Erlent
Fá að sækja strandgæslumenn Norska strandgæslan hefur fengið leyfi til að sækja tvo strandgæslumenn um borð í rússneska togarann Elektron. Igor Dygalo, talsmaður rússneska norðurflotans, tilkynnti fyrir stundu að norska strandgæslan hefði fengið leyfi til að fara um inn í rússneska lögsögu til að sækja strandgæslumennina. Þeir mega þó ekki sækja þá fyrr en á morgun. Erlent 23.10.2005 17:50
Herferð gegn Darwinisma Bandarískur dómstóll fjallar nú um hvort grunnskóli nokkur megi kenna svonefnda heimshönnuðarkenningu sem valkost við þróunarkenninguna. Erlent 23.10.2005 17:57
Öflugur eftirskjálfti í Kasmír Öflugur eftirskjálfti reið yfir Kasmírhérað í morgun en ekki hafa fengist upplýsinga um hversu stór hann var. Skjálftinn vakti mikinn ótta meðal hjálparstarfsmanna og fórnarlamba stórskjálftans sem varð yfir fimmtíu og fjögur þúsund manns að bana fyrir rúmri viku en sá skjálfti var 7,6 á Richter. Erlent 23.10.2005 17:50
Heliosvél snúið við vegna bilunar Flugvél kýpverska flugfélagsins Helios þurfti að snúa aftur til Kýpur þegar bilunar varð vart skömmu eftir flugtak. Þetta er í þriðja skipti á innan við mánuði sem flugvélar félagsins verða að breyta út af áætlun sinni vegna tæknivandamála. 121 fórst þegar flugvél frá Helios hrapaði í fjöllunum norður af Aþenu, höfuðborg Grikklands, í ágúst. Erlent 23.10.2005 17:50
Clarke dottinn úr leik Kenneth Clarke, fyrrverandi fjármálaráðherra Bretlands, er dottinn úr leik í baráttunni um það hver verði næsti leiðtogi breska Íhaldsflokksins en Clarke fékk fæst atkvæði. Kosið verður að nýju á fimmtudag um þá þrjá sem eftir eru en þeir eru Liam Fox, David Cameron og David Davis en sá síðasti fékk flest atkvæði í kosningunni. Erlent 23.10.2005 17:50
Stefnt að feðraorlofi í Bretlandi Feður á Bretlandi munu fá þriggja mánaða launað feðraorlof ef frumvarp viðskiptaráðherra Bretlands nær fram að ganga. Samkvæmt núverandi lögum eiga mæður aðeins rétt á hálfs árs fæðingarorlofi á launum ásamt hálfu ári til viðbótar launalausu en feður hafa engan rétt til fæðingarorlofs á launum. Erlent 23.10.2005 17:50
Öflugasti fellibylur Atlantshafs Fellibylurinn Wilma setti met í dag og er nú skráður sem öflugasti fellibylur sem geisað hefur á Atlantshafinu og mældist ferð hans 280 kíilómetrar á klukkstund. Leið Wilmu liggur nú til vestur Kúbu og Yucatan-skagans í Mexíkó og búist er við honum á Flórída eftir því sem líður á kvöldið. Erlent 23.10.2005 17:50
Vill handtaka hermenn vegna morðs Dómari við dómstól á Spáni hefur gefið út alþjóðlega handtökuskipun á hendur þremur bandarískum hermönnum í tengslum við dauða spænsks myndatökumanns í Írak. Maðurinn léstn í apríl 2003 þegar skotið var úr skriðdreka á Palestine-hótelið í Bagdad sem var aðsetur flestra blaðamanna skömmu eftir innrás bandamanna í Írak. Erlent 23.10.2005 17:50
Kominn inn í rússneska landhelgi Rússneski togarinn Elektron, sem tekinn var við ólöglegar veiðar við Svalbarða á laugardag en stakk síðan af með tvo norska strandgæslumenn, er kominn inn í rússneska landhelgi. Togarinn er á leið til Múrmansk í fylgd rússnesks herskips sem beið hans við landhelgismörkin. Erlent 23.10.2005 17:50
Simpsons komin til arabaheimsins Nú er hægt að horfa á þættina um bandarísku Simpson-fjölskylduna í arabísku sjónvarpi. Þrátt fyrir að bandarísk utanríkisstefna njóti ekki beint mikilla vinsælda í arabaheiminum þá er talið að fjölskyldan ástsæla gæti slegið þar í gegn. Lífið 23.10.2005 17:50
Flensa í evrópska hluta Rússlands Óttast er að fuglaflensa hafi borist til evrópska hluta Rússlands. Yfirvöld í héraðinu Tula hafa fyrirskipað sóttkví. Erlent 23.10.2005 17:50
Viðbúnaður vegna Wilmu víða Wilma kostaði tíu manns lífið á Haítí þar sem aurskriður urðu í kjölfar mikillar rigningar. Síðan hefur henni vaxið ásmegin og ef fer sem horfir verður hún af kröftugustu gerð fellibylja þegar hún skellur á Kúbu og Mexíkó. Hún er ný þegar öflugasti atlantshafsfellibylur sem mælst hefur. Vindhraðinn í henni var til að mynda ríflega sextíu og sex metrar á sekúndu í morgun. Erlent 23.10.2005 17:50
Einn heima með látinni móður Lögregla í Edinborg -braust inn í íbúð í Leith um helgina og fann þar þriggja ára gamlan dreng illa á sig kominn. Í íbúðinni var einnig lík móður hans en talið er að hún hafi látist hálfum mánuði áður. Erlent 23.10.2005 17:57
Réttarhöldunum frestað Réttarhöld yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, hófust í morgun en var frestað fyrir stundu að beiðni lögfræðinga hans til 28. nóvember. Erlent 23.10.2005 17:50
Rice útilokar ekki langa hersetu Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, neitaði í gær að útiloka að bandarískir hermenn kynnu að verða í heilan áratug enn í Írak né að hervaldi yrði beitt gegn Sýrlandi eða Íran. Erlent 23.10.2005 17:50
Tala fórnarlamba hækkar enn Fórnarlömbum hamfaranna í Kasmír fjölgar með hverjum deginum sem líður. Nú er talið að 80 þúsund manns hafi látið lífið í jarðskjálftanum. Aðstæður eftirlifenda eru svo hrikalegar að tugþúsundir manna eru í hættu verði ekki gripið til róttækra björgunaraðgerða. Erlent 23.10.2005 17:50
Reifst og skammaðist við dómarann Í réttarhöldunum sem hófust í gær yfir Saddam Hussein og sjö samverkamönnum hans kvaðst einræðisherrann fyrrverandi vera saklaus. Dómhaldi hefur verið frestað um nokkrar vikur. Erlent 23.10.2005 17:57
Borða allt nema grænmetið Því meiri matur sem fólki er boðið upp á þeim mun meira borðar það, nema maturinn sé grænmeti. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu bandarískra vísindamanna sem leita leiða til að draga úr offitu. Erlent 23.10.2005 17:50
730 kíló af heróíni gerð upptæk Lögregluyfirvöld í Kína og nágrannaríkinu Myanmar gerðu tæplega 730 kíló af heróíni upptæk á dögunum sem smygla átti yfir landamærin til Kína. Sjötíu manns voru handteknir í aðgerðinni auk þess sem hald var lagt á töluvert magn vopna og tugi milljóna í bandarískum dollaraseðlum. Erlent 23.10.2005 17:50
Minnst spilling sögð á Íslandi Á árlega uppfærðum lista stofnunarinnar Transparency International, sem sérhæfir sig í að meta og fylgjast með spillingu í löndum heims, er Ísland talið minnst spillta land veraldar. Mest er spillingin aftur á móti í Tsjad, Bangladess, Túrkmenistan og Myanmar (Búrma). Erlent 23.10.2005 17:50
Bankar í höndum vinstrimanna Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, skammaði marga helstu bankastjóra landsins í dag fyrir að taka þátt í prófkjörum vinstriflokka á Ítalíu um síðustu helgi. Stjórnendur fjögurra af helstu bönkum landsins greiddu atkvæði í prófkjöri þar sem Romano Prodi, fyrrum forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, bar sigur úr býtum. Erlent 23.10.2005 17:50
Nýi Danaprinsinn kominn heim María Elísabet krónprinsessa og Friðrik krónprins Danmerkur sýndu nýfæddan son sinn í fyrsta sinn opinberlega í gær er þau fóru heim af fæðingardeildinni. Þau brostu sínu breiðasta, hún með prinsinn unga á arminum, þegar þau veifuðu til fjölmiðlafólks sem beið þeirra við innganginn að Ríkissjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn. Erlent 23.10.2005 17:50
Saddam sóttur til saka Réttarhöld yfir Saddam Hussein hefjast í Bagdad í dag en hann er ákærður fyrir að hafa fyrirskipað fjöldamorð á 143 sjíum árið 1982. Mannréttindasamtök bera brigður á sanngirni réttarhaldanna og segja þau stjórnast af hefnigirni. Erlent 23.10.2005 17:50
Vilma orðin að fellibyl Hitabeltisstormurinn Vilma er nú formlega orðin að fellibyl. Vindkviðurnar ná allt að eitthundrað sjötíu og sjö kílómetra hraða á klukkustund en þegar vindhraðinn er kominn í eitthundrað og nítján kílómetra á klukkustund eru óveður skilgreind sem fellibylir. Erlent 23.10.2005 17:50
Kastaði köku í nýja ráðherrann Kristin Halvorsen fékk óblíðar móttökur þegar hún mætti í fjármálaráðuneytið í fyrsta skipti eftir að hafa tekið við embætti fjármálaráðherra í norsku ríkisstjórninni, að því er vefútgáfa Verdens Gang greinir frá. Erlent 23.10.2005 17:50
Nýi Danaprinsinn kominn heim María Elísabet krónprinsessa og Friðrik krónprins Danmerkur sýndu nýfæddan son sinn í fyrsta sinn opinberlega í gær er þau fóru heim af fæðingardeildinni. Þau brostu sínu breiðasta, hún með prinsinn unga á arminum, þegar þau veifuðu til fjölmiðlafólks sem beið þeirra við innganginn að Ríkissjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn. Erlent 23.10.2005 17:50
Hjálparstarf gengur enn erfiðlega Fimmtíu og fjögur þúsund manns eru nú talin hafa farist í jarðskjálftanum sem reið yfir Kasmírhérað fyrir tíu dögum. Neyðaraðstoð hefur enn ekki borist til hálfrar milljónar manna. Fulltrúi Sameinuðu þjóðanna segir hjálparstarf í Kasmír erfiðara en eftir flóðbylgjuna miklu í Indlandshafi í fyrra, og telur ekki nógu mörg vetrartjöld til í heiminum til að veita öllum þeim sem eru heimilislausir eftir skjálftann, tímabundið húsaskjól í vetur. Erlent 23.10.2005 17:50
Þyrluloftbrú í Pakistan Loftbrú var mynduð með tugum herþyrlna til að flytja hjálpargögn til nauðstaddra í afskekktari byggðum í fjalllendinu í pakistanska hluta Kasmír í gær þar sem áætlað er að um hálf milljón manna sem lifði af jarðskjálftann mikla um þarsíðustu helgi bíði þess enn að þeim berist aðstoð. Erlent 23.10.2005 17:50
Kenneth Clarke kosinn út Kenneth Clarke, fyrrum fjármálaráðherra Bretlands, varð fyrsti frambjóðandinn til leiðtogaembættis breska Íhaldsflokksins til að falla úr leik. Þingmenn flokksins greiddu atkvæði um frambjóðendurna fjóra rétt í þessu og fékk Clarke fæst atkvæði. David Davis fékk flest atkvæði, en 62 af 198 þingmönnum greiddu honum atkvæði sitt. Erlent 23.10.2005 17:50
Evrópa ekki nógu vel undirbúin Evrópa er ekki nógu vel undirbúin fyrir fuglaflensufaraldur, en allt verður gert til að bæta úr því, segir yfirmaður heilbrigðismála hjá Evrópusambandinu. Stöðugt fjölgar þeim Evrópulöndum þar sem grunur leikur á að flensan hafi stungið sér niður. Erlent 23.10.2005 17:50