Innlent

Vilja kanna fækkun úti­búa Borgar­bóka­safnsins

Birgir Olgeirsson skrifar
Borgarbókasafnið er með átta söfn: í Árbæ, Gerðubergi, Grófinni sem sést hér á mynd, Klébergi, Kringlunni, Sólheimum, Spönginni og Úlfarsárdal.
Borgarbókasafnið er með átta söfn: í Árbæ, Gerðubergi, Grófinni sem sést hér á mynd, Klébergi, Kringlunni, Sólheimum, Spönginni og Úlfarsárdal. Vísir/Vilhelm

Kannað verði hvort veita megi sambærilega eða betri bókasafnsþjónustu með færri útibúum Borgarbókasafns Reykjavíkur og samnýtingu við skólabókasöfn. Þetta er meðal þess sem fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar vilja láta skoða í úttekt á rekstri safnsins.

Tillagan var lögð fram á fundi menningarráðs í gær, 21. október, en afgreiðslu hennar frestað. Hvorki hefur því verið samþykkt að ráðast í úttektina né loka útibúum.

Borgarbókasafnið er með söfn í Árbæ, Gerðubergi, Grófinni, Klébergi, Kringlunni, Sólheimum, Spönginni og Úlfarsárdal.

Skoði sameiningar og samstarf við skóla

Í tillögunni, sem er dagsett 15. október, er lagt til að fjöldi og staðsetning útibúa verði metin. Skoða eigi sameiningar og samnýtingu húsnæðis, aðstöðu og starfsfólks með skólabókasöfnum.

Markmiðið sé að ná fram hagræðingu án þess að skerða aðgengi íbúa að bókasafnsþjónustu.

Reikni kostnað á hvern gest

Tillöguflytjendur vilja jafnframt bera saman rekstrar- og húsnæðiskostnað útibúa, aðsókn, útlán, opnunartíma og nýtingu húsnæðis. Sérstaklega verði reiknaður kostnaður á hvern gest og hvert útlán.

Viðburðir og námskeið safnsins verði einnig tekin til skoðunar. Greina eigi kostnað við skipulagningu og framkvæmd, aðsókn og kostnað á hvern þátttakanda og meta hvort breyta eigi forgangsröðun.

Verði tillagan samþykkt er gert ráð fyrir að fyrstu niðurstöður og tillögur að hagræðingu liggi fyrir innan þriggja mánaða. Vinnan fari fram í samráði við stjórnendur og starfsfólk safnsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×