Sport

Getum sigrað Þjóðverja

Íslenska landsliðið í handbolta hefur keppni á World Cup í Svíþjóð í dag er þeir mæta Evrópumeisturum Þjóðverja. Þetta verður fyrsti leikur landsliðsins undir stjórn Viggós Sigurðssonar en hann fór út með mjög breytt lið frá síðustu keppni en alls koma átta nýir leikmenn inn í hópinn. Íslenska landsliðið kom til Svíþjóðar í gær og skellti sér beint á æfingu og tekur svo æfingu fyrir hádegi í dag. Það er eini undirbúningurinn sem Viggó fær með þetta nýja landslið fyrir mótið. "Það þýðir ekkert að kvarta yfir því. Svona er þetta hjá öllum liðunum og við sitjum bara við sama borð og hinir," sagði Viggó í samtali við Fréttablaðið skömmu eftir komuna til Svíþjóðar. Þjóðverjar mæta einnig til leiks með mikið breytt lið enda lögðu nokkrir burðarásar liðsins síðustu ár skóna á hilluna eftir Ólympíuleikana. "Mér líst bara mjög vel á þennan leik og við óttumst Þjóðverja ekkert þótt þeir séu Evrópumeistarar. Við stefnum á sigur og ég hef fulla trú á því að við getum lagt þá að velli," sagði Viggó og hann segir dagsskipunina einfalda. "Það er bara að berjast fram í rauðan dauðann og spila hraðan handbolta. Mér hefur fundist vera svolítil deyfð yfir liðinu á síðustu mótum og ég mun leggja mikla áherslu á að menn leggi sig hundrað prósent í dæmið frá fyrstu mínútu og mæti til leiks með því hugarfari að sigra. Við munum einnig spila nýjan varnarleik og það verður gaman að sjá hvernig það gengur," sagði Viggó Sigurðsson, landsliðsþjálfari í handbolta.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×