Erlent
eBay kaupir Skype Uppboðssíðan eBay hefur keypt netsímafyrirtækið Skype fyrir um 160 milljarða króna. Erlent 14.10.2005 06:41
Stefnir í spennandi kosningar Allt stefnir í æsispennandi þingkosningar í Noregi í dag. Samkvæmt skoðanakönnunum frá því í gær má vart á milli sjá hvort ríkisstjórn Kjells Magnes Bondeviks eða vinstriflokkarnir í stjórnarandstöðunni hafi betur og gætu úrslitin jafnvel ráðist á örfáum atkvæðum. Fari svo að hvorug fylkingin nái hreinum meirihluta gætu úrslitin ráðist á smáflokkunum, sem kæmust þá í oddaaðstöðu. Erlent 14.10.2005 06:41
Ekki seinagangur vegna litarháttar George Bush Bandaríkjaforseti hafnaði því í dag að stjórnvöld hefðu brugðist seint við hamförunum í suðurríkjum Bandaríkjanna vegna þess að flest fórnarlambanna hefðu verið blökkumenn og sagði fáránlegt að halda því fram að ekki hefði verið til nægur mannafli til björgunarstarfa vegna Íraksstríðsins. Þessi orð lét forsetinn falla eftir að hafa ekið um New Orleans í dag og kynnt sér aðstæður þar í borg, en hluti borgarinnar er enn á kafi eftir flóðin. Erlent 14.10.2005 06:42
Stefnir í sigur vinstriflokkanna Norðmenn kusu til þings í dag og skoðanakannanir sýna að mjótt er á mununum milli ríkisstjórnar Kjells Magnes Bondeviks og vinstri flokkanna í stjórnarandstöðu. Samkvæmt útgönuspám virðist stjórnin fallin og það nokkuð afgerandi. Erlent 14.10.2005 06:42
Endalok hernáms á Gasaströndinni Tímamót urðu fyrir botni Miðjarðarhafs í morgun þegar síðustu ísraelsku hermennirnir yfirgáfu Gasaströndina. Palestínumönnum hafa verið afhent yfirráð yfir svæðinu, en það er hér í veröldinni, liggur að Egyptalandi, Ísrael og Miðjarðarhafinu. Endalok hernámsins eru tvímælalaust stórt skref í friðarferlinu en þetta umtalaða landsvæði er þó ekki nema um 360 ferkílómetrar. Erlent 14.10.2005 06:42
Hóta árásum á Melbourne og LA Liðsmenn al-Qaida hóta árásum á Los Angeles og Melbourne í Ástralíu á næstunni. Hótunin kom fram á myndbandi sem birtist á sjónvarpsstöðinni ABC í gær, 11. september. Talið er að maðurinn sem komi fram á myndbandinu sé bandarískur al-Qaida liði sem áður hefur komið fram á myndbandsupptökum þar sem samtökin hóta árásum. Erlent 14.10.2005 06:41
Yfirmaður almannavarna hættur Michael Brown, yfirmaður almannavarna í Bandaríkjunum, sagði af sér í gær. Ákvörðun Browns kemur ekki á óvart. Hann hefur sætt harðri gagnrýni fyrir lélegt skipulag hjálparstarfs á flóðasvæðunum í suðurhluta landsins og á föstudaginn var hann látinn hætta sem yfirmaður aðgerða á vettvangi. Erlent 14.10.2005 06:42
Hætt við að neyða fólk burt Yfirvöld í New Orleans hafa hætt við að neyða þá sem enn eru eftir í borginni til að fara burt. Búið er að beita öllum hugsanlegum úrtölum og í nokkra daga hafa lögreglumenn gengið á milli húsa og beinlínis sótt fólk sem ekki hefur enn yfirgefið borgina. Talsmaður lögreglunnar sagði í gærkvöldi að enginn yrði færður burt með valdi þó að vissulega yrði haldið áfram að reyna að koma vitinu fyrir þá sem enn væru ekki farnir. Erlent 14.10.2005 06:41
Níu látnir í flóðum í Víetnam Að minnsta kosti níu hafa látist, þar af sjö börn, í flóðum í ánni Mekong í suðurhluta Víetnams að undanförnu. Nú þegar hafa 32 þúsund manns þurft að yfirgefa heimili sín vegna flóðanna og hættu á aurskriðum. Óttast er að fleiri kunni að látast þar sem flóðin hafa ekki enn náð hámarki sínu, en vatnsborðið er nú þegar orðið hærra en það var hæst í fyrra. Erlent 14.10.2005 06:41
Palestínumenn fagna á Gaza Mikil kæti ríkti meðal Palestínumanna sem streymdu í gær inn í yfirgefnar byggðir ísraelskra landtökumanna á Gazasvæðinu. Síðasti ísraelski hermaðurinn fór þaðan í fyrrinótt en þar með lauk 38 ára hernaðarlegum yfirráðum Ísraela á Gaza. Erlent 14.10.2005 06:42
Bilið minnkar í Þýskalandi Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, mætti í gær áskorendum sínum í síðustu sjónvarpskappræðunum fyrir þingkosningarnar á sunnudaginn. Nú á lokaspretti kosningabaráttunnar benda skoðanakannanir til að Jafnaðarmannaflokkur Schröders sé að vinna aftur nokkurt fylgi. Erlent 14.10.2005 06:42
200 sagðir látnir í Tal Afar Írakski herinn hefur nú drepið nærri 200 uppreisnarmenn og handtekið tæplega 300 í áhlaupi sínu á borgina Tal Afar nærri landamærum Sýrlands. Aðgerðin hófst á laugardag með stuðningi Bandaríkjahers, en talið var að á bilinu 350-500 uppreisnarmenn hefðust við í borginni. Að sögn háttsettra manna innan Írakshers er búist við að átökin standi áfram en að þeim verði lokið fyrir fimmtudag. Erlent 14.10.2005 06:42
Mikil spenna í kosningum í Noregi Mikil spenna ríkir í Noregi vegna þingkosninganna þar í dag. Stjórnar- og stjórnarandstöðuflokkarnir eru hnífjafnir í skoðanakönnunum og enginn treystir sér til að spá fyrir um úrslitin. Erlent 14.10.2005 06:41
Koma að hreinsistöð í Pétursborg Norræni fjárfestingarbankinn og umhverfisfjármögnunarfyrirtækið NEFCO eru meðal stærstu þátttakenda í umhverfisverkefni í Pétursborg í Rússlandi. Þar er hreinsistöð fyrir hartnær eina milljón íbúa nú tilbúin til notkunar. Talið er að hreinsistöðin muni hafa mikil áhrif á vatnsgæði í Finnskaflóa sem og annars staðar í Eystrasaltinu. Erlent 14.10.2005 06:42
Yfirburðarsigur flokks Koizumis Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn í Japan, flokkur Koizumis forsætisráðherra, vann yfirburðarsigur í þingkosningunum þar í landi í gær. Stjórnarflokkarnir hafa nú tvo þriðju hluta þingsæta í neðri deild þingsins og geta því keyrt mál í gegnum þingið sýnist þeim svo án afskipta efri deildarinnar. Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn hefur verið áratugi við völd í Japan. Erlent 14.10.2005 06:41
Segir eiturgasi hafa verið beitt Abu Musab al-Zarqawi, leiðtogi al-Qaida í Írak, sakar írakska og bandaríska hermenn um að hafa beitt eiturgasi í áhlaupi á borgina Tal Afar. Á nýrri hljóðupptöku, sem birtist á heimasíðu uppreisnarmanna í Írak í gær, segir al-Zarqawi að krossfaranir og skósveinar þeirra hafi beitt banvænum efnavopnum í bardögunum við Tal Afar, sem hafa staðið yfir undanfarna daga. Erlent 14.10.2005 06:41
Stjórnin fallin skv. útgönguspám Nú rétt í þessu var verið að loka kjörstöðum í Noregi og samkvæmt útgönguspám virðist sem ríkisstjórn Kjells Magnes Bondeviks sé á leið út og að rauðgræna bandalagið svokallaða vinni sigur, en með litlum mun þó. Samkvæmt útgönguspá TV2 fá vinstriflokkarnir 86 sæti af 169 sætum og munurinn er enn minni í útgönguspá norska ríkisútvarpsins en þar fá vinstriflokkarnir samtals 85 sæti. Erlent 14.10.2005 06:42
Hagen stærstur á hægrivængnum "Hér að kvöldi dags stefnir óneitanlega í að vinstristjórn taki við af stjórn Bondeviks. Mér finnst einna furðulegast hversu stórt tap Hægriflokksins er. Ég hef fylgst vel með norskum stjórnmálum og mér hefur sýnst flokkurinn hafa staðið sig nokkuð vel," sagði Magnús Þór Hafsteinsson, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins í gærkvöldi. Erlent 14.10.2005 06:42
Gæti ráðist á örfáum atkvæðum Úrslit í þingkosningunum í Noregi gætu oltið á örfáum atkvæðum, svo lítill er munurinn á fylgi vinstri flokkanna og bandalagi miðju- og hægriflokkanna samkvæmt skoðanakönnunum, daginn fyrir kosningar. Erlent 14.10.2005 06:41
Tólf drukknuðu Í það minnsta tólf líkum skolaði upp að suðurströnd Sikileyjar í gærmorgun eftir að skip hlaðið ólöglegum innflytjendum lenti í sjávarháska undan ströndum eyjunnar. Talið er að fólkið sé allt frá Erítreu. Nokkrir táningar voru í hópi þeirra sem létust. Í það minnsta hundrað manns var bjargað úr skipinu og margir þeirra fluttir á sjúkrahús. Erlent 14.10.2005 06:41
Koizumi mun láta af embætti Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, sagði nú síðdegis að hann myndi láta af embætti þegar kjörtímabili ríkisstjórnar hans lýkur á næsta ári, þrátt fyrir að allt stefni í öruggan sigur flokks hans í kosningunum sem fram hafa farið í Japan í dag. Erlent 14.10.2005 06:41
Mestu óeirðir í nær áratug Eldarnir í Belfast loguðu fram eftir degi í kjölfar mestu óeirða síðari ára sem brutust út í Belfast í fyrrinótt. Þúsundir baráttumanna úr röðum mótmælenda gengu berserksgang eftir að yfirvöld bönnuðu þeim að ganga um hverfi kaþólikka til að minnast sigra mótmælenda á kaþólikkum fyrr á öldum. Erlent 14.10.2005 06:41
Ætlar ekki að beita valdi Russel L. Honore hershöfðingi sem stjórnar aðgerðum Bandaríkjahers við rýmingu New Orleans segir að hermenn hans muni ekki beita valdi til að fá íbúa borgarinnar í burtu. Erlent 14.10.2005 06:41
Rafmagnað andrúmsloft á kjördag Nokkur atkvæði geta ráðið úrslitum um það hvort mynduð verður hægri- eða vinstristjórn að loknum kosningum til norska Stórþingsins sem fram fara í dag. Erlent 14.10.2005 06:41
Prins bjargar samvöxnum tvíburum Indverskir læknar rannsaka möguleikana á að skilja að tvíburasysturnar Saba og Farah sem fæddust með samvaxin höfuð fyrir tíu árum. Foreldrar stúlknanna hafa ekki efni á aðgerðinni en eftir að faðir þeirra sagði í blaðaviðtali að hann vonaðist eftir kraftaverki ákvað krónprinsinn í Abu Dhabi að borga fyrir aðgerðina ef hún væri framkvæmanleg. Erlent 14.10.2005 06:41
Tímósjenkó höll undir auðjöfra Viktor Júsjenkó, forseti Úkraínu, sagði í gær að ástæðan fyrir stjórnarkreppu og brottrekstri ríkisstjórnar Júlíu Tímósjenkó hafi verið að hún hefði verið höll undir ákveðna auðjöfra í þjóðnýtingarferli á málmverksmiðjum landsins. Erlent 14.10.2005 06:41
Enn óljóst um tölu látinna Minningarathafnir um fórnarlömb hryðjuverkaárásanna 11. september voru haldnar í nokkrum skugga fellibylsins Katrínar. Bandaríska þjóðin er enda rétt að gera sér grein fyrir því sem gerðist á hamfarasvæðunum í suðurhluta landsins og enn er langt þar til ljóst verður hversu margir týndu þar lífi. Erlent 14.10.2005 06:41
Þrír Palestínumenn særðust Þrír Palestínumenn særðust þegar ísraelskir hermenn skutu á hóp þúsunda Palestínumanna sem safnast hafði saman við mærin að landnemabyggðunum á Gaza í dag. Búið er að rýma allar byggðir gyðinga á svæðinu og á nú aðeins eftir að flytja síðustu hersveitir Ísraela á brott en ráðgert er að Palestínumönnum verði afhent landið með viðhöfn á morgun. Erlent 14.10.2005 06:41
Átök í kirkjugarðinum Átök brutust út þegar nokkur þúsund manns gengu um götur Santíago, höfuðborgar Chile, til að minnast þess að 32 ár væru liðin frá valdaráni Augustos Pinochet. Þrettán voru handteknir en ekki kom fram hvort einhverjir hefðu meiðst. Erlent 14.10.2005 06:41
Hótanir skila engu Íranir eru staðráðnir í að hætta ekki við áform sín um að auðga úran og segir Manouchehr Mottaki, utanríkisráðherra landsins, að ályktanir frá Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna mundu engu breyta þar um. Erlent 14.10.2005 06:41