Erlent
Nýrri öryggissveit mótmælt Tugir vopnaðra Fatah-liða hröktu vara-forsætisráðherra heimastjórnar Palestínumanna á flótta úr borg á Vesturbakkanum í morgun, þar sem hann var kominn til fundar. Spenna milli stuðningsmanna Hamas og Fatah á Vesturbakkanum hefur magnast síðustu daga, sér í lagi eftir að heimastjórn Hamas stofnaði eigin öryggissveit í gær. Erlent 18.5.2006 12:18
Átta létust í Kína af völdum fellibyls Átta létu lífið, þar af tvö börn, þegar fellibylurinn Chanchu skall á suðurströnd Kína í morgun. Bylurinn hafði áður orðið þrjátíu og sjö að bana á Filippseyjum. Hátt í milljón manns hefur þurft að yfirgefa heimili sín í Suður-Kína vegna bylsins. Erlent 18.5.2006 12:10
Kona deyr úr fuglaflensu í Egyptalandi Sjötíu og fimm ára gömul kona í Egyptalandi lést úr fuglaflensu í morgun. Talsmaður Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar staðfesti þetta. Þar með hafa sex orðið flensunni að bráð þar í landi. Konan bjó í suðurhluta landsins og hafði að sögn komist í tæri við sýkta fugla. Erlent 18.5.2006 12:01
Röð sprenginga í Bagdad Ekkert lát virðist ætla að verða á ofbeldisverkum og sprengjuárásum í Írak. Sjö féllu og fjölmargir særðust í röð sprenginga í Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag. Þá voru átta skotnir til bana í borginni á sama tíma. Erlent 18.5.2006 10:28
80 féllu í átökum og árásum í Afganistan Um það bil 80 manns hafa farist í átökum og sjálfsvígsárás í Afganistan síðasta sólahringinn. Erlent 18.5.2006 08:48
Eiturlyfjabarón handtekinn í Brasilíu Lögregla í Bandaríkjunum, Brasilíu og Kólumbíu hafa að líkindum greitt einum umfangsmesta eiturlyfjahring í heimi náðarhöggið með aðgerðum sínum fyrr í vikunni. Þá var leiðtogi hans og einn eftirlýstasti eiturlyfjabarón í heimi handtekinn. Erlent 18.5.2006 08:45
Töluverðar lækkanir í Japan Gengi hlutabréfa lækkaði í kauphöllinni í Tókýó í Japan í dag í kjölfar lækkana á mörkuðum á Wall Street í Bandaríkjunum í gær. Þetta er sjöunda skiptið í röð sem gengi bréfanna lækkar í Japan og nemur heildarlækkunin 7 prósentum. Nikkei-225 hlutabréfavísitalan lækkaði um 1,35 prósent en lokagengi vísitölunnar stendur í 15.087,18 stigum. Viðskipti erlent 18.5.2006 09:41
Mótmælt við sendiráð Finna og Svía Sendiráð Finna og Svía í Buenos Aires í Argentínu urðu fyrir barðinu á æfum mótmælendum sem segja áætlanir um byggingu trjákvoðuverksmiðja í nágrannaríkinu Úrúgvæ skaða landbúnað og ferðamannaiðnað í Argentínu. Finnskt og sænskt fyrirtæki taka þátt í framkvæmdunum. Erlent 18.5.2006 08:12
Óvíst hvenær bandarískir hermenn koma heim frá Írak Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segist ekki geta lofað því að stór hluti þeirra bandarísku hermanna sem eru í Írak verði kallaðir heim fyrir lok þessa árs. Erlent 18.5.2006 08:02
Mesta lækkun Dow Jones í tvö ár Dow Jones vísitalan í Bandaríkjunum lækkaði um tvö prósent í gær eftir mikla niðursveiflu í Kauphöllum um alla Evrópu í gær. Þetta er mesta lækkun Dow Jones vísitölunnar á einum degi í tvö ár, og er meðal annars rakin til vaxandi verðbólgu í Bandaríkjunum, og að búist er við að bandaríski seðlabankinn hækki stýrivexti alveg á næstunni. Úrvalsvísitalan lækkaði mest í Svíþjóð í gær eða um rúm fjögur prósent, en minnst á Íslandi. Viðskipti erlent 18.5.2006 08:02
Mörg hundruð þúsund manns yfirgefa heimili sín Meira en 600 þúsund manns þurftu að yfirgefa heimili sín á suðurströnd Kína í morgun vegna fellibylsins Chanchu sem búist er við að gangi þar á land í dag. Erlent 18.5.2006 07:58
Prodi kynnir ríkisstjórn sína Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, kynnti ríkisstjórn sína í dag. Hennar bíður erfitt verkefni við að koma efnahag landsins á réttan kjöl. Erlent 17.5.2006 17:31
Mills og McCartney skilin Bítillinn Paul McCartney og Heather Mills, eiginkona hans, hafa ákveðið að skilja að borði og sæng eftir fjögurra ára hjónaband. Þau segja ágang fjölmiðla hafa gert sér ókleift að lifa eðlilegu lífi og því hafi þau ákveðið að fara hvort sína leið. Erlent 17.5.2006 17:27
Ofsatrúarmaður skaut dómara Íslamskur öfgamaður réðst inn í réttarsal í Ankara í Tyrklandi í morgun og skaut á dómara. Hann er sagður hafa viljað hefna fyrir dóm yfir kennurum sem bannað var að bera íslamska höfuðklúta. Erlent 17.5.2006 17:24
Fimm dómarar særðust í skotárás Fimm dómarar við hæstarétt í Ankara í Tyrklandi særðust, þar af tveir lífshættulega þegar vopnaður maður hóf skothríð inn í dómshúsinu. Talið er að árásarmaðurinn sé lögfræðingur og er hann nú í haldi lögreglu sem segir óvíst hver ástæða árásarinnar var. Erlent 17.5.2006 13:57
McCartney og Mills skilin Bítillinn fyrrverandi, Paul McCartney, og kona hans, Heather Mills, eru að skilja að borði og sæng eftir 4 ára hjónaband. Erlent 17.5.2006 13:35
Bættur hagur hjá HP Tekjur bandaríska tölvuframleiðandans Hewlett-Packard (HP) námu 1,46 milljörðum Bandaríkjadala á fyrsta fjórðungi ársins en það er 51 prósenta aukning á milli ára. Tekjurnar námu 51 senti á hlut, sem er umfram væntingar fjármálasérfræðinga en þeir reiknuðu með tekjuaukningu upp á 49 sent á hlut. Viðskipti erlent 17.5.2006 13:12
Ný stjórn á Ítalíu Romano Prodi, leiðtogi ólívubandalags mið- og vinstriflokka á Ítalíu, hefur myndað nýja ríkisstjórn sem tekur við völdum síðar í dag. Erlent 17.5.2006 11:15
Gíslataka í Grikklandi Engan sakaði þegar vopnaður maður tók tvo í gíslingu í þýskum skóla í borginni Þessaloníku í Grikklandi í gær. Erlent 17.5.2006 08:06
Líklegt að Íranar hafni tilboði ESB Ekki virðist líklegt að stjórnvöld í Íran samþykki tilboð Evrópusambandsins um lausn á kjarnorkudeilu Írana við vesturveldin. Mahmoud Ahmadinejad, Íransforseti, sagði í morgun að sambandið léti eins og það væri að semja við fjögurra ára barn og lofaði því sælgæti í staðinn fyrir gull. Erlent 17.5.2006 07:58
Gömul sprengja í Mersey Töluverðar tafir urðu á ferjuferðum á ánni Mersey í Liverpool í Bretlandi í gær þegar 450 kílóa sprengja frá Síðari heimsstyrjöldinni fannst þar á floti. Erlent 17.5.2006 07:21
Vantrauststillaga felld Vantrauststillaga á hendur Dominique de Villepin, forsætisráðherra Frakklands, var felld í neðri deild franska þingsins í gær. Tillagan var lögð fram af sósíalistum vegna ásakana á hendur ráðherranum um óheiðarleg vinnubrögð í kosningabaráttu. Erlent 17.5.2006 07:19
Blóðug mótmæli í Kólumbíu Að minnsta kosti einn lést í fjölmennum mótmælum sem brutust út í þorpinu Piendamo í Kólumbíu í gær. Að sögn forvígismanna mótmælanna voru þau tilkomin vegna nýs fríverslunarsamnings kólumbískra yfirvalda við Bandaríkin og væntanlegt endurkjör forseta Kólumbíu, Alvaro Uribe, í kosningum síðar í mánuðinum. Erlent 17.5.2006 07:12
Fimm látnir af völdum fuglaflensu Sex tilfelli fuglaflensu hafa greinst í mönnum á Indónesíu síðustu daga. Fimm þeirra sem greindust eru nú látnir. Alþjóða heilbrigðismálastofnunin staðfesti þetta í morgun. Erlent 17.5.2006 06:59
Fellibylur stefnir á Hong Kong Fellibylurinn Chanchu stefnir nú hraðbyri að Hong Kong og suðurströnd Kína. Ekki er þó víst að hann skelli á Hong Kong og jafnvel líkur á að hann fari framhjá síðar í dag. Víst er þó talið að hann valdi usla í Guangdong-héraði í fyrramálið. Erlent 17.5.2006 06:52
Ráðherra fellur í sjálfsmorðsárás Sjö hið minnsta biðu bana í sjálfsmorðsárás á bílalest í Ingusétíu-héraði í Suður-Rússlandi í morgun. Erlent 17.5.2006 06:49
Viðbrögð við flóðbylgju æfð Rúmlega 30 ríki við Kyrrahaf tóku þátt í æfingu sem fram fór í morgun á viðbrögðum við hugsanlegum jarðskjálfta og flóðbylgju í heimshlutanum. Að sögn stjórnenda æfingarinnar tókst hún vel. Erlent 17.5.2006 07:07
Vantrausttillaga á de Villepin felld Vantrauststillaga á hendur Dominique de Villepin, forsætisráðherra Frakklands var felld í neðri deild franska þingsins í dag. Tillagan var lögð fram af sósíalistum vegna ásakana á hendur Villepin um óheiðarleg vinnubrögð í kosningabaráttu. Ekki var mikil hætta á að vantrauststillagan yrði samþykkt, enda hefur ríkisstjórn Villepins rúma meirihluta í neðri deildinni: 364 af 577 þingsætum. Erlent 16.5.2006 22:25
Hærra heildsöluverð í Bandaríkjunum Heildsöluverð hækkaði um 0,9 prósent í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Þetta er mesta hækkun síðastliðna sjö mánuði vestra en helsta ástæða hækkunarinnar er hærra eldsneytisverð og verð á öðrum orkugjöfum. Hækkunin nam 0,5 prósentum í mars. Viðskipti erlent 16.5.2006 13:41
Áfengisverslun sprengd í Bagdad Áfengisverslun var sprengd í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Sprengju var komið fyrir við dyr verslunarinnar og var þetta í þriðja sinn sem hún var skotmark öfgamanna. Erlent 16.5.2006 10:14