Íþróttir
Rooney til vandræða. Það gekk ekki vel hjá Englendingum í fyrri hálfleik gegn Spánverjum í vináttuleik liðanna nú í kvöld. Asier Del Horno, leikmðar Bilbao, skoraði eina mark fyrri hálfleiks með góðu skallamarki, en Englendingar eru þó heppnir að vera aðeins einu marki undir því gulldrengurinn Raul lét Paul Robinson verja frá sér vítaspyrnu. Það sem bar þó helst til tíðinda í fyrri hálfleiknum var hegðun Wayne Rooney. Hann var bókaður fyrir að ýta kjánalega við Iker Casillas markverði Spánverja og var svo heppinn að fá ekki annað gult spjald fyrir brot á Carlos Marchena áður en Sven Goran Eriksson sá sig nauðugan til að skipta honum útaf. Sport 13.10.2005 15:00
Chilavert skorar í kveðjuleiknum Það var vel við hæfi að markvörðurinn litríki frá Paraguay, Jose Luis Chilavert, skoraði í kveðjuleik sínum frá knattspyrnunni er hann spilaði með argentínska fyrstu deildar liðinu Valez Sarsfield í gærkvöldi. Sport 13.10.2005 15:00
Í heiðurshof fangbragða Herði Gunnarssyni, formanni Glímudómararfélags Íslands, var um helgina veitt sérstök heiðursviðurkenning frá Alþjóðlegu fangbragðasamtökunum og var í leiðinni boðið sæti í heiðurshofi samtakanna þar sem aðeins þrettán menn sitja. Sport 13.10.2005 15:00
Úkraína og Portúgal gera vel Úkraínumenn sigruðu Tyrki 3-0 í 2. riðli undankeppni HM í knattspyrnu í kvöld. Gusev gerði fyrsta markið á 9. mínútu, Andrei Shevchenko bætti öðru við á þeirri 17. og hann innsiglaði síðan sigurinn á lokamínútunni með sínu öðru marki í leiknum. Sport 13.10.2005 15:00
Fín frumsýning Nýtt og lítt reynt íslenskt handboltalandslið sýndi fína takta gegn Evrópumeisturum Þýskalands í fyrsta leik hins nýráðna landsliðsþjálfara, Viggó Sigurðssonar. Liðin mættust í World Cup í Svíþjóð og þrátt fyrir mikla baráttu og ágætt spil tókst íslenska liðinu ekki að ná stigi úr leiknum sem tapaðist með eins marks mun, 29-28. Sport 13.10.2005 15:00
Jón Arnór með sextán stig Jón Arnór Stefánsson og félagar hans í rússneska körfuboltaliðinu Dynamo frá St. Pétursborg héldu áfram sigurgöngu sinni í Evrópudeildinni á þriðjudagskvöldið en þá bar liðið sigurorð af úkraínska liðinu Khimik, 107-99, á heimavelli. Þetta var þriðji sigur liðsins í jafn mörgum leikjum og er liðið það eina taplausa í D-riðli deildarinnar. Sport 13.10.2005 15:00
Spánverjar sigruðu Englendinga 1-0 Spánverjar sigruðu Englendinga 1-0 á Santiago Bernabeu með skallamarki frá Asier Del Horno í fyrri hálfleik í vináttulandsleik þjóðannan í kvöld. Frakkar og Pólverjar gerðu markalaust jafntefli og Ítalir sigruðu Finna 1-0 með marki frá Fabrizio Miccoli leikmanni Juventus. Loks sigruðu Svíar Skota í Skotlandi með fjórum mörkum gegn engu. Alback gerði tvö mörk fyrir Svíana í kvöld og þeir Elmander og Berglund sitt markið hvor. McFadden minnkaði muninn fyrir skota með marki úr vítaspyrnu tólf mínútum fyrir leikslok. Sport 13.10.2005 15:00
Belgar töpuðu heima Belgar töpuðu óvænt heima gegn Serbíu & Svartfjallalandi í 7. riðli undankeppni HM í kvöld. Vukic og Kezman skoruðu mörkin Grikkir sigruðu Kazakhstan örugglega 3-0 með tveimur mörkum frá Charisteas og einu frá Katsouranis í 2. riðli. Baltiev skorað mark Kazakhstan út víti. Í 7. riðli sigruðu Litháar San Maríón 0-1 á útivelli með marki frá Cesnauskis á 41. mínútu. Í 1. riðli sigruðu Hollendingar Andorramenn örugglega 3-0 á útivelli. Philip Cocu, Arjen Robbben og Wesley Sneijder skoruðu mörkin Sport 13.10.2005 15:00
Rússar gjörsigruðu Eista <table style="WIDTH: 157pt; BORDER-COLLAPSE: collapse" cellspacing="0" cellpadding="0" width="209" border="0"><colgroup><col style="WIDTH: 54pt; mso-width-source: userset; mso-width-alt: 2633" width="72" /><col style="WIDTH: 7pt; mso-width-source: userset; mso-width-alt: 329" width="9" /><col style="WIDTH: 96pt; mso-width-source: userset; mso-width-alt: 4681" width="128" /></colgroup><tbody><tr style="HEIGHT: 12.75pt" height="17"><td class="xl22" style="BORDER-RIGHT: #ece9d8; BORDER-TOP: #ece9d8; BORDER-LEFT: #ece9d8; WIDTH: 157pt; BORDER-BOTTOM: #ece9d8; HEIGHT: 12.75pt; BACKGROUND-COLOR: transparent; mso-ignore: colspan" width="209" colspan="3" height="17"> <font face="Arial" size="2">Fjórir leikir eru búnir í undankeppni HM í knattspyrnu, en þrettán leikir fara fram í kvöld. Rússar unnu stórsigur á Eistum 4-0 í 3. riðli og skoruðu Kariaka, Izmailov, Sychev og Loskov mörkin. Kýpur tapaði heima 2-1 fyrir Ísrael þar sem sigurmarkið kom fjórum mínútum fyrir leikslok</font> </td></tr></tbody></table> Sport 13.10.2005 15:00
Einu höggi frá draumnum Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson var einu höggi frá því að komast á Evrópumótaröðina en hann lauk keppni á úrtökumótinu á Spáni í gær. Árangur hans á úrtökumótinu gefur honum engu að síður keppnisrétt á átta mótum á Evrópumótaröðinni sem og fullan keppnisrétt á áskorendamótaröðinni. Sport 13.10.2005 14:59
Nash erfiður gömlu félögunum Steve Nash sneri aftur til Dallas í NBA-deildinni í fyrrinótt með nýju félögum sínum í Phoenix Suns og hafði sigur 107-101 í hörkuleik. Nash átti fínan leik, skoraði 17 stig og gaf heilar 18 stoðsendingar þótt það hafi reyndar kostað hann það að tapa 10 boltum. Sport 13.10.2005 15:00
Hugmyndir um skautahöll í Firðinum "Það hefur ekkert verið ákveðið í þessum efnum en þetta er vissulega nokkuð sem við erum að skoða," segir Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði. Hafnarfjörður er einn þeirra staða þar sem áhugi fer mjög vaxandi á skautaíþróttum og hugmyndir hafa verið uppi um að reisa þar næstu skautahöll landsins. Sport 13.10.2005 15:00
Íslendingar steinlágu gegn Frökkum Íslendingar steinlágu gegn Frökkum 38-29 á heimsbikarmótinu í handknattleik í Svíþjóð í kvöld. Atkvæðamestir hjá okkar mönnum voru Róbert Gunnarsson með 7 mörk, Markús Máni Michaelsson með 6 og þeir Ásgeir Örn Hallgrímsson og Einar Hólmgeirsson gerðu 5 mörk hvor. Sport 13.10.2005 15:00
Danir gerðu jafntefli í Tbilisi Danir náðu aðeins jafntefli gegn Georgíumönnum í 2. riðli undankeppni HM í kvöld, en leikið var í Tbilisi. Jon Dahl Tomasson kom Dönum yfir strax á 9. mínútu en Demetradze jafnaði á 33. mínútu. Jon Dahl Tomasson kom Dönum aftur yfir á 64. mínútu en Georgíumenn jöfnuðu tíu mínútum síðar og þar við sat. Sport 13.10.2005 15:00
Miller farinn frá Grindavík Justin Miller, leikmaður Grindavíkur í Intersportdeildinni í körfuknattleik, er hættur að leika með liðinu vegna veikinda í fjölskyldunni. Sport 13.10.2005 14:59
Bryant meiddur á fæti Kobe Bryant hjá LA Lakers í NBA-körfuboltanum á við meiðsli að stríða í vinstri fæti. Sport 13.10.2005 14:59
Fyrsta tap Njarðvíkinga Njarðvík tapaði sínum fyrsta leik í vetur í Intersportdeild karla í körfubolta í kvöld þegar liðið lá á heimavelli fyrir Snæfelli með tveggja stiga mun, 81-83 en þá lauk 7. umferð. Tindastóll lá á heimavelli fyrir Hamar/Selfoss, 82-93, KFÍ tapaði einnig á heimavelli fyrir ÍR, 100-122 og Fjölnismenn lögðu Skallagrím á heimavelli, 87-72. Sport 13.10.2005 14:59
Ætlar sér sigur á HM 2006 Jurgen Klinsmann, landsliðsþjálfari Þjóðverja í knattspyrnu, ætlar sér sigur á HM í Þýskalandi 2006. Sport 13.10.2005 14:59
Helgi Reynir til Snæfells Helgi Reynir Guðmundsson körfuknattleiksmaður, sem nýlega sagði skilið við meistaraflokkslið KR, staðfesti í samtali við Vísi að hann væri genginn til liðs við Snæfell. Sport 13.10.2005 14:59
Þjóðverjar yfir í hálfleik Þjóðverjar hafa tveggja marka forystu, 15-13, í hálfleik gegn Íslendingum á World Cup-mótinu sem hófst í Svíþjóð í dag. Íslendingar hafa elt þýska liðið allan fyrri hálfleikinn en hafa náð að halda sér í seilingarfjarlægð og eiga því enn ágæta möguleika. Sport 13.10.2005 14:59
Tókst ekki hjá Birgi Leifi Birgir Leifur Hafþórsson náði ekki markmiði sínu að komast á evrópsku mótaröðina í golfi þegar hann lauk keppni á úrtökumótinu á Spáni í dag og munaði aðeins einu höggi að hann kæmist í umspil. Birgir Leifur lék lokahringinn í dag á 73 höggum eða einu yfir pari og hafnaði í 40. sæti. Sport 13.10.2005 14:59
Sharapova vann WTA Hin rússneska Maria Sharapova bar sigur úr býtum í WTA Tour-meistarakeppninni í tennis í fyrrakvöld. Sport 13.10.2005 14:59
Lebron James átti stórleik Lebron James er að spila vel fyrir Cleveland Cavaliers, en liðið vann sinn fjórða leik í röð á dögunum þegar það lagði Golden State Warriors. Sport 13.10.2005 14:59
Jón Arnór skoraði 16 stig Dynamo St. Petersburg bar í kvöld sigurorð af Khimik, 107-99, í rússnesku úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Sport 13.10.2005 14:59
Eins marks tap gegn Þjóðverjum Íslenska landsliðið í handbolta beið lægri hlut, 28-29, fyrir Þjóðverjum í fyrsta leik liðsins á Word Cup-mótinu í Svíþjóð. Þjóðverjar höfðu yfir í hálfleik, 15-13, og leiddu nánast allan leikinn. Sport 13.10.2005 14:59
Gerrard leikfær á laugardaginn Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, er orðinn leikfær á ný eftir tveggja mánaða fjarveru og segist tilbúinn í slaginn gegn Middlesbrough á laugardaginn. Sport 13.10.2005 14:59
Keflavík lagði nágrannana Keflavík tyllti sér í 2. sæti Intersport deildar karla í körfubolta í kvöld með 84-73 sigri á Grindavík í 7. umferð. Keflvíkingar eru nú með 10 stig í 2. sæti en aðeins tveir leikir hafa farið fram í umferðinni og getur staðan því hæglega breyst. Umferðinni lýkur annað kvöld. Sport 13.10.2005 14:59
Þarf að spila sinn besta leik Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson er í 30.-40. sæti fyrir síðasta daginn á inntökumóti fyrir evrópsku mótaröðina sem fram fer á Spáni en hann spilaði fimmta hringinn á einu höggi yfir pari í gær. Verður hann aldeilis að spýta í hanskann en aðeins 35 efstu menn eftir lokahringinn í dag vinna fullan þátttökurétt á Evrópumótaröðinni á næsta ári. Sport 13.10.2005 14:59
Birgir Leifur í 30.-43. sæti Það ræðst á morgun þriðjudag hvort kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson nái fullum réttindum til að keppa á evrópsku mótaröðinni í golfi en þá leikur hann síðasta hringinn á úrtökumótinu sem nú fer fram á San Roque golfvellinum á Spáni. Bigir Leifur lék á gamla vellinum í dag á 73 höggum eða einu yfir pari og er í 30.-43. sæti fyrir lokahringinn. Sport 13.10.2005 14:59
Getum sigrað Þjóðverja Íslenska landsliðið í handbolta hefur keppni á World Cup í Svíþjóð í dag er þeir mæta Evrópumeisturum Þjóðverja. Þetta verður fyrsti leikur landsliðsins undir stjórn Viggós Sigurðssonar en hann fór út með mjög breytt lið frá síðustu keppni en alls koma átta nýir leikmenn inn í hópinn. Sport 13.10.2005 14:59