Erlent
Sjö létust í sjálfsmorðsárás Sjö létu lífið í sjálfsmorðsárás í vesturhluta Bagdad, höfuðborgar Íraks, fyrir stundu. Árásarmaðurinn keyrði bíl hlöðnum sprengiefnum að hópi lögreglumanna og sprengdi sig í loft upp. Einn lögreglumaður og sex óbreyttir borgarar létust í árásinni. Tíu lögreglumenn og sex óbreyttir borgarar særðust í árásinni. Erlent 23.10.2005 15:03
Neyðarástand í Mið-Ameríku Að minnsta kosti tvö hundruð og fimmtíu manns hafa farist í gríðarlegum aurflóðum í Mið-Ameríku og Mexíkó undanfarna daga. Erlent 23.10.2005 15:03
Flugferðum aflýst Hundrað þrjátíu og átta flugferðum hefur verið frestað eða aflýst og þúsundir farþega eru strandaglópar á Leonardo Da Vinci flugvellinum í Róm. Erlent 23.10.2005 15:03
400 börn létust í skólum sínum Fjögur hundruð börn létu lífið þegar tveir skólar í Pakistan hrundu í jarðskjálftanum sem reið yfir Pakistan, Indland og Afganistan. Skólarnir eru báðir í Mansehra héraði í norðvesturhluta Pakistans. Óttast er að um þúsund manns hafi látist á þeim slóðum. Erlent 23.10.2005 15:03
2000 fuglar drápust Um tvö þúsund fuglar drápust á einni nóttu í Tyrklandi úr hinni skæðu fuglaflensu. Fuglarnir voru í eigu bónda sem býr í þorpi í vesturhluta Tyrklands. Erlent 23.10.2005 15:03
Hundruð smábarna með matareitrun Um 360 leik-skólabörn í vesturhluta Úkraínu hafa verið lögð inn á spítala vegna matareitrunar. Að minnsta kosti fjögur barnanna voru alvarlega veik. Erlent 23.10.2005 15:03
Friðarverðlaun Nóbels afhent Ósló varð miðpunktur allrar fjölmiðlaathygli um skamma hríð í morgun þegar formaður norsku Nóbelsnefndarinnar sté fram og tilkynnti hver hlyti Friðarverðlaun Nóbels í ár. Þau skiptast í tvennt, á milli Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar og yfirmanns hennar, Egyptans Mohammads El-Baradeis. Erlent 23.10.2005 15:03
El-Baradai fær friðarverðlaunin Muhammad el-Baradei var nú fyrir stundu útnefndur til friðarverðlauna Nóbels. El-Baradei er yfirmaður kjarnorkumálaráðs Sameinuðu þjóðanna og barðist fyrir því á sínum tíma að vopnaeftirlitsmenn í Írak fengju meira svigrúm til að leita í landinu. Erlent 23.10.2005 15:02
Guðleg opinberun í Hvíta húsinu George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, er sagður hafa rökstutt innrásina í Írak og Afganistan með því að hafa fengið guðlega opinberun. Hvíta húsið vísar þessu hins vegar á bug. Erlent 23.10.2005 15:03
Hljótt um valnefnd í bókmenntum Enn hefur ekki verið tilkynnt hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í bókmenntum í ár. Valnefndin í bókmenntum, sem velur vinningshafann úr stórum hópi tilfnefndra skálda, er yfirleitt sú nefnd sem erfiðast á með að finna vinningshafa. Venju samkvæmt á að tilkynna úrslitin í bókmenntum á fimmtudeginum í Nóbelsvikunni, sem nú er komin að lokum, en svo var ekki gert þetta árið frekar en mörg önnur. Erlent 23.10.2005 15:03
300 þúsund manns flýja heimili sín Tæplega 300 þúsund manns hafa neyðst til að flýja heimili sín í norðvesturhluta Kína vegna þess að ár eru farnar að flæða yfir bakka sína og aukin hætta er á aurskriðum eftir gríðarlegar rigningar undanfarnar vikur. Ekki hafa borist neinar fréttir af manntjóni en sex létust í flóðum á þessu sama svæði í ágúst síðastliðnum. Erlent 23.10.2005 15:02
Stan: Tugþúsundir í neyðarskýlum Tugþúsundir manna hafast nú við í neyðarskýlum í suðurhluta Mexíkó þar sem flóð af völdum fellibylsins Stan hafa lagt hús og önnur mannvirki í rúst. Í nágrannaríkinu El Salvador eru meira en fimmtíu þúsund manns heimilislaus og alls hafa nú um tvö hundruð og fjörutíu manns látist eftir yfirreið fellibylsins um Mið-Ameríku. Erlent 23.10.2005 15:02
ElBaradei hlýtur nóbelsverðlaunin Friðarverðlaun Nóbels 2005 falla í skaut Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar og Mohammed ElBaradei, framkvæmdastjóra hennar. Ákvörðun nóbelsverðlaunanefndarinnar hefur hlotið blendnar viðtökur. Erlent 23.10.2005 15:03
Verkfall í Belgíu Belgískt verkafólk fór í sitt fyrsta verkfall í tíu ár í dag. Samgöngur fóru úr skorðum og einnig lokaði verkafólk bæði verksmiðjum og verslunum. Verkfallið stendur aðeins í dag og með því eru verkamenn að mótmæla hækkun eftirlaunaaldurs úr 58 árum í 60. Erlent 23.10.2005 15:03
Konur og lýðræði Tuttugu og tveggja manna íslensk sendinefnd tekur nú þátt í ráðstefnunni konur og lýðræði, sem fer fram í St. Pétursborg í Rússlandi. Þetta er fjórða og síðasta ráðstefnan í ráðstefnuröð sem ber sama heitið. Erlent 23.10.2005 15:02
500 milljarðar á mánuði Bandaríkjastjórn eyðir nálægt fimm hundruð milljörðum íslenskra króna mánaðarlega í baráttu gegn hryðjuverkum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu þingnefndar í Bandaríkjunum. Langstærstur hluti kostnaðarins fer í Íraksstríðið, eða sem nemur um fjögur hundruð milljörðum á mánuði. Innlent 23.10.2005 15:02
Á þriðja hundrað talin af Í það minnsta 250 manns hafa farist í flóðunum í Mið-Ameríku undanfarna daga. Þar af fórust fimmtíu manns í aurskriðu í Gvatemala í vikunni. Erlent 23.10.2005 15:03
Hvetur til vopnahlés vegna Ramadan Einn af leiðtogum súnníta í Írak hefur hvatt til vopnahlés á milli uppreisnarmanna og hermanna í landinu í hinum helga íslamska mánuði Ramadan sem nú er nýhafinn. Saleh al-Mutlak, sem m.a. vann að drögum að nýrri stjórnarskrá fyrir Írak, sagði enn fremur að nokkrir stjórnmálaflokkar súnníta í landinu sem þekktu til uppreisnarmanna hefðu boðist til að koma á viðræðum milli þeirra og Bandaríkjamanna til þess að reyna að binda enda á hin blóðugu átök í Írak. Erlent 23.10.2005 15:03
250 fasteignir haldlagðar Breska lögreglan lagði í gær hald á 250 fasteignir í Manchester sem talið er að tengist Írska lýðveldishernum, IRA. Eignirnar tengjast tveimur kaupsýslumönnum og annar þeirra er Thomas Murphy, sem talinn er einn af leiðtogum IRA. Erlent 23.10.2005 15:02
Fuglaflensa finnst í Rúmeníu Landbúnaðarráðherra Rúmeníu tilkynnti í dag að fundist hefði fuglaflensa í alifuglum þar í landi. Fuglarnir sem smit fannst í eru sagðir þrír en ekki hefur fengist staðfest hvort um banvænt afbrigði flensunnar er að ræða og verða sýni send til Bretlands til frekari rannsókna. Erlent 23.10.2005 15:03
Vill viðræður um sjálfstæði Kosovo Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, lagði til við öryggisráð samtakanna í dag að hafnar yrðu viðræður um það hvort Kosovo-hérað skuli fá sjálfstæði eða verða hluti af Serbíu eins og héraðið var áður en átök brustust út milli Serba og Kosovo-Albana seint á tíunda áratug síðustu aldar. Erlent 23.10.2005 15:03
Frábær hvatning Magnús Ólafsson, einn framkvæmdastjóra Alþjóða-kjarnorkumálastofnunar IAEA, segir mikinn fögnuð hafa ríkt á meðal starfsmannanna í höfuðstöðvunum í Vín í gær eftir að fregnir bárust að stofnunin og Mohammed ElBaradei, framkvæmdastjóri hennar, hefðu hlotið friðarverðlaun Nóbels. Erlent 23.10.2005 15:03
Sprengjuhótun á tónleikum Stones Ellismellirnir í Rolling Stones þurftu að gera 45 mínútna hlé á tónleikum sínum í Bandaríkjunum í gær eftir að sprengjuhótun barst tónleikahöldurunum. Hótunin barst símleiðis og var sagt að sprengjan væri við sviðið. Lífið 23.10.2005 15:02
Öryggisgæsla stóraukin í New York Öryggisgæsla hefur verið stóraukin við allar neðanjarðarlestarstöðvar í New York, eftir að yfirvöldum þar barst ábending um yfirvofandi hryðjuverkaárás. Lögreglumenn og þjóðvarðliðar hafa í kjölfarið leitað í töskum farþega í neðanjarðarlestunum, en fjórar og hálf milljón manna ferðast með þeim á hverjum virkum degi, á milli 468 lestarstöðva. Erlent 23.10.2005 15:03
Komu upp um forngripastuld Ítölsk lögregluyfirvöld greindu frá því í dag að þau hefðu leyst upp alþjóðlegan fornminjasmyglhring sem rænt hefur forngripum á Ítalíu og komið þeim til Austurríkis. Eftir því sem fram kemur í frétt Reuters mun 82 ára gamall leiðsögumaður hafa stjórnað smyglinu, en lögregla lagði hald á um þrjú þúsund muni á heimili hans í Austurríki sem talið er að hafi verið rænt á stöðum nærri Róm. Erlent 23.10.2005 15:03
Viðbúnaður hertur í New York Öryggisviðbúnaður hefur verið snarhertur við allar neðanjarðarlestarstöðvar í New York eftir að yfirvöldum þar barst hótun um hryðjuverkaárás á næstu dögum. Michael Bloomberg, borgarstjóri í New York, segir hótunina þá nákvæmustu sem yfirvöldum í borginni hafi borist hingað til og auk þess bendi upplýsingar leyniþjónustunnar til að fótur sé fyrir henni. Erlent 23.10.2005 15:02
Plútóníum í Thule Plútóníum hefur í fyrsta sinn mælst í jarðvegi í nágrenni herstöðvar Bandaríkjamanna í Thule á Grænlandi. Talið er að íbúum svæðisins geti stafað hætta af geisluninni, að því er Jyllands-Posten hermir. Erlent 23.10.2005 15:03
Vara við árás á jarðlest New York Michael Bloomberg, borgarstjóri New York, greindi frá því í dag að hætta væri á hryðjuverkaárás á neðanjarðarlestarkerfi borgarinnar á næstu dögum samkvæmt upplýsingum bandarísku alríkislögreglunnar. Bloomberg sagðist hafa vitað af ógninni í nokkra daga en hefði ekki greint almenningi frá því fyrr þar sem lögregla ynni að því að koma í veg fyrir slíka árás. Erlent 23.10.2005 15:02
Bóluefni verði fjöldaframleitt George Bush Bandaríkjaforseti mun hvetja lyfjaframleiðendur til þess að finna leiðir til framleiða bóluefni gegn fuglaflensu í miklu magni í ljósi þess að veikin getur orðið að heimsfaraldri. Erlent 23.10.2005 15:02
Níu fórust í sjálfsmorðsárás Níu fórust í sjálfsmorðsárás nærri olíumálaráðuneytinu í Bagdad í dag, og heimatilbún sprengja sprakk skammt frá hervagni í borginni. Ofbeldi setur mark sitt á síðustu dagana fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá, sem fer fram á miðvikudaginn kemur. Hersveitir berjast nú af hörku gegn uppreisnarmönnum í vesturhluta landsins. Erlent 23.10.2005 15:02