíkur eru uggandi því um næstu helgi þurfa allir djammarar að vera búnir að leggja pinnið sitt á minnið. Ekki verður lengur nóg að ýta bara á græna takkann ef pinnið gleymist. Óvíst er hvort þeir eigi allir jafnauðvelt með að muna eftir pin-númerinu á kortunum sínum, sérstaklega ef þeir eru í glasi. „Þetta verður eitthvað bíó vegna þess að fólk er ekki alveg í besta skapinu og besta standinu þegar líður á nóttina. Ég held að þetta verði svolítið vesen,“ segir Össur Hafþórsson sem, ásamt eiginkonu sinni Lindu Mjöll Þorsteinsdóttur, á staðina Park, Bar 11 og Bar 7.Sjá einnig:Laugardagar eru bestu dagarnir til að djamma Hann hefur heyrt af því að aðrir veitingamenn séu órólegir yfir komandi helgi. „Ég veit ekki hvernig þetta fer. Það er spurning hvort fólk tattúveri þetta á úlnliðinn á sér og barþjóninn geri þetta fyrir það vegna þess að fólk man oft ekki hvar það er, hvað þá að það muni pinnið sitt.“ Össur segir að barþjónar verði einfaldlega að hafa þolinmæðina að vopni. „Þetta á eftir að hægja alla afgreiðslu og róa partíið aðeins niður.“ Guðfinnur Sölvi Karlsson, eða Finni hjá Prikinu, býst við að það verði hikst fyrstu helgarnar. „Fólk getur verið helvíti heiladautt. Að muna númer getur verið virkilegt verkefni, sérstaklega þegar það er byrjað að síga á seinni helminginn en vonandi gengur þetta upp,“ segir Finni, sem sjálfur mundi ekki pin-númerið sitt þegar hann brá sér í bakaríið í gærmorgun.Sjá einnig:Er djamm í kvöld? „Ég var allsgáður þannig að ég veit ekki hvernig hinn venjulegi Jón verður klukkan hálffimm um morguninn. Áfengi fer ekkert rosalega vel með minnið, þannig að pinnið á minnið í áfengisvímu er örugglega erfiðara en pinnið á minnið í bakaríi á þriðjudegi. En við erum allir í stuði og tæklum þetta bara,“ segir hann hress. Arnar Gíslason, einn af eigendum Lebowski Bars og Dönsku kráarinnar, byrjaði um síðustu helgi að láta fólk stimpla inn pin-númerin sín á Lebowski Bar og segir að það hafi gengið vel. „Ég held að þetta verði fínt. Þetta tefur vissulega fyrir afgreiðslu en á móti hefur fólk aðeins meiri tíma til að kaupa skot, snafs eða eitthvað slíkt, þannig að þetta getur líka bætt söluna,“ segir Arnar. „Auðvitað verða einhverjir smá hnökrar en kúnnarnir hjá okkur eru mjög þolinmóðir og við reynum að vera þolinmóð á móti.“ Hann bætir við að helsta vandamálið hingað til hafi verið hversu margir gleymi kortunum sínum í posunum. „Það er búið að aukast gríðarlega mikið að fólk er að koma til okkar daginn eftir og ná í glötuð kort.“
Tengdar fréttir Lengra og betra djamm Miðbærinn. Árið er 1998. Allir skemmtistaðirnir loka kl. 03.00. Austurstrætið fyllist af fólki niður í grunnskólaaldur. Stemningin er eins og á útihátíð. Öll Lækjargatan bíður eftir leigubíl. Sumir slást. Aðrir eru að leita sér að eftirpartíi. 23. maí 2014 07:00 Hætti að djamma og léttist um 35 kíló „Ekki hafa áhyggjur af afgöngunum - Caroline skóflar þeim í sig.“ 23. desember 2014 16:30 Þetta elska Íslendingar: Laugardagsdjamm, lakkrís og lati hugsjónamaðurinn Lífið á Vísi hefur undanfarnar vikur tekið saman sumt af því sem Íslendingum finnst best með hjálp valinkunnra álitsgjafa. 21. desember 2014 11:00 „Þessir nemendur sofa ekki út eða djamma á kvöldin“ Alvarlegt ástand hefur skapast á heimilum fatlaðra framhaldsskólanema vegna verkfalls framhaldsskólakennara. Móðir fatlaðs drengs segir líf hans hafa raskast á alla mögulega vegu eftir að verkfallið hófst. 21. mars 2014 21:00 Mest lesið Troðningur á yfirfullri opnun: „Þetta var svolítið kreisí“ Lífið Betra að vera blankur nemi í New York Lífið „Get ekki hætt að hugsa um bragðarefinn sem hann pantaði“ Lífið Pétur Kr. og Ingibjörg selja 270 fermetra eign við Ægisíðu Lífið Gisti hálft ár á sófum hjá bekkjarfélögum Lífið Dannaðar dömur mættu með dramað Tíska og hönnun Upplifði stöðugan ótta við helvíti í samfélagi múslima í Svíþjóð Lífið „Fallegasti drengur í heimi“ er látinn Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: „Dagur sem mun aldrei gleymast“ Lífið Fékk lífið til baka á korteri eftir tólf ár af sársauka Lífið Fleiri fréttir Ljúffengar banana- og kakóbollakökur í nestisboxið Troðningur á yfirfullri opnun: „Þetta var svolítið kreisí“ Pétur Kr. og Ingibjörg selja 270 fermetra eign við Ægisíðu Barist upp á líf og dauða „Get ekki hætt að hugsa um bragðarefinn sem hann pantaði“ Langþráður draumur verður að veruleika Samsæriskenningar notaðar sem stjórntæki Stjörnulífið: „Dagur sem mun aldrei gleymast“ Gisti hálft ár á sófum hjá bekkjarfélögum Betra að vera blankur nemi í New York Kynlífið innantómt með öðrum en fyrrverandi Fékk lífið til baka á korteri eftir tólf ár af sársauka Staðfesta loks sambandið Einar og Milla skírðu drenginn Með blæðandi hjarta og ber örin með stolti Krakkatían: Kvennafrídagurinn, Ólsen ólsen og málsháttur Áslaug Arna kom alblóðug inn í sjúkratjaldið Upplifði stöðugan ótta við helvíti í samfélagi múslima í Svíþjóð Getur alls ekki verið einn Fréttatía vikunnar: Ungfrú Ísland Teen, Louvre-þjófnaður og hrukkur Myndaveisla: Troðfullur miðbær á kvennafrídegi Borgarfulltrúi bjargaði stolnum barnavagni „Segið að ég sé samkynhneigður en ekki ljúga með hitt“ Notaði ákveðinn mat til að hjálpa í krabbameinsmeðferðinni „Konu“ tónleikar í Hvolnum á Hvolsvelli í kvöld Kim Kardashian greindist með heilagúlp Stjörnurnar þökkuðu Vigdísi Björk deilir „heimi sínum óspilltum“ í nýrri tónleikamynd Óttaðist um líf sitt í Delta-flugi sem nauðlenti á Íslandi Þóttist ólétt, fæddi dúkkubarn og sagði það svo dáið Sjá meira
Lengra og betra djamm Miðbærinn. Árið er 1998. Allir skemmtistaðirnir loka kl. 03.00. Austurstrætið fyllist af fólki niður í grunnskólaaldur. Stemningin er eins og á útihátíð. Öll Lækjargatan bíður eftir leigubíl. Sumir slást. Aðrir eru að leita sér að eftirpartíi. 23. maí 2014 07:00
Hætti að djamma og léttist um 35 kíló „Ekki hafa áhyggjur af afgöngunum - Caroline skóflar þeim í sig.“ 23. desember 2014 16:30
Þetta elska Íslendingar: Laugardagsdjamm, lakkrís og lati hugsjónamaðurinn Lífið á Vísi hefur undanfarnar vikur tekið saman sumt af því sem Íslendingum finnst best með hjálp valinkunnra álitsgjafa. 21. desember 2014 11:00
„Þessir nemendur sofa ekki út eða djamma á kvöldin“ Alvarlegt ástand hefur skapast á heimilum fatlaðra framhaldsskólanema vegna verkfalls framhaldsskólakennara. Móðir fatlaðs drengs segir líf hans hafa raskast á alla mögulega vegu eftir að verkfallið hófst. 21. mars 2014 21:00