Talibanar vilja aðgang að frystum sjóðum: „Látið okkur fá okkar eigin peninga“ Ríkisstjórn Talibana í Afganistan vill fá aðgang að sjóðum ríkisins erlendis. Fyrrverandi ríkisstjórn landsins geymdi milljarða dala í seðlabönkum í Bandaríkjunum og Evrópu en þeir sjóðir hafa verið frystir eftir valdatöku Talibana. Erlent 29. október 2021 16:50
Vinstri sveifla skýtur þýskum millum skelk í bringu Þýskir auðkýfingar eru nú sagðir flytja eigur sínar til Sviss af ótta við að vinstri stjórn taki við eftir sambandsþingskosningar á sunnudag. Vinstriflokkarnir hafa boðað hækkun auðlegar- og erfðaskatts. Viðskipti erlent 24. september 2021 15:48
Kjósa um hjónabönd og ættleiðingar samkynhneigðra eftir hatramma kosningabaráttu Kjósendur í Sviss greiða atkvæði um hvort leyfa eigi samkynhneigðum pörum að gifta sig og ættleiða börn á sunnudag. Skoðanakannanir benda til þess að stuðningsmenn þess hafi sigur en dregið hefur saman á milli fylkinga í harðri kosningabaráttu síðustu vikna. Erlent 22. september 2021 10:46
Björgunarsveitir í kapphlaupi við tímann: Hundruð enn saknað og keppst við að finna eftirlifendur Hundruð er enn saknað sem horfið hafa í flóðunum sem hafa riðið yfir vesturhluta Evrópu undanfarna daga. Meira en 150 hafa farist en björgunarsveitir vonast til þess að finna einhverja á lífi í rústunum sem vatnsflaumurinn hefur skilið eftir sig í Þýskalandi og Belgíu. Erlent 17. júlí 2021 08:18
Svanasöngur Federer á Wimbledon? Tenniskappinn Roger Federer veit ekki hvort að tapleikur hans í átta manna úrslitunum á Wimbledon-mótinu í gær hafi verið hans síðasti á Wimbledon. Sport 8. júlí 2021 16:30
Lífið leikur við stuðningsmanninn sem missti sig Luca Loutenbach vakti heimsathygli á leik Sviss og Frakklands á Evrópumótinu í fótbolta. Þessi eldheiti stuðningsmaður Sviss hefur nú grætt talsvert á því hve líflegur hann var í stúkunni. Fótbolti 2. júlí 2021 09:01
Biden ánægður með fundinn en hóflega bjartsýnn Joe Biden Bandaríkjaforseti kveðst ánægður með fund sinn við rússneska kollega sinn, Vladímír Pútín. Forsetarnir funduðu í Genf í Sviss í dag. Erlent 16. júní 2021 21:11
Fundur forsetanna laus við „fjandskap“ Enginn fjandskapur var í viðræðum Joes Biden Bandaríkjaforseta og Vladímírs Pútín Rússlandsforseta í dag, að sögn rússneska forsetans. Búist hafði verið við því að fundurinn gæti staðið yfir í allt að fimm tíma en honum lauk fyrr en áætlað var. Erlent 16. júní 2021 16:56
Klukkustunda langur fundur Biden og Pútín í Genf hafinn Joe Biden Bandaríkjaforseti og Vladímír Pútín Rússlandsforseti skiptust á kurteisisheitum þegar þeir hittust til fundar á sveitasetri við Genf í Sviss í dag. Búist er við því að fundur þeirra standi yfir í allt að fimm klukkustundir og þeir fari yfir breitt svið umræðuefna. Erlent 16. júní 2021 13:28
Biden og Pútín funda í Genf Joe Biden og Vladimír Pútín, forsetar Bandaríkjanna og Rússlands, munu funda í Genf í næsta mánuði. Verður það fyrsti fundur þeirra tveggja frá því Biden tók við embætti en spenna milli ríkjanna hefur aukist á undanförnum mánuðum. Erlent 25. maí 2021 14:31
Fundu stúlkuna með móður sinni í Sviss Átta ára stúlka sem frönsk lögregluyfirvöld höfðu lýst eftir fannst ásamt móður sinni í Sviss. Stúlkunni var rænt af heimili ömmu sinnar á þriðjudag, en amma hennar hafði haft forræði yfir henni undanfarna mánuði. Erlent 18. apríl 2021 22:04
Handteknir grunaðir um aðild að mannráni á átta ára stúlku Fjórir menn eru nú í haldi frönsku lögreglunnar vegna gruns um aðild að þaulskipulögðu mannráni á átta ára stúlku. Stúlkan heitir Mia og er talin vera með móður sinni, sem lögreglu grunar að hafi fyrirskipað mannránið. Erlent 16. apríl 2021 21:51
Slæðubann samþykkt í Sviss Naumur meirihluti Svisslendinga samþykkti bann við andlitsdulum í þjóðaratkvæðagreiðslu á sunnudag. Bannið nær til slæða sem konu af múslimatrúa klæðast, þar á meðal til búrkna og andlitsslæða. Erlent 8. mars 2021 10:25
Formúlustjarnan lenti í hjólreiðaslysi í Ölpunum Fernando Alonso ætlaði að snúa aftur í formúlu eitt í mars eftir tveggja ára fjarveru en gæti nú misst af byrjun formúlu eitt tímabilsins eftir að hafa lent í óhappi í Ölpunum. Formúla 1 12. febrúar 2021 08:32
Krúnurökuðu sig til að sýna liðsfélaga með krabbamein stuðning Leikmenn svissneska meistaraliðsins Kadetten Schaffhausen sýndu liðsfélaga sínum sem glímir við krabbamein táknrænan stuðning í leik gegn Rhein-Neckar Löwen í gær. Handbolti 3. febrúar 2021 12:00
Hundar björguðu eigendum sínum úr snjóflóði Tveimur einstaklingum, sem lentu í snjóflóði í svissnesku Ölpunum, var bjargað eftir að hundarnir þeirra geltu á hjálp. Útivistarfólk sem var statt nærri staðnum sem flóðið féll heyrði í hundinum og tókst að grafa fólkið úr snjónum. Erlent 31. janúar 2021 22:14
Sviss tekur sæti Bandaríkjanna sem hafa hætt við þátttöku á HM Bandaríska landsliðið hefur ákveðið að draga sig úr keppni á HM í handbolta sem hefst í Egyptalandi á morgun. Sviss kemur í stað þeirra. Handbolti 12. janúar 2021 21:30
Alvarlegt slys á HM í Sviss: Þyrla þurfti að sækja keppenda Alvarlegt slys varð í bænum Adelboden í Sviss í dag er skíðamaðurinn Tommy Ford meiddist er hann var við keppni á heimsbikarmótinu í risasvigi. Sport 9. janúar 2021 12:32
Björgólfur og Guy Ritchie njóta lífsins í svissnesku Ölpunum Svo virðist sem lífið hafi leikið við þá Björgólf Thor Björgólfsson og Guy Ritchie og eiginkonur þeirra Kristínu Ólafsdóttur og Jacqui Ainsley, í skíðaparadísinni St. Moritz í Sviss á dögunum. Lífið 23. desember 2020 23:11
Tveir særðir eftir meinta hryðjuverkaárás í Lugano Lögregla í Sviss handtók í gær konu í Lugano í suðurhluta landsins, eftir að hún hafði sært tvo í árás í verslun. Árásin er rannsökuð sem hryðjuverkaárás. Erlent 25. nóvember 2020 08:08
Höfnuðu því að afnema frjálsa för innan ESB Afgerandi meirihluti þeirra sem tóku þátt í þjóðaratkvæðagreiðslu um að afnema frjáls för fólks innan Evrópusambandsins í Svisslandi hafnaði tillögunni. Erlent 27. september 2020 12:10
Greiða atkvæði um frjálsa för innan Evrópu í Sviss Svisslendingar greiða atkvæði um hvort þeir vilja afnema frjálsa för fólks til og frá Evrópusambandinu í þjóðaratkvæðagreiðslu á morgun. Erlent 26. september 2020 09:45
Ræða um að greiða milljarða til að láta FIFA-sakir hverfa Svissneski bankinn Julius Bär gæti greitt bandarískum yfirvöldum jafnvirði milljarða íslenskra króna í sátt til að losna undan ásökunum um aðild að spillingarmáli Alþjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA). Viðskipti erlent 16. september 2020 10:18
Forseti FIFA gerði ekkert rangt segir siðanefnd sambandsins Siðanefnd Alþjóðaknattspyrnusambandsins segir að forseti sambandsins geti áfram leitt sambandið þar sem hann sé með hreina samvisku. Fótbolti 20. ágúst 2020 19:45
Sviss kaupir 4,5 milljón skammta af bóluefni Moderna Svissneska ríkisstjórnin tilkynnti í dag að samningar hefðu náðst við bandaríska lyfjafyrirtækið Moderna um kaup á 4,5 milljón skömmtum af bóluefninu sem Moderna vinnur nú að, fyrirvari er settur í kaupin um að bóluefnið virki sem skyldi. Erlent 7. ágúst 2020 12:36
Hefja rannsókn á forseta FIFA í Sviss Sérstakur saksóknari í Sviss hefur hafið rannsókn á máli Gianni Infantino, forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA). Vísbendingar eru sagðar hafa fundist um glæpsamlegt athæfi í umdeildum samskiptum Infantino við ríkissaksóknara Sviss. Erlent 30. júlí 2020 13:06
Dýragarðsvörður lést eftir árás tígrisdýrs Dýragarðsvörður í svissnesku borginni Zürich lést í dag eftir að hafa orðið fyrir árás fullvaxta tígrisdýrs. Erlent 5. júlí 2020 14:07
HM í íshokkí frestað Heimsmeistaramótinu í íshokkí hefur verið frestað vegna útbreiðslu og hættunni sem fylgir kórónuveirunni. Sport 22. mars 2020 10:30
Fyrrum leikmenn Arsenal neituðu að taka á launalækkun vegna veirunnar og voru reknir Fyrrum Arsenal-mennirnir, Alex Song og Johan Djorou, eru á meðal þeirra níu leikmanna sem fengu sparkið hjá svissneska félaginu FC Sion. Fótbolti 20. mars 2020 15:30
Bílasýningunni í Genf aflýst vegna kórónuveirunnar Svissnesk yfirvöld bönnuðu á föstudag í síðustu viku samkomur þar sem þúsund eða fleiri munu koma saman. Ástæðan er ótti um frekari útbreiðslu kórónaveirunnar. Af þessu leiðir að bílasýningunni í Genf hefur verið aflýst. Bílar 2. mars 2020 07:00