
Kort af staðsetningu gossprungunnar
Lengd gossprungunnar þar sem gýs norðan Grindavíkur er áætluð um tveir og hálfur kílómetri. Syðri endi hennar er við Sýlingarfell. Sérfræðingar Veðurstofunnar telja gosið minna í upphafi en síðasta gos í ágúst.
Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.
Lengd gossprungunnar þar sem gýs norðan Grindavíkur er áætluð um tveir og hálfur kílómetri. Syðri endi hennar er við Sýlingarfell. Sérfræðingar Veðurstofunnar telja gosið minna í upphafi en síðasta gos í ágúst.
Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum segir að rýming gangi vel í bæði Grindavík og Bláa lóninu. Miðað við upplýsingar um staðsetningu eldgossins og hraunflæði séu engir innviðir eða vegir í bráðri hættu akkúrat núna.
Eldgos hófst við Sundhnúksgígaröðina klukkan 23:14 á miðvikudag. Sprungan liggur austan Grindavíkurvegar í norðaustur. Um er að ræða sjötta elgosið á árinu og það tíunda síðan goshrinan hófst í mars 2021.
Jón H.B. Snorrason saksóknari hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir best að byrja hjá lögreglu sé fólk með vitnisburð eða gögn sem geti varpað nýju ljósi á rannsókn lögreglu í einhverju máli. Útgefandi bókar um hvarf Geirfinns Einarssonar geti snúið sér til lögreglunnar á Suðurnesjum.
Bíll með aftanívagn fór á hliðina á Suðurlandsvegi til móts við Eystri skóga í dag. Enginn slys urðu á fólki.
Karlmaður sem er í gæsluvarðhaldi grunaður um líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni á Vopnafirði er talin hafa ráðist á konuna með hættulegu verkfæri, járnkarli eða rúllubaggateini.
Héraðssaksóknari mun taka ákvörðun um útgáfu ákæru í Kiðjabergsmálinu svokallaða á næstu dögum, að sögn Karls Inga Vilbergssonar saksóknara. Málið varðar andlát manns sem lést í sumarbústað í Kiðjabergi á Suðurlandi í apríl á þessu ári.
Sex gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu nú í morgunsárið en lögregla handtók meðal annars mann í gærkvöldi eða nótt sem var grunaður um brot og skallaði lögreglumann sem hugðist hafa af honum afskipti.
Atburðarásin var hröð í Vesturbæ Reykjavíkur eftir að íbúi birti mynd í Facebook-hópi íbúa af grunsamlegum karlmanni með hafnaboltakylfu að grípa í húninn á útidyrahurð í raðhúsi. Þremur klukkustundum síðar hafði nágranni endurheimt fokdýrt reiðhjól sem hafði verið stolið um nóttina og tveir verið handteknir.
Bílar sem lentu í árekstri í gærkvöldi á Biskupstungnabraut skammt frá Þrastalundi skullu saman úr gagnstæðri átt.
Vinur læknis, sem stunginn var í Lundi í Kópavogi í sumar, er með réttarstöðu sakbornings vegna áfloga milli hans og árásarmannsins. Eftir að árásarmaðurinn flúði vettvang stökk vinurinn upp á rafhlaupahjól árásarmannsins og elti hann uppi.
Tveir heimilislausir menn gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt, eftir að tilkynningar bárust um að þeir væru þar sem þeir voru óvelkomnir.
Þrír voru fluttir á sjúkrahús með þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir að tveir bílar skullu saman úr gagnstæðri átt við Þrastalund. Alls voru sex í bílunum tveimur.
Nokkuð var um pústra í miðbæ Reykjavíkur í nótt og segir lögregla að töluverður hiti hafi verið í fólki. Sex gistu fangageymslur lögreglunnar í nótt og einn var fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Hafnarfirði.
Eiginkona læknis á sextugsaldri sem stunginn var fjórum sinnum í Lundi í Kópavogi í sumar var viss um að eiginmaður hennar myndi deyja eftir árásina. Árásarmaðurinn og öll sem urðu vitni að árásinni segja að soðið hafi upp úr vegna ágreinings um umferðarreglur á göngustígum.
Þrítugur karlmaður sem er ákærður fyrir að reyna að bana lækni í Lundi í Kópavogi í sumar, segist ekki hafa haft neinn ásetning til þess að stinga lækninn. Hann hafi gripið til hnífs og sveiflað í átt að lækninum í sjálfsvörn. Hann hafi verið með hníf sem hann keypti í Kolaportinu í vasanum af því að honum þætti hann „töff“.
Norðfirðingur á fimmtugsaldri sem grunaður er um að hafa myrt hjón á áttræðisaldri á heimili þeirra í Neskaupstað í ágúst sætir gæsluvarðhaldi til 29. nóvember. Héraðsdómur féllst á kröfu lögreglustjórans á Austurlandi. Varðhaldstíminn teygir sig yfir tólf vikna viðmið um hámarkslengd í gæsluvarðhaldi án útgefinnar ákæru.
Íslensk stjórnvöld hafa markað nýja stefnu í landamæramálum sem ætlað er að efla landamæraeftirlit, auka viðbrögð við skipulagðri brotastarfsemi og tryggja mannúðlega móttöku og brottflutning hælisleitenda.
Guðrún Hafsteindóttir dómsmálaráðherra og Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri hafa boðað til upplýsingafundar um stefnu stjórnvalda í málefnum landamæra og landsáætlun um samþætta landamærastjórnun.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú líkamsárás þar sem grunur leikur á um að hópur einstaklinga hafi ráðist á tvo.
Konan sem að lýst var eftir í dag hún Soffía Pétursdóttir, er fundin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi vestra.
Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur lýst eftir Soffíu Pétursdóttur. Hún er fædd árið 1941 og er með heilabilun en hún fór að heiman á Laugarbakka í Húnaþingi vestra í nótt eða í gærkvöldi.
Maðurinn sem lögregla á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í kvöld er fundinn heill á húfi.
Búið er að opna aftur vegi sem lokað var á norðanverðum Vestfjörðum í gær vegna aurskriða sem féllu, þrátt fyrir miklar skemmdir, og eins hefur Bíldudalsvegur verið opnaður að nýju. Óvissustig er enn í gildi og viðbragðsaðilar í viðbragðsstöðu. Búast má við úrkomu í kvöld og vegalokunum vegna þess.
Búið er að opna veginn um Eyrarhlíð á nýjan leik. Vegurinn liggur á milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur og var lokað fyrr í vikunni eftir að aurskriður féllu þar.
Ragnar Jónsson, lögreglufulltrúi og blóðferlafræðingur, segir rannsókn á hvarfi og andláti Birnu Brjánsdóttur hafa tekið mikið á. Málið hafi haldið fyrir honum vöku í þrjá mánuði, og hann muni ekkert eftir fjölskylduferð sem hann fór í að rannsókninni lokinni.
Lögreglan á Vestfjörðum hafði í kvöld samband við íbúa í húsum ofarlega við Hjallaveg á Ísafirði og í einu húsi við Hnífsdalsveg. Íbúar húsanna eru beiðnir um að dvelja ekki í herbergjum þar sem gluggar snúa upp í hlíð Eyrarfjalls.
Ekki er lengur hægt að tala um „sænska ástandið“ sem hefur verið notað til að lýsa brotaöldu í Svíþjóð á undanförnum árum. Þess í stað er réttara að tala um „norræna ástandið“, þar sem þróunin sé ógnvekjandi á öllum Norðurlöndum, samkvæmt formönnum lögreglufélaga þessara landa.
Kristján Markús Sívarsson hefur verið dæmdur í sextán mánaða fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og vörslu og vopna og fíkniefna. Konunni sem varð fyrir árásinni voru dæmdar 800 þúsund krónur í miskabætur en hún hlaut höfuðkúpubrot og mar á heila.
Fjórir voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi eða nótt í tengslum við rán. Nokkrum var hins vegar sleppt eftir skamma stund en málið er í rannsókn.