Fréttir

Fréttamynd

Óbreyttir borgarar féllu í árás

Að minnsta kosti 40 féllu og um 30 særðust í sjálfsvígssprengjuárás á herstöð í Norður-Írak í dag. Bandarískir og íraskir hermenn eru með aðstöðu á stöðinni en að sögn Bandaríkjahers féll engin liðsmaður þeirra í árásinni.

Erlent
Fréttamynd

Verkföll vegna vinnulöggjafar

Óttast er að töluverð röskun verði á ferðum almenningssamgöngutækja og flugvéla í Frakklandi í vikunni en talið er víst að lestarstjórar og flugmenn ætli að leggja niður vinnu um tíma til að mótmæla umdeildri vinnulöggjöf stjórnvalda.

Erlent
Fréttamynd

Mestu aðgerðir síðan 1926

Um ein og hálf milljón breskra ríkisstarfsmanna áforma að fara í verkfall á fimmtudag. Stéttarfélög segja þetta vera mestu aðgerðir síðan 1926 þar sem þúsundum skóla verður lokað og truflanir verða á samgöngum.

Erlent
Fréttamynd

Skærin festust í hálsinum

Kínversk kona gekkst undir afar flókna skurðaðgerð í morgun þegar fjarlægja þurfti skæri sem höfðu festst í hálsi hennar.

Erlent
Fréttamynd

Læstir míníbarir

Norskt fyrirtæki mun á næstunni markaðssetja nýja tegund af míníbörum sem eiga að koma í veg fyrir að hótelgestir steli sér guðaveigum. Gestir á hótelum í Noregi stela um 30% af því sem í slíkum börum er að finna og því telja hóteleigendur ekki vanþörf á því að taka á þessu vandamáli.

Erlent
Fréttamynd

Mannfall í óeirðum

Fjölmargir létu lífið þegar lögregla í Georgíu gerði áhlaup á fangelsi í höfuðborginni Tiblisi í dag. Fangar höfðu stofnað til óeirða eftir að komið var í veg fyrir flótta nokkurra þeirra.

Erlent
Fréttamynd

Eimskip kaupir helming í Innovate Holdings

Eimskip hefur fest kaup á helmingshlut í breska landflutningafyrirtækinu Innovate Holdings. Forstjóri Eimskips sér mikil tækifæri til frekari sóknar á sviði hitastýrðra flutninga með kaupunum og horfir meðal annars til viðskipta við félög eins og Bakkavör og Icelandic Group í Bretlandi, en þau félög eru einnig í eigu Íslendinga.

Innlent
Fréttamynd

Uppsagnarbréf starfsmanna varnarliðsins afhent í dag

Allir íslenskir starfsmenn varnarliðsins, tæplega sex hundruð talsins, geta fengið uppsagnarbréf sín afhent í dag. Að sögn Friðþórs Eydals, upplýsingafulltrúa varnarliðsins, geta þeir annaðhvort sótt þau frá klukkan þrjú eða fengið þau send í pósti. Uppsagnarfrestur fólks er misjafn, á milli þrír og sex mánuðir, en gert er ráð fyrir starfslokum allra fyrir 30. september.

Innlent
Fréttamynd

Eimskip kaupir helming í Innovate

Eimskip eignast helming hlutafjár í breska landflutningafyrirtækinu Innovate Holdings fyrir lok apríl. Samkomulag er milli aðila um að Eimskip eignist félagið að fullu síðar en stjórnendur Innovate munu halda áfram störfum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

300 manns á biðlista

Þó að fylgikvillar offitu kosti samfélagið milljarða króna á ári er hún ekki eitt af forgangsverkefnum í heilbrigðisáætlun til ársins tvö þúsund og tíu. Þrjú hundruð manns bíða eftir meðferð vegna offitu á Reykjalundi. Biðlistinn lengist stöðugt og meira en tvö ár geta liðið þangað til fólk kemst að.

Erlent
Fréttamynd

Um tuttugu tegundir á hundasýningu Íshunds

Það var líf og fjör á alþjóðlegri hundasýningu hjá hundaræktunarfélaginu Íshundi nú um helgina. Þær voru ekki ófáar fyrirsæturnar og þær kunna svo sannarlega að meta athyglina.

Innlent
Fréttamynd

Appelsínugula byltingin á enda?

Andstæðingar appelsínugulu byltingarinnar virðast hafa sigrað í þingkosningunum í Úkraínu í dag. Sextán mánuðum eftir sögulegan sigur Viktors Júsjenkó, finnst íbúum Úkraínu lítið hafa áunnist og umbætur gengið allt of hægt.

Erlent
Fréttamynd

Drap sex og svo sjálfan sig

Gleðskapur ungmenna í Seattle í Bandaríkjunum breyttist í martröð í gær, þegar einn samkvæmisgestanna hóf skothríð með þeim afleiðingum að sex týndu lífi. Þegar lögregla kom á staðinn skaut hann sjálfan sig í höfuðið.

Erlent
Fréttamynd

Sjálstæðismenn með vísan meirihluta

Sjálfstæðismenn ættu næstan vísan meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur samkvæmt skoðanakönnun sem Fréttablaðaðið birtir í dag. Samfylkingin fengi fimm borgarfulltrúa og Vinstri grænir einn. Framsóknarflokkurinn mælist minnstur flokka í Reykjavík, og nær ekki inn manni frekar en Frjálslyndir, sem þó bæta við sig fylgi.

Innlent
Fréttamynd

Flestar leiðir færar

Skafrenningur og þæfingur er víða á vegum um landið en þó eru flestar leiðir færar. Á Vestfjörðum er þæfingur á Dynjandisheiði og jeppaslóð er yfir Hrafnseyararheiði. Skafrenningur er á heiðum á Vestfjörðum. Á Norðurlandi er víða éljagangur og skafrenningur en helstu leiðir eru færar.

Innlent
Fréttamynd

Stjórnvöldum ber að fara sér hægt

Forstjóri Vinnumálastofnunar segir íslensk stjórnvöld eiga að fara sér hægt í að opna fyrir frjálsa för fólks frá hinum nýju aðildarríkjum Evrópusambandsins. Ráðamenn þurfa að taka ákvörðun fyrir 1. maí um það hvernig verði að málunum staðið.

Innlent
Fréttamynd

Greiningardeild Glitnis spáir 6% verðbólgu í maí

Verðbólgan mun mælast sex prósent í maí gangi spáin greinindardeildar Glitnis eftir. Verðbólgan verður þá nokkuð yfir efri þolmörkum Seðlabankans, sem eru fjögur prósent, og hvergi nærri verðbólgumarkmiði bankans sem er tvö komma fimm prósent. Litlar líkur eru taldar á að verðbólgan fari undir efri þolmörk Seðlabankans í bráð.

Innlent
Fréttamynd

Kynjafræði eigi erindi inn í kennaramenntun

Taka ætti upp kynjafræði í kennaranám meðal annars til að takast á við jafnréttismálin og kynferðisofbeldi í samfélaginu, að mati lektors í uppeldis- og menntunarfræði við Kennaraháskóla Íslands. Könnun sýnir að kennaranemar sýna námsgreininni mikinn áhuga.

Innlent
Fréttamynd

Ungt fólk í Ísrael áhugalaust um kosningar í landinu

Ungt fólk í Ísrael virðist afar áhugalaust um komandi kosningar í landinu, sem haldnar verða næstkomandi þriðjudag. Þriðjungur þeirra er enn óákveðinn. Ef skoðanakannanir ganga eftir mun Kadimaflokkur Ariels Sharons vinna sigur undir forystu setts forsætisráðherra, Ehuds Olmerts.

Erlent
Fréttamynd

Rányrkja á hákörlum við Galapagoseyjar

Verðmætir uggar hákarlanna við Galapagoseyjar freista óheiðarlegra sjómanna sem stunda rányrkju þar í svo miklum mæli að stofninn er í hættu. Um tvö hundruð þúsund hákarlar eru veiddir á slíkan hátt á ári hverju - uggarnir skornir af en skrokknum hent í sjóinn.

Erlent
Fréttamynd

Ráðamenn eiga að virða reglur rétt eins og stjórnsýslulög

Virði ráðamenn ekki reglur sem þeir sjálfir hafa sett, eins og stjórnsýslulög og álit Umboðsmanns Alþingis, er eins gott að leggja embættið niður segir Ragnar Hall hæstaréttarlögmaður. Álit umboðsmanns Alþingis á vali fyrrum félagsmálaráðherra á ráðuneytsstjóra, er mjög harðort en samt ætlar núverandi félagsmálaráðherra ekkert að aðhafast.

Innlent
Fréttamynd

Lóan er komin

Lóan er komin til landsins að kveða burt snjóinn. Fréttavefurinn Horn greinir frá því að tvær heiðlóur ársins hafi sést utan við Ósland á Höfn í Hornafirði um klukkan níu í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Vilja endurskoðun á samgönguáætlun

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar vill að Alþingi og samgönguyfirvöld endurskoði nú þegar samgönguáætlun og veiti meira fé til verkefna á höfuðborgarsvæðinu. Bæjarstjórinn segir að binda verði enda á kílómetra langar raðir sem myndist á álagstímum á aðalæðum bæjarins.

Innlent
Fréttamynd

Skipulagsbreytingar hjá flugmálastjórn

Flugmálastjórn verður skipt upp í ársbyrjun 2007. Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra segir breytingarnar muni gera flugmálastjórn mun samkeppnishæfari í baráttu við önnur flugumferðarsvæði.

Innlent
Fréttamynd

Rússar uppljóstruðu um herflutninga Bandaríkjamanna

Rússar gáfu Saddam Hússein upplýsingar um herflutninga Bandaríkjamanna í Írak, í byrjun Íraksstríðsins árið 2003. Þetta kemur fram í nýrri 210 síðna skýrslu varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna um innrásina í Írak.

Innlent
Fréttamynd

Hlíðarfjall opið í dag

Hlíðarfjall verður opið í dag til klukkan fimm. Flestar lyftur og skíðleiðir verða opnaren skíðafæri er mjög gott, púðursnjór og troðinn púðursnjór. Göngubrautin er einnig troðin. Aðstæður líta því vel út fyrir páska og Andrésar andarleikana sem verða í lok apríl.

Innlent
Fréttamynd

Tvenn fíkniefnamál á Akranesi

Lögreglan á Akranesi fann 15 grömm af amfetamíni á manni við venjubundið eftirlit í gærdag. Maðurinn var handtekinn og í framhaldi var gerð húsleit í húsi á Akranesi þar sem tveir menn voru handteknir. Fíkniefni fundust á öðrum þeirra og einnig tæki til neyslu fíkniefna sem gerð voru upptæk. Mönnunum var öllum sleppt að loknum yfirheyrslum og málið telst upplýst.

Innlent