Eiginkona Gunnhildar Yrsu samdi líka við Stjörnuna Erin McLeod hefur samið við Stjörnuna og muna spila með liðinu í Bestu deild kvenna í fótbolta í sumar alveg eins og eiginkona hennar Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir. Íslenski boltinn 1. febrúar 2023 15:51
Martröð Jóns Guðna ætlar engan enda að taka Frá því skömmu eftir að Jón Guðni Fjóluson stóð í miðri vörn Íslands í leik gegn Þýskalandi, í undankeppni HM haustið 2021, hefur hann nánast ekkert getað spilað fótbolta og biðin hefur enn lengst. Fótbolti 1. febrúar 2023 15:00
„Reglugerð er aldrei sanngjörn gagnvart öllum aðilum“ Körfuknattleikssamband Íslands fær 15 milljónum króna í sitt afreksstarf í ár en í fyrra, og Knattspyrnusamband Íslands hefur ekki fengið krónu úr Afrekssjóði ÍSÍ síðan árið 2017. Framkvæmdastjóri ÍSÍ viðurkennir að þörf sé á að endurskoða reglur um úthlutun úr Afrekssjóði. Sport 1. febrúar 2023 14:00
Óskar Hrafn og Heimir bítast um fyrsta Þungavigtarbikarinn í kvöld Fyrsti fótboltatitilinn á árinu 2023 er í boði í kvöld og verður hægt að fylgjast með leiknum í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Íslenski boltinn 1. febrúar 2023 13:31
Ten Hag segir að tækling Carrolls eigi ekki heima í fótbolta Andy Carroll er ekki á jólakortalista Eriks ten Hag, knattspyrnustjóra Manchester United, eftir að hann meiddi Christian Eriksen í bikarleiknum gegn Reading á laugardaginn. Enski boltinn 1. febrúar 2023 12:31
Skotinn niður og út úr leiknum í sigri Newcastle í gær Newcastle komst í gær í sinn fyrsta úrslitaleik á Wembley í 24 ár þegar liðið vann 2-1 sigur á Southampton í seinni undanúrslitaleik liðanna í enska deildabikarnum. Enski boltinn 1. febrúar 2023 12:01
Hækkað um tæplega hundrað milljónir punda í verði á hálfu ári Eftir langar viðræður gekk Chelsea loks frá kaupunum á Enzo Fernández frá Benfica í gær, á lokadegi félagaskiptagluggans. Óhætt er að segja að argentínski heimsmeistarinn hafi hækkað verulega í verði undanfarna mánuði. Enski boltinn 1. febrúar 2023 11:30
Conte í aðgerð eftir gallsteinakast Antonio Conte, knattspyrnustjóri Tottenham, gengst undir aðgerð í dag þar sem gallblaðran verður fjarlægð úr honum. Enski boltinn 1. febrúar 2023 10:53
Bönnuðu konum að mæta á leiki en ætla nú að vera styrktaraðili HM kvenna Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, ætlar að styrkja enn frekar tengsl sín við Sádi-Arabíu með því að taka Sáda inn í hóp styrktaraðila sína á komandi heimsmeistaramóti kvenna í fótbolta. Fótbolti 1. febrúar 2023 10:30
Eiginkona Danis Alves vill skilnað eftir að hann var handtekinn fyrir kynferðisbrot Eiginkona Danis Alves, sigursælasta fótboltamanns sögunnar, hefur óskað eftir skilnaði eftir að hann var handtekinn fyrir kynferðisbrot. Fótbolti 1. febrúar 2023 08:32
Chelsea klúðraði félagaskiptunum og Ziyech fór í fýluferð til Parísar Svo virðist sem Chelsea hafi klúðrað félagaskiptum Hakims Ziyech til Paris Saint-Germain. Enski boltinn 1. febrúar 2023 07:31
Fjórir af sjö nýjum leikmönnum Chelsea geta ekki tekið þátt í Meistaradeildinni Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea þarf að velja og hafna leikmönnum þegar kemur að því að skrá 25 manna hóp sem getur tekið þátt í Meistaradeild Evrópu. Fótbolti 1. febrúar 2023 07:00
Lokadagur gluggans: Enzo dýrastur í sögunni og Arsenal sótti Evrópumeistara til nágrannanna Félagsskiptaglugginn í Evrópu lokaði í kvöld og eins og við var að búast var af nægu að taka. Stærstu fréttirnar eru þær að Chelsea náði að öllum líkindum að ganga frá kaupum á argentínska miðjumanninn Enzo Fernandez á metfé og Arsenal fékk Evrópumeistarann Jorginho frá nágrönnum sínum í Chelsea. Enski boltinn 1. febrúar 2023 00:40
Sabitzer á láni til United Austurríski knattspyrnumaðurinn Marcel Sabitzer er genginn til liðs við Manchester United á láni frá Þýskalandsmeisturum Bayern München. Fótbolti 1. febrúar 2023 00:21
Nýliðarnir fá þrefaldan Evrópumeistara Nýliðar Nottingham Forest hafa fengið markvörðinn Keylor Navas á láni frá franska stórveldinu Paris Saint-Germain. Fótbolti 31. janúar 2023 23:24
KA fær tvöfaldan liðsstyrk frá Noregi Ka hefur fengið íslenska unglingalandsliðsmanninn Ingimar Torbjörnsson Stöle og norska varnarmanninn Kristoffer Forgaard Paulsen til liðs við sig fyrir komandi leiktíð í Bestu-deild karla í knattspyrnu frá norska félaginu Viking. Fótbolti 31. janúar 2023 23:00
Sjálfsmark tryggði Blackburn sæti í 16-liða úrslitum Blackburn er á leið í 16-liða úrslit enska FA-bikarsins í knattspyrnu eftir 1-0 sigur gegn Birmingham í framlengdum leik þar sem sjálfsmark skildi á milli liðanna. Fótbolti 31. janúar 2023 22:24
Tíu leikmenn Newcastle tryggðu sér sæti í úrslitum Newcastle er á leið í úrslit enska deildarbikarsins eftir 2-1 sigur gegn Southampton í kvöld. Newcastle vann 1-0 sigur í fyrri leik liðanna og liðið vann einvígið því samanlagt 3-1. Fótbolti 31. janúar 2023 22:07
Darmian skaut Inter í undanúrslit Metteo Darmian skoraði eina mark leiksins er Inter vann 1-0 sigur gegn Atalanta í átta liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar Coppa Italia í kvöld. Fótbolti 31. janúar 2023 21:59
„Þegar ég sá hvaða lið voru í boði fannst mér þetta mjög spennandi“ Landsliðskonan Svava Rós Guðmundsdóttir hefur fundið sér nýtt lið, Gotham FC í Bandaríkjunum. Hún kveðst spennt fyrir nýju verkefni í nýju landi. Fótbolti 31. janúar 2023 20:30
Jorginho genginn í raðir Arsenal Ítalski knattspyrnumaðurinn Jorginho er genginn til liðs við Arsenal frá Chelsea fyrir tólf milljónir punda, eða rúma tvo milljarða íslenskra króna. Fótbolti 31. janúar 2023 20:15
Orlando City staðfestir kaupin á Degi Bandaríska knattspyrnufélagið Orlando City staaðfesti fyrr í dag kaupin á Degi Dan Þórhallssyni frá Breiðablik. Fótbolti 31. janúar 2023 20:01
Urðu að færa fyrsta leik sinn á HM á mikið stærri leikvang Eftirspurnin eftir miðum á upphafsleik Ástralíu á HM kvenna í fótbolta í Eyjaálfu næsta sumar hefur verið slík að mótshaldarar hafa neyðst til að skipta um leikvang. Fótbolti 31. janúar 2023 17:30
Nýja Chelsea-stjarnan baðst afsökunar á gömlu myndbandi Úkraínumaðurinn Mykhailo Mudryk, nýja stjarnan í liði Chelsea, neyddist til að biðjast afsökunar á TikTok-myndbandi sem birtist síðasta sumar, þar sem hann fór með línur úr rapplagi og notaði N-orðið. Enski boltinn 31. janúar 2023 17:01
Orri frá FCK að láni og lýst sem alræmdum markaskorara Framherjinn ungi Orri Óskarsson er farinn að láni frá FC Kaupmannahöfn til SönderjyskE og mun því spila í dönsku 1. deildinni fram á sumar. Fótbolti 31. janúar 2023 16:20
Gamall markahrókur sá við Rúnari Alex Landsliðsmarkvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson varð að sætta sig við 3-0 tap á heimavelli með liði Alanyaspor gegn einu af neðstu liðum tyrknesku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Fótbolti 31. janúar 2023 16:02
Valur fær þýska Hönnu frá ÍBV Íslands- og bikarmeistarar Vals hafa fengið þýska miðjumanninn Hönnu Kallmaier frá ÍBV. Hún skrifaði undir eins árs samning við Val. Íslenski boltinn 31. janúar 2023 15:30
Sjáðu heitasta framherjann á Ítalíu minna vel á sig á móti Mourinho Napoli er á góðri leið að verða ítalskur meistari í fyrsta skiptið án hjálpar frá Diego heitnum Maradona. Fótbolti 31. janúar 2023 15:01
Messi sér eftir því hvernig hann lét Lionel Messi viðurkennir að hann sjái eftir því hvernig hann lét í og eftir leik Argentínu og Hollands í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins í Katar í síðasta mánuði. Fótbolti 31. janúar 2023 14:01
Tæklingin reyndist áfall fyrir Manchester United Nú er orðið ljóst að danski miðjumaðurinn Christian Eriksen mun ekki spila með Manchester United næstu mánuðina en búist er við því að hann verði frá keppni fram í lok apríl eða byrjun maí vegna ökklameiðsla. Enski boltinn 31. janúar 2023 12:30