Úkraína

Úkraína

Höfuðborg: Kænugarður. Mannfjöldi: 36,7 milljónir (2025). Flatarmál: 603.500 ferkílómetrar.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Funduðu í Moskvu um enda­lok stríðsins

Vladimír Pútín Rússlandsforseti fundaði með sendinefnd Bandaríkjaforseta í Moskvu í dag. Sendinefndina skipa erindrekar Donalds Trump og Hvíta hússins, Steve Witkoff og Jared Kushner, tengdasonur Trumps, en tilgangur hennar er að binda enda á innrásarstríðið.

Erlent
Fréttamynd

Full­trúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís

Steve Witkoff, sérstakur erindreki Hvíta hússins, og Jared Kushner, sérstakur sendifulltrúi og tengdasonur Bandaríkjaforseta, munu heimsækja Rússland og Úkraínu um helgina. Bandaríkjaforseti segir þá koma með tillögu sem á að binda enda á stríðið.

Erlent
Fréttamynd

Pútín segir Rúss­land vera að vinna stríðið

Vladimír Pútín Rússlandsforseti fullyrðir að Rússland sé að vinna stríðið í Úkraínu. Rússneskar hersveitir sækji sífellt hraðar fram í stríðinu sem staðið hefur yfir síðan Rússar gerðu allsherjarinnrás í Úkraínu árið 2022.

Erlent
Fréttamynd

Mann­skæðar á­rásir á Kænugarð sjö­ttu nóttina í röð

Rússar gerðu í nótt umfangsmiklar árásir á Kænugarð og nærliggjandi svæði í Úkraínu, sjöttu nóttina í röð. Að minnsta kosti tólf létu lífið í árásunum en forseti Úkraínu segir nauðsynlegt fyrir Úkraínumenn að fá fleiri flugskeyti sem hægt er að nota gegn skotflaugum. Auk skotflauga notuðust Rússar einnig við þotuknúna sjálfsprengidróna og gerðu einnig árásir á Odesa við suðurströnd landsins.

Erlent
Fréttamynd

Minnst þrjá­tíu og sjö látin eftir á­rás Rússa

Í það minnsta þrjátíu og sjö eru látin eftir drónaárás Rússa vestan við Kænugarð í nótt. Fjörutíu og tvö eru slösuð, þar á meðal fjögur börn, segja yfirvöld á staðnum. Tæp fjögur hundruð hafa verið flutt af svæðinu í kjölfar árásarinnar.

Erlent
Fréttamynd

Vilja frið en ætla ekki að gefast upp

Úkraínumenn vilja frið en ætla ekki að öðlast hann með því að gefast upp fyrir Rússum. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hafi vanmetið úkraínsku þjóðina verulega.

Erlent
Fréttamynd

Færir Selenskí eldflaugateikningar

Andy Burnham, nýr forsætisráðherra Bretlands, ferðaðist í morgun til Kænugarðs í Úkraínu. Er það hans fyrsta opinbera heimsókn frá því hann tók við embætti í síðasta mánuði en þangað fór hann með teikningar af breskum og frönskum stýriflaugum sem hann ætlar að afhenda Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu.

Erlent
Fréttamynd

Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum

Forsvarsmenn herafla Bandaríkjanna hafa ákveðið að hætta tilraunum með sérstaka drónahersveit, sem hefur verið staðsett í Evrópu, og reynt að læra af reynslu Úkraínumanna. Hermennirnir eiga að snúa sér aftur að grunngildum sínum sem fótgönguliðar en eiga að miðla reynslu sinni til yfirmanna hersins.

Erlent
Fréttamynd

Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna við­vörunar um „samfélagskrísu“ í Rúss­landi

Rússum hefur ekki vegnað vel á víglínunni í Úkraínu í sumar og hafa lítið sótt fram en þó eitthvað og á nokkrum stöðum. Framsókn þeirra hefur að mestu verið bundin við víglínuna norður af Pokrovsk og í Dónetsk-héraði. Færa má þó rök fyrir því að þungamiðja stríðsins sé ekki lengur víglínan og að staðan þar skipti minna máli en langdrægar árásir Rússa og Úkraínumanna.

Erlent
Fréttamynd

Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur rekið aðstoðarskrifstofustjóra sinn eftir að tilkynnt var að hún væri til rannsóknar í nýju spillingarmáli. Einn fyrrverandi þingmaður og yfirmaður hjá úkraínskum ríkisbanka eru einnig til rannsóknar vegna gruns um spillingu.

Erlent
Fréttamynd

Fedorov kallar eftir for­seta­kosningum í Úkraínu

Mykhailo Fedorov, fyrrverandi varnarmálaráðherra Úkraínu, hefur kallað eftir því að boðað verði til forsetakosninga í landinu. Hann segir að Úkraínumenn megi ekki láta Rússa „halda lýðræðinu í gíslingu“; frelsið sé ástæða baráttu þeirra yfir höfuð.

Erlent
Fréttamynd

Lofar að minnast Panettiere á­vallt af virðingu

Vladimir Klitschko, barnsfaðir leikkonunnar Hayden Panettiere, segir fjölskylduna í mikilli sorg. Panettiere hafi yfirgefið þessa jörð allt of snemma og að þó svo að þau hafi ekki verið saman hafi hún verið mikilvægur hluti lífs hans og móðir dóttur þeirra, Kayu. Hann biður um frið til að glíma við sorgina og andlát hennar. 

Lífið
Fréttamynd

Eld­flaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu

Að minnsta kosti fimm eru látnir eftir stórfelldar dróna- og eldflaugaárásir Rússa í Úkraínu í nótt. Áfram skiptast ríkin á drónum og eldflaugum en úkraínsk drónaárás hæfði vöruhús netverslunarrisans rússneska Wildberries sem stóð í ljósum logum í morgun.

Erlent
Fréttamynd

Í basli með að finna nýjan sendi­herra í Washington DC

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, er í basli með að finna einhvern hæfan sem vill taka að sér starf sendiherra Úkraínu í Bandaríkjunum. Nokkrir sem forsetinn hefur leitað til hafa neitað því að fara til Washington DC en Selenskí rak nýverið fyrrverandi sendiherrann sem stendur frammi fyrir ásökunum um fjárdrátt.

Erlent