Björgunarsveitir leita Sigríðar áfram Leit að Sigríði Jóhannsdóttur heldur áfram í dag. Lögregla hefur lýst eftir henni síðan á laugardagskvöld. Innlent 16. júní 2025 12:11
Lausir úr haldi grunaðir um líkamsárás á Akureyri Tveimur einstaklingum sem grunaðir eru um líkamsárás í miðbæ Akureyrar um helgina hefur verið sleppt úr haldi að lokinni skýrslutöku. Innlent 16. júní 2025 12:08
Höfðu samband við frönsku lögregluna vegna andlátanna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur verið í sambandi við lögregluna í Frakklandi vegna voðaverkanna á hótelhergi á Edition í Reykjavík í fyrradag. Innlent 16. júní 2025 12:07
„Kærkomin ró“ yfir höfuðborgarsvæðinu „Kærkomin ró“ hefur verið yfir höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt samkvæmt tilkynningu frá lögreglu. Fangageymslur eru tómar og hafa engin útköll borist eftir klukkan þrjú í nótt. Innlent 16. júní 2025 05:55
„Lögreglan var ekki að gera það í fyrsta sinn“ Dómsmálaráðherra lýsir áhyggjum af auknum innflutningi fíkniefna til landsins, og segir tilfelli þar sem einstaklingar sem tengjast erlendum glæpagengjum koma til Íslands vera mun algengari en fólk átti sig á. Aukið magn fíkniefna sem haldlagt er á landamærum sé þó jafnframt til marks um árangur. Innlent 15. júní 2025 20:59
Fresta leit að Sigríði Björgunarsveitið hafa frestað leit að Sigríði Jóhannsdóttur í bili. Leit var fram haldið síðdegis í dag en bar engan árangur. Innlent 15. júní 2025 20:26
Andlát frönsku ferðamannanna vekur eftirtekt erlendis Andlát frönsku ferðamannanna á Edition hótelinu í Reykjavík hafa vakið athygli út fyrir landsteinana, en víða er fjallað um málið í erlendum miðlum, sér í lagi frönskum. Innlent 15. júní 2025 19:53
Skýrsla tekin af frönsku konunni og búið að ræða við vitni Búið er að taka skýrslu af frönsku konunni sem grunuð er um að hafa orðið eiginmanni sínum og dóttur að bana á hótelherbergi á Edition í Reykjavík í gær. Rætt hefur verið við vitni og rannsókn miðar þokkalega áfram. Innlent 15. júní 2025 18:47
Fimmtíu manns tóku þátt í leit sem stóð til fjögur í nótt Um 50 manns tóku þátt í umfangsmikilli leit eftir Sígríði Jóhannsdóttur sem hófst um miðnætti í gær og stóð til fjögur í nótt. Biðlað er til allra þeirra sem kunna að hafa einhverjar vísbendingar um veru hennar að hafa samband við Neyðarlínuna í síma: 112. Innlent 15. júní 2025 13:25
Grunur um tvö kynferðisbrot á bíladögum Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur haft í nægu að snúast en Bíladagar fóru þar fram um helgina. Lögregla hefur haft afskipti vegna minni háttar líkamsárása og tvö kynferðisbrotamál eru til rannsóknar eftir helgina. Innlent 15. júní 2025 11:02
Einn handtekinn eftir hópslagsmál Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti ýmsum verkefnum í gærkvöldi og í nótt. Þrír voru vistaðir í fangageymslu lögreglu og 85 mál eru skráð í kerfi lögreglu frá klukkan fimm í gær til klukkan fimm í morgun. Innlent 15. júní 2025 08:47
Lögreglan lýsir eftir Sigríði Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Sigríði Jóhannsdóttur, 56 ára. Ekkert er vitað um ferðir hennar síðan á föstudag. Innlent 15. júní 2025 07:15
„Þetta eru alvarlegir stunguáverkar“ Frönsk kona er grunuð um að hafa orðið eiginmanni sínum og dóttur að bana á hótelherbergi á Edition í Reykjavík. Konan var flutt af vettvangi með stunguáverka. Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir konunni, en rannsókn málsins er á frumstigi. Þetta herma heimildir fréttastofu. Innlent 14. júní 2025 19:22
Frönsk kona grunuð um að bana dóttur sinni og eiginmanni Frönsk kona á sextugsaldri er með stöðu sakbornings grunuð um að hafa ráðið eiginmanni sínum og dóttur bana á hótelherbergi á Edition í Reykjavík. Konan var með alvarlega stunguáverka þegar lögreglu bar að garði. Hún er í haldi lögreglu. Innlent 14. júní 2025 16:43
Tveir ferðamenn fundust látnir á Edition Tveir erlendir ferðamenn fundust látnir á Edition-hóteli í miðborg Reykjavíkur í morgun. Þriðji ferðamaðurinn var færður undir læknishendur. Innlent 14. júní 2025 12:32
Rannsaka „alvarlegt atvik“ á Edition Lögreglan og sérsveit voru kölluð út á Edition-hótel í miðbæ Reykjavíkur í morgun vegna „alvarlegs atviks“ að sögn lögreglu. Aðgerðir standa enn yfir á fjórðu hæð hótelsins. Innlent 14. júní 2025 10:12
Flúði á brott eftir alvarlega líkamsárás Sérsveit ríkislögreglustjóra handtók í nótt mann sem hafði flúið af vettvangi eftir alvarlega líkamsárás í Árbæ. Innlent 14. júní 2025 07:18
Vilja milljarð frá First Water sem hafnar vanefndum Fjögur fyrirtæki sem störfuðu fyrir landeldisfyrirtækið First Water gera kröfur á félagið upp á ríflega milljarð króna vegna meintra vanefnda. Lögregla hefur verið kölluð til vegna ágreinings milli verktaka og félagsins. First Water vísar ásökunum til föðurhúsanna. Félagið hafi í öllum tilvikum farið að lögum. Innlent 13. júní 2025 20:00
Lögðu hald á töluvert magn fíkniefna og milljónir í reiðufé Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á töluvert magn af ætluðum fíkniefnum og nokkrar milljónir í reiðufé við húsleit í íbúð í miðborginni fyrr í vikunni. Innlent 13. júní 2025 11:29
Tilkynnt um barn með vopn og vímuefni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á hamar, hnúajárn og fíkniefni í fórum barns í Breiðholti í gær. Í dagbók lögreglu kemur fram að lögreglu hafi verið tilkynnt um einstakling undir lögaldri með bæði vopn og vímuefni utan dyra í Breiðholti. Innlent 13. júní 2025 06:37
Jón Óttar kærir Ólaf Þór fyrir rangar sakargiftir Jón Óttar Ólafsson, fyrrverandi lögreglumaður og fyrrum eigandi PPP, hefur kært Ólaf Þór Hauksson, héraðssaksóknara og fyrrverandi sérstakan saksóknara, fyrir rangar sakargiftir í tengslum við rannsókn á meintum brotum hans í tengslum við vinnu á vegum PPP á þrotabúi Milestone árið 2011 til 2012. Greint er frá kærunni í Morgunblaðinu í dag. Innlent 13. júní 2025 06:27
Sprengjum og öxum beitt við heimili til að kúga út fé Stjórnendum verktakafyrirtækis og fjölskyldum þeirra hefur verið hótað lífláti og öxum, bensín- og reyksprengjum hefur verið beitt við heimili þeirra. Stjórnendurnir segja handrukkara á bak við árásirnar og að þær megi rekja til deilna um uppgjör við landeldisfyrirtækið First Water. Stjórnendur First Water vísa ásökunum til föðurhúsanna. Starfsmaður þeirra hefur einnig sætt hótunum. Lögregla lítur málið alvarlegum augum. Innlent 12. júní 2025 19:02
Flugu frá Frakklandi með tólf kíló af kókaíni Tveir karlmenn sæta gæsluvarðhaldi eftir að hafa verið gripnir af tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli með samanlagt tólf kíló af kókaíni í farangri sínum. Lagt hefur verið hald á meira magn kókaíns á fimm mánuðum í ár en allt árið í fyrra. Innlent 12. júní 2025 11:54
Hávaðaútköll og maður með ólæti á dvalarheimili Lögregla á höfuðborginni þurfti að sinna nokkrum hávaðaútköllum í gærkvöldi og þá var maður í miðborg Reykjavíkur handtekinn vegna tveggja líkamsárása með stuttu millibili. Innlent 12. júní 2025 06:13
Fastir á Keflavíkurflugvelli í þrjá daga án útskýringa Fjórir verkamenn frá Belarús sátu fastir á Keflavíkurflugvelli í þrjá daga eftir að hafa fengið synjun um að koma til landsins. Þeir segjast aldrei hafa fengið að vita hvers vegna þeim var haldið þar. Sá sem réði mennina í vinnu segir þá ekki einu sinni hafa getað keypt sér að borða. Innlent 11. júní 2025 19:41
Sigurður Fannar játar að hafa banað dóttur sinni Sigurður Fannar Þórsson játar að hafa orðið tíu ára dóttur sinni að bana í Krýsuvík í fyrra. Aðalmeðferð í málinu fór fram í dag í Héraðsdómi Reykjaness fyrir luktum dyrum. Innlent 11. júní 2025 18:12
Máttu ekki tjalda á Arnarhóli Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í dag afskipti af ölvuðum einstaklingum við tjald á Arnarhóli. Innlent 11. júní 2025 17:29
Sterametið mölbrotið í Leifsstöð: Lögðu hald á um 9 lítra af sterum og 44 þúsund töflur Aldrei hafa fleiri steratöflur verið haldlagðar við landamærin á Keflavíkurflugvelli heldur en árið 2024, sem mölbrýtur fyrri met. Framkvæmdastjóri Lyfjaeftirlitsins hefur áhyggjur af því að fleiri sækist í vefaukandi stera og segir of frjálslega talað um steranotkun á samfélagsmiðlum. Innlent 11. júní 2025 17:18
Aðalmeðferð hafin í máli Sigurðar Fannars Aðalmeðferð er hafin í máli Sigurðar Fannars Þórssonar, sem grunaður er um að hafa banað tíu ára dóttur sinni í september í fyrra. Réttað er yfir honum fyrir luktum dyrum. Innlent 11. júní 2025 09:38
Neitaði að borga fyrir leigubílinn og braut rúðu í lögreglubíl Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt mann eftir að hafa brotið rúðu í lögreglubíl. Lögregla var kölluð til og hafði afskipti af manninum þar sem hann hafði neitað að greiða fyrir leigubíl en reikningurinn hljóðaði upp á nokkra tugi þúsunda. Innlent 11. júní 2025 06:09